Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
3.10.2007 | 23:47
Loksins
Fyrir nokkru skrifaði ég um þetta mál grein sem fékk gríðarlega athygli. Þessi vinnubrögð eru í hæsta máta óeðlileg og því frábært að þeir láti af þeim. Það var líka frábært að heyra að helstu kandiídatar í næstu forstjóra Símans eru sagðir vera forstjórar úr flugbransanum og þar á meðal forstjóri Iceland Express. Ég sé alveg fyrir mér þegar ég símanum mínum á eftir að verða lokað í miðju samtali, vegna þess að ég hringdi ekki í þjónustu númerið og sagði eitthvað undarlegt lykilorð! Eða eitthvað annað skemmtilegt sem maður hefur lent í af því að hafa flogið með flugfélögunum. Reyndar hafa símafyrirtækin fengið þá einkunn hjá mörgum að vera verstu þjónustufyrirætki landsins. Þegar maður fer og verslar í símabúðina undrar maður sig svo sem ekki á því. Hvernig getur fyrirtæki hagnast á því að selja manni gsmsíma á 10 þúsund, og s'etja það á léttgreiðslur. Formið er svo flókið að því er virðist að það taki 15 mínútur að afgreiða manninn? Ég varð nú samt vitni að þessu á dögunum þegar ég beið í 30 mínútur eftir að fá afgreiðslu í verslun Símans.
![]() |
Þögn er ekki sama og samþykki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.10.2007 | 13:32
A3 - Svo miklu betra
Það er nú ótrúlegt andleysið hjá þessum nýju fyrirtækjum. Hvað er málið með skrifstofudeild Odda, núna er þetta A4. Það þurfti að segja mér þetta nokkrum sinnum áður en ég fattaði hvaða tenging er þarna að baki. Á undan voru þetta bara bókstafur og tölustafur á stangli. Svona N1 bara en verra.
Er ekki málið að stofan skrifstofu fyrirtæki og kallað það A3 og auglýsa stærri og betri?
3.10.2007 | 08:25
Kraftaverk ef hann lifir þetta
Það er búið að vera áhugavert að fylgjast með flokknum þessa dagana. Hann má eiga það að hann á dygga stuðningsmenn en það er alveg ljóst að flokkurinn er í miklu vanda og deilurnar halda áfram að magnast. Undanfarið hefur verið töluvert skrifað um þetta á bloggvefjum landsins og fyndið hvernig margir frálslyndir telja sig hafa einkarétt á að fjalla um flokkinn eða hafa skoðanir á flokknum.
Eins og þeir hafi ekki skoðanir á öðrum flokkum!
![]() |
Frjálslyndir í ólgusjó |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.10.2007 | 08:17
Komnir með leið á sjónvarpsdagskránni
![]() |
Leitað árangurslaust að strokuföngum í alla nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.10.2007 | 08:58
Meint vinnufíkn
Það þarf að segja mér þetta svona 2-3 sinnum áður en ég fer að trúa þessu. Yfirleitt hafa nú Danirnir ekki verið þekktir fyrir of mikla hörku í vinnunni.
Ef þetta er vandamál í Danmörku, hvernig er ástandið hérna? Ég þekki nú þónokkra góða vinnualka.
![]() |
Vinnufíkn vaxandi vandamál í Danmörku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.10.2007 | 21:21
Betri forrit í símann minn, takk!
Hvernig stendur á því að menn eru ekki búnir að búa til almennilegt platform, þar sem hægt er á mjög einfaldan hátt fá sér fjölmörg forrit?
Varðandi kortakapphlaupið er alveg ljóst hvert menn eru að stefna í næstu skref en þar er líka nokkuð merkilegt að menn virðast allir vera að hlaupa í sömu átt. Afhverju eru þessir farsímaframleiðendur ekki að láta sér detta eitthvað annað?
Það fyndan er að líklega er einn frumlegasti síminn sem fæst í búð Símas, gsm frá Doro. 5 takkar, og hægt að hringja í 5 aðila. Það er alveg ljóst að minn símreikngur myndi lækka verulega ef ég fengi mér svona síma. Svo kostaði hann bara 10 þúsund.
![]() |
Nokia kaupir Navteq á 8,1 milljarð dala |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.10.2007 | 21:12
Frábært framtak
Ég er einmitt búinn að taka eftir þessu og að þetta sé bara hjá sumum leigubílum. Þetta er í raun alveg merkilegt framtak, maður hefði ætlað að það væri töluverður kostnarðu í þessum ljósum og að kaupa allan þennan fjölda til þess að keyra um í takmarkaðann tíma.
Mjög gott framtak hjá leigubílstjórum, og einfalt en skapar jákvæða ímynd um þessa starfsstétt.
![]() |
Leigubílar skipta út gula litnum fyrir bleikan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.10.2007 | 11:57
Frábær helgi
Það er óhætt að segja að þetta hafi verið frábær helgi og góð viðurkenning fyrir það starf sem við höfum verið að vinna að í JCI Esju. Alls fengum við 8 verðlaun, þar á meðal sem aðildarfélaga ársins. Undanfarið ár hefur verið mikil vinna og eins og lesendur Pottsins vita, þá var þetta ekki eitthvað sem ég stefndi að en svo á loka metrunum ákvað ég að taka að mér embætti forseta félagsins. Á árinu hefur félögum fjölgað um meira en 100%. Við höfum haldið fleiri viðburði en áður og það hefur almennt verið mikill kraftur í félaginu.
Ég er að sjálfsögðu umkringdur mjög öflugu fólki sem hefur hjálpað mér gríðarlega mikið.
Hvað sem annað má segja þá hefur mér þótt skemmtilegt að starfa í JCI, skemmtilegra en í ýmsum öðrum félagsstörfum sem ég hef tekið þátt í. Ástæðan er einföld að ég hef verið að læra svo mikið á leiðinni. Engin annur félagsskapur sem ég hef tekið þátt hefur haft það sem aðalmarkmið að gera mig að sterkari og betri einstaklingi.
Ég er amk. sterkari einstaklingur eftir atburði helgarinnar, fyrir utan að skemmta okkur á landsþinginu þá höfum var okkur boðið upp á heimsklassa leiðbeinendur.
Nú er auðvitað farið að styttast í þessu ári hjá mér sem forseti félagsins, en það er ein regla í JCI sem heitir "One year to lead", ég má því ekki gegna sama embættinu aftur. Ég má hins vegar gegna öðrum embættum innan míns aðildarfélags. Ég held að ég skilji eftir mig gott bú, að félagið mitt sé sterkara en þegar ég tók við því.
Það sem ég hef haft af leiðarