Færsluflokkur: Bloggar

Hart andlát

Ekki veit ég hvaða mynd þetta er á tæpasta vaði og hef vætnanlega lítinn áhuga að sjá hana.  Ég hef heyrt umræðu um það í útvarpi að menn eigi alveg eins og þýða þetta eins og að texta myndina sjálfa eða bókatitla bóka. 

Sjálfum finnst mér þetta kjaftæði. Ég efast um að þetta muni skapa ungmennum þessa lands töluverðum vandræðum að viðhalda íslensku.

Þeir óttast kannski svona texta:  

Oki vá gaurar er þetta varla aulýsing ef þið eruð svona stressaðir að fkn vita fkn ræmn, bara hafa þetta á ensku mar.

Ég nota bene stal þessu á netinu og skipti út nokkrum orðum, til að staðfæra.

Ég held samt að þetta hafi enga úrslitakosti.
mbl.is Nýjasta „Á tæpasta vaði“ myndin örugg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögreglan með almannatengslafulltrúa

Mér sýnist lögreglan vera komin í með góðan almannatengsla fulltrúa, amk. er þetta mjög góð saga og eykur sjáfsagt enn frekar hróður Blöndóslögreglunnar.   Þegar fólk er orðið tilbúið að gefa radarvarann sinn. 

Ég hef aldrei notað svona græjur, en ég hélt að lögreglan væri fyrir löngu kominn með græjur sem tækju á þessu. 


mbl.is Vildi gefa lögreglunni radarvarann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrýtin auglýsing

Ég var ekki alveg að fatta þessa auglýsingu sem birtist í Mogganum í morgun og beindist að Árna Johnsen. 

Átti þetta að vera jákvæð eða neikvæð auglýsing?  


mbl.is Æla, notaðir smokkar og rotnandi matarleifar tóku á móti gestum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir í orkunni

Ég sagði frá því um daginn að allir væru komnir í orkuna, Landsbankinn er líka farinn að fjárfesta í orku og lénum tengdu því:

http://hydrokraft.is/ 


Af því lýðræðið virkaði ekki

Það var fróðlet að heyra í talsmanni þeirra, þar sem lýðræðið dugaði
ekki lengur og kosningar dugðu ekki ætluðu þau að grípa til eigin
ráða.    Mér finnast þetta nokkuð merkileg rök fyrir þessu
átaki.
mbl.is Mótmælendur við álver Alcoa-Fjarðaáls í Reyðarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þó fyrr hefði verið

Þetta er mjög fín lexía fyrir þessa ríku smástelpu sem og aðrar í
hennar stöðu.  Fólk sem heldur að peningar geti keypt þeim hvað
sem er, en greinilega átti hún ekki von á öðru en peningar pabba gætu
leyst hana úr þessu.
mbl.is París segist ætla að hætta heimskupörum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Merkilegt skot

Mér fannst þetta merkilegt skot hjá Ágústi, enn merkilegra finnst mér svar frá Runólfi. Í því reynir hann ekkert að svara fyrir þessa ásakanir en er meira að tala um hvernig framtíðin mun meta Ágúst.  

Afhverju svarar Runólfur ekki ásökunum um fjárhagsóreiðu? 


mbl.is Runólfur svarar Ágústi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölgaði um fjögur

Mér til mikill ánægju fjölgaði okkur um fjögur í dag í JCI félaginu mínu.  Það er gríðalega gaman þegar það gerist enda samkppenin um tíma fólks orðin gríðarlega mikil og erfiftt að finna fólk sem lætur tímann fyrir framan impan ekki soga of mikið af sínum tíma.  Starfið í JCI getur verið mjög gefandi og styrkjandi fyrir mann sjálfan.

Óþolandi

Mér finnst óþolandi þegar menn eru að hengja sig á fréttir án þess að bjóða upp á athugsamdir.  Oft er um algjör rugl að ræða og nauðsynlegt að kommenta.  Það er bara ekki í boði.

Orðið leiðréttir sig

Orðið leiðréttir sig í tveimur hlutum í dag, annars vegar var Erla ósk ekki aðstoðarmaður Guðlaugs Þórs, heldur Hanna Katrín Friðriksson. Hitt var með bens Björgvins. Hann þekkti víst ágætlega til á Suðurlandinu, enda úr fórum Guðna. Það er samt gott hjá orðinu að leiðrétta sig, þeir komust líklega ekki hjá því í dag eftir að hafa verið að spá um aðstoðramann í morgun.

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband