Góðir Íslendingar í Svíþjóð

Nú er komið að því að bjarga andliti landsliðsins, ég vil því biðja alla sem vettlingi geta valdið að mæta á leikinn á móti Svíum, taka með sér góða boxhanska og svo verður það bara fyrstur kemur, fyrstur fær að kýla dómarann í jörðina.   

Þetta stefnir allt í hræðilegt tap þarna úti, 14-2 gæti hljómað vel í þessum samanburði, þannig að það er skilda okkar að negla dómarann.  Það verður þá bara dæmt 3 - 0 eins og leikurinn hjá Svíum og Dönum og svo einhver smásekt.

Best væri þó að reyna að fá einhvern fullan Svía í málið eða þykjast sænskur.  

Að lokum vona ég að ekki nokkur maður hlusti á þessa vitleysu í mér. 


Verst uppfærða vinsældarsíðan

Það er áhugavert að Sigmar Guðmundsson er enn á lista yfir topp 20 bloggara, þó svo að hann sé hættur að blogga. Seinasta færslan var skrifuð 16. maí.

mbl.is noti eigið stafsetningarforrit

Af hverju nota sumarstarfsmenn mbl.is, ekki þetta ágæta stafsetningarforrit sem okkur bloggurum hefur verið skaffað. Ætli það sé ekki til í þeirra eigin kerfi?

Manni grunar ýmislegt miðað við margar fréttir sem maður hefur verið að sjá. Eins og einn góður vinur minn sagði við mig, það er mikið þegar maður er sjálfur farinn að reka augu í villurnar. Það sama gildir um mig, enda ekki manna bestur í stafsetningu.

Ekkert betra efni á RÚV?

Ég var að skoða heimasíðu RÚV.is og sé að þeir eru að auglýsa Stiklurnar hans Ómars í verslun sinni. Þættirnir voru ágætir á sínum tíma en eiga þeir virkilega ekkert nýrra og betra efni til að auglýsa?   Er þetta dagskrágerðin hjá þeim eða hvað veldur því að það er ekkert betra efni boðið til sölu hjá þeim?

Ég get ekki ímyndað mér að það sé mjög stór markaður fyrir þessa þætti, auðvitað eru einhverjir nokkrir sem hafa áhuga á að eiga þessa þætti.  Þetta er klassík.

Hvað er með skemmtiþætti?  Hafa skemmtiþættir RÚV allir verið svo glataðir að það er enginn sem vill kaupa þá?


Ekki rétt hjá Stefáni

Þetta er bara ekki rétt hjá Stefáni, Deiglan.com, var stofunð árið 1998. Ég veit ekki hvort hann er vísvitandi að telja ekki upp deigluna, hvort hann telur að hún hafi ekki verið verðugur andstæðingur eins og hann kallaði hin vefritin eða hvað málið er. Þetta er í annað sinn nú á stuttum tíma sem hann telur upp vefrit, þar sem ég teldi að deiglan ætti að vera á listanum en er ekki.
Múrinn hrynur
"Ég vona að einhverjir muni sakna okkar," segir Stefán Pálsson, sagnfræðingur og einn stofnenda veftímaritsins Múrsins sem nú hefur lagt upp laupana.

"Ég vona að einhverjir muni sakna okkar," segir Stefán Pálsson, sagnfræðingur og einn stofnenda veftímaritsins Múrsins sem nú hefur lagt upp laupana.

Múrinn er eitt elsta pólitíska vefritið. Aðeins Vef-Þjóðviljinn er eldri. Að sögn Stefáns var blómatími þeirra rita, sem vöktu athygli og voru skrifin oft tekin upp af hefðbundnari fjölmiðlum, á árunum 2001 og 2002. Á þeim tíma var Björn Bjarnason eini pólitíkusinn sem skrifaði á netið. En með auknum uppgangi bloggsins og því að annar hver atvinnumaður í stjórnmálum tók upp á því að skrifa á netið tók að fjara undan veftímaritunum. Stefán heldur því þó fram að hann hafi ekki séð eitt einasta blogg sem er betra en sæmilegt veftímarit, sem lýtur ritstjórn, er byggt á samstarfi og ákveðinni stefnu. En pólitísku veftímaritin, sem þurfa að vera skrifuð af "ungum og gröðum" mönnum með sterkar pólitískar meiningar að sögn sagnfræðingsins, söfnuðust til feðra sinna misvirðulega.- jbg


Flott vorthátíð

Fór í gær á mjög skemmtilega vorhátið hjá JCI.  JCI fólk kann svo sannarlega að skemmta sér.  

