Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
23.8.2008 | 08:39
Líklega ekki góð hugmynd
Ég held að gömul skaup sé kista sem á að vera lokuð. Hlutir sem voru fyndnir á sínum tíma og eru það áfram í minningunni en er ansi hræddur um að húmorinn sé löngu gleymdur þegar kemur að því að sína þetta núna.
Það er nú bara svona með gamla þætti og fyndnar myndir að þegar maður sér þetta í dag er þetta oftar ekki ekki frekar lame. Lenti í þessu þegar ég horfði á heilsubælið fyrir nokkrum árum. Fannst þeir eins og hálf þjóðin óhemju fyndnir. En þegar ég horfði á þetta aftur voru þeir ömulegir.
Þá er nú bara betra að eiga það í minningunni hvað þetta voru góðir þættir.
Gömul skaup snúa aftur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.8.2008 | 01:31
Seinhepnir hjá Express
Ætli Express viti hvað viðhald er? Eða er það bara eðlilegt það stopp sem hefur verið undanfarnar vikur?
Stóra spurningin er: Kemst ég til Sokkhólms á miðvikudaginn?
8.8.2008 | 00:20
Áhugaverður myndatexti
Um leið og ég geri ekki lítið úr þeim mótmælum sem urðu þegar skipt var um borgarstjóra, þá er þetta merkilegur <a href="http://www.dv.is/frettir/2008/8/7/meirihlutinn-alltaf-i-vandraedum/">myndatexti við þessa frétt</a>.
Fari það fram hjá einverjum þá eru svipað margir stuðningsmenn á þessari mynd eins og mótmælendur. Menn þurfa alla vegna að vera nokkuð blindir til þess að sjá ekki fólkið á fremstu 2 bekkjunum.
4.8.2008 | 17:21
Ögmundur alltaf jafn tímanlega
Ögmundur virðist ótrúlega seinheppin þessa dagana í tímasetningum.
Fyrir helgi var það hans heitasta ósk að SUS-arar færu að berjast geng einhverju öðru en að álagningarskrár væru lagðar fram. Það gerir hann árið sem SUS hefur einmitt ekkert gert í þessum efnum. Þetta var því fyrsta skotið hans út í loftið.
Um helgina kemur hann svo fram og óskar þess að forstjórar lækki launin sín og selji bílana sína. Miðað við það árferði sem nú er í gangi þarf ekki Ögmund til að segja forstjórum að lækka í launum eða selja bílana sína. Þeir sitja oft uppi með þessa bíla vegna þess að engir eru kaupendurnir og launin lækka af sjálfu sér. Oftar en ekki voru þessi laun af kaupréttarsamningum sem engir eru um þessar mundir, þótt búið sé að greiða af þeim skatta.
Væntanlega verður næsta tilkynning frá Ögmundi að vara okkur við því að fljótlega komi haust.
Ég held að svona stjórnmálamenn sýni okkur einmitt af hverju lágmarksafskipti stjórnmálamanna af borgaranum sé af hinu góða.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
30.7.2008 | 23:43
Léleg sala?
Átti Þorgrímur þetta bara ekki heima hjá sér í stóru upplagi.
Það er þá sniðugt að nýta þetta og fá smá prómó út á þetta.
Ég man eftir sögu af ungum manni sem gaf kærustu sinni sápu og ilmvatn. Faðir stúlkunnar taldi líklegt að kærastinn teldi vera skítalykt af stúlkunni.
Hvað skildi Þorgrímur halda um SKagstrendinga?
Karlmenn læra um konur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.7.2008 | 11:41
Enn heima í boði Iceland Express
Enn heima í boði Iceland ExpressÉg er ekkert sérstaklega himinlifandi, en í nótt klukkan 2.10 fékk ég SMS frá Iceland Express, svo þegar ég vaknaði klukkan 4 og byrjaði að gera mig kláran, komin með töskurnar og sótti símann, þá sé ég þetta ágæta SMS. Það var því ekkert annað að gera en að fara aftur að sofa. Ég sé nú ekki í fréttum að það sé vont veður, afísingarbúnaður bilaður eða aðrar óviðráðanlega orsaki eins og þetta heitir nú oftast hjá þessum flugfélögum. |
12.7.2008 | 00:07
Ótrúlegur akstur
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.7.2008 | 09:37
Blogg eða blog
Nú blogga ég á vef sem heitir blog.is, því skrifa ég nú oftast blog hérna inn á með einu g. Púkinn hefur hins vegar ekki verið sammála mér.
Ég brosi alltaf út í annað þegar hann leiðréttir mig.
Ég brosi reyndar alltaf út í bæði þegar ég man eftir púkanum. Algjör snilld fyrir svona menn eins og mig.
ikkar er ánæjan.
26.6.2008 | 09:32
Nakinn fornleifafræðingur
23.6.2008 | 10:21
Hringurinn að þéttast
Maður veit svo sem ekki en það þurfti að koma fram í fjölmiðlum að "hringurinn væri að þéttast" til þess að eigandinn gæfi sig fram. Auðvitað getur vel verið hann hafa verið í burtu um helgina. Væntanlega var hann þa að leita að hvolpinum? Auglýsti eftir honum? Eða annað sem hundaeigendur gera vanalega þegar þeir týna hundunum sínum. Maður þekkir bara ekki aðstæður.
Annars er það fyrsta vísbending þess efnis að lögreglan viti ekkert, þegar hún auglýsir að hringurinn sé að þéttast. Almennt myndi maður veðja á að ef hringurinn væri að þéttast, þá væri bara komið að handtöku en ekki fréttatilkynningar.
„Allur að koma til“ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |