1.6.2007 | 16:36
Pétur fyrstur með fréttirnar
Sú saga hefur lengi verið í gangi að Egill sé á leiðinni til RÚV. Nú hefur Pétur staðfest þetta á mjög skýran hátt.
Hitt sem er merkilegt við þetta er hvernig mbl.is linkar á fréttina, þeir linka beint en reyna ekki að taka ekki neinn heiðurinn.
![]() |
Egill sagður á leið til Sjónvarpsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.6.2007 | 14:22
Bráðnauðsynlegt í hverju veski
![]() |
Ný vara ver fræga fólkið fyrir papparazzi ljósmyndurum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.6.2007 | 09:02
Kaffið best á Essó
Ég hef ekki nennt að hella upp á Kaffi lengi í vinnunni heldur hef ég gripið með mér kaffi, þar sem ég hef farið um. Ég hef því prófað allar helstu bensínstöðvarnar og nokkur kaffihús.
Vandamálið við að fara á þessi kaffihús er að það er algjört morð, 260 krónur fyrir bolla af kaffi. Eins og Te og Kaffi í Skeifunni þar sem ekki einu sinni er boðið upp á þjónustu, sjoppan svo lítil að ef plásssið fyrir viðskiptavinin væri eitthvað minna væri þetta lúgushoppa.
Essó selur hins vegar kaffið á 150 eins og hinar stöðvarnar, en er hins vegar með kaffi frá Te og Kaffi en ekki eitthvað skyndi úr vél eins og hinar stöðvarnar (amk. sem ég hef komið á).
Ábendingar um ásættanlega kaffistaði?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.5.2007 | 22:10
Common Guðni!
Guðni er enn að ræða um þetta blessaða DV blað sem kom út. Ég held að allir séu nú löngu komnir með leið á þessu rausi. Það virðast allir vita betur en Guðni.
Guðni hlýtur að ranka við sér, og hætta þessu rausi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2007 | 17:35
Sigurjón framkvæmdastjóri
Gervigrasfræðingurinn skúbbar að Sigurjón Þórðarson verði næsti framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins. Sigurjóni hefur mikið farið fram sem stjórnmálamanni, en veldur sjálfum sér þó skaða með stöðugum upphrópunum, t.d. í garð RÚV vegna fréttaflutnings sem er honum ekki að skapi.
Nú eftir kosningar veitir Frjálslynda flokknum ekki af því að sleikja sárin frá því í vor og vetur. Sigurjón verður öflugur starfsmaður í þeim málum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2007 | 17:02
Áhugaverð grein um strætó
Ég hlustaði á Dag í gær þar sem hann ræddi um samgöngur við Árbæinn og ég átti eiginlega ekki eitt einasta orð. Hver hefur nú áhuga á að fara um Sæbrautina til þess að fara niður í bæ? Er eitthvað betra að bjóða fólki upp á að taka einn strætó og fara svo í annan?
Ég held að menn verði að taka sig saman og breyta gera stórtækar lagfæringar á kerfinu eða loka því að öðrum kosti.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2007 | 15:36
Múrinn RIP
Var að sjá að Múrinn er allur. Stebbi Páls skrifar kveðju grein um Múrinn. Múrinn var lengst af hörku vefrit, þó svo að maður hafi verið ósammála þeim í mjög mörgu. Einfalt útlit og skiljanlegar greinar.
Það er hörku vinna að halda úti svona vefrit, sérstaklega þegar fáir eru í ritstjórn þess og vinnan dreifist á fárra hendur. Það er flott hjá þeim að enda þetta svona, bara klára dæmið. Mörg vefrit sem hafa gefið upp öndina, hafa gert það með hægum dauðdaga. Sum anda enn en eru þó með súrefniskút og staf.
Stebbi telur upp nokkur pólitísk sem flest heyra nú sögunni til, þar nefndi hann ekki vefritið Deiglan sem hefur verið starfrækt síðan 1998 og er enn í fullu fjöri, þótt greinarnar séu margar ópólitískar. Deiglan hefur verið með öflug skrif frá stofnun en nú um þessar mundir eru um sem starfa á vefritinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2007 | 12:28
Góð kosning
Þetta er óvenju mikil þáttaka í svona kosningu miðað við að um er að ræða verkalýðsfélag. Kosning Kristínar er líka mjög góð og greinilegt að meirihluti sjúkraliða eru ánægðir með störf Kristínar.
![]() |
Kristín endurkjörin formaður Sjúkraliðafélagsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2007 | 12:22
Hver er þá erfðaprinsinn?
Undanfarið hefur hitnað undir Styrmi og menn spáð að hann sé á leiðinni út. Hann er amk. að komast á aldur þannig að hann á ekki eftir að starfa í mörg ár í viðbót hjá Mogganum. Ólafur hefur verið sá sem helst hefur verið nefndur sem arftaki. Nú þegar hann fer á Blaðið er spurning hvort þetta sé tékk á honum, hvernig hann muni standa sig sem ritstjóri en Blaðið hefur verið hálfgert örverpi, en svo virðist vera að menn endast mjög stutt sem ritstjórar.
Hitt er svo auðvitað spurning hvort menn séu komnir með nýjan arftaka í huga. Það á væntanlega eftir að koma í ljós á næstu dögum, þegar við sjáum hver tekur við starfi Ólafs sem aðstoðarritstjóri Moggans.
![]() |
Ólafur Þ. Stephensen ráðinn ritstjóri Blaðsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2007 | 10:12
Kemur lítið á óvart
Það kemur lítið á óvart miðað við umræðuna undanfarna daga og athugasemdir á bloggi Róberts að hann skuli vera orðinn aðstoðarmaður ráðherra. Spurningin var bara hjá hverjum.
Róbert á örugglega eftir að verða góður aðstoðarmaður, þekkir vel til fjölmiðla. Björn Ingi velti fyrir sér í gær hvort þessir aðstoðarmenn yrðu kallaðir spunameistarar líkt og var haft um hann, þegar hann var aðstoðarmaður Halldórs. Hérna er amk. kominn fyrsti spunameistarinn inn í þessa ríkisstjórn.
![]() |
Róbert Marshall verður aðstoðarmaður samgönguráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)