Um kvöldið mætti svo einn með Karaoki græju, það voru misjöfn viðbrögðin við því.  Nokkuð margir tóku þátt á meðan aðrir kvörtuðu undan hávaða.  Það er kannski ástæða fyrir því að JCI kórinn hefur ekki verið stofnaður.

Ég tók þátt í ræðuveislunwwwni í gær, sem er nokkuð skemmtilegt form á ræðukeppni.  Menn draga efni og hafa 15 mínútur til að undirbúa sig.  Því miður gekk mínu liði ekki nógu vel, amk. unnum við ekki. Hins vegar var ég valinn ræðumaður dagsins.  Það voru nokkuð góð sárabót og heiður fyrir mig.


Almenna leiðin

Það virðist varla vera nein leið til að vinna á fjölmiðli öðruvísin en að vera með gráðu í lögfræðigráðu eða her lögfræðinga að baki sér. Nú sjáum við þetta með Egil, það kemur auðvitað ekkert á óvart miðað við þær yfirlýsingar sem voru gefnar starx í upphafi.

Ég hef þá trú að Egill hafi nú skoðað samninginn sinn nokkuð vel með lögræðingi áður en hann skipti um stöð. Það kæmi amk. verulega á óvart miðað við allt sem hefur á undan gengið.
mbl.is 365 miðlar hóta Agli lögbanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mundi hrósar orðinu

Undanfarið hefur Mundi gert ítrekar grín af orðinu fyrir að segjast vera að byrja en hökti svona svakalega í byrjun.  

Þess vegna er rétt að benda á að Mundi hefur nú hrósað þeim.   


Sem betur fer

Hollendingar hafa löngum verið opnir fyrir mjög furðulegum hlutum, þetta var samt með furðulegri hlutum sem hafa verið í boði. Það er bara svo margt sem er rangt við þessar hugmyndir og stór furðulegt að þetta stæðist lög. Þeir hefðu allt eins getað boðið upp nýrað.

Þessi umræða er mjög þörf, en fyrir nokkrum dögum var umræða í fjölmiðlum um hvernig ættingar ráða meira um líffæragjafir heldur en sá látni, þrátt fyrir að vilji hans hafi verið skýr. Það var amk. skilningur minn á þessari grein. Hérna er ekkert almennilegt kerfi eins og víða úti, þar sem menn bera á sér upplýsingar þess efnis að það megi gefa líffæri sín.
mbl.is „Raunveruleikaþáttur“ um nýrnagjafa reyndist gabb
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mun Egill nú hefja að blogga?

Egill hefur ekki farið fögrum orðum en hann hefur neitað að blogga, þrátt fyrir að færslurnar hans séu ekkert annað en blogg. Hvað er hægt að segja annað um skrif hans? Önnur hver færsla endar á hvað hann og sonur hans eru að bardúsa, umfjöllun um daglegt líf og linkar á áhugaverðar fréttir.

Mér fannst merkilegt að í Kastljósi kvöldsins, þar sem Egill ræddi þessar breytingar var ekkert rætt um hótun Ara Edwald um allar lögsóknir sem voru yfirvofandi. Væntanlega hefur Egill gengið úr skugga um þessa hluti, og hann hefur væntanlega haft nokkuð frjálsræði í samninunum á sínum tíma, þegar Stöð 2 náði í hann af Skjá 1.

Spurningin sem brennur á ýmsum núna er hvað verður um ekki bloggið hans Egils. Mun hann halda áfram að skrifa eins og hann hefur gert í ansi mörg ár. Fyrst á strikinu og svo á vísi. Er hann kannski að detta í hóp RÚV-ara sem skrifa blog á blog.is?

Það væri gaman að heyra upp á hvað launin hans hljóma, manni skilst að 365 hafi greitt honum vel. Ætli áskrifargjöldin okkar standi undir sambærilegum launum - eða var aðstaðan svo góð að það hafi verið hægt að snarlækka í launum?

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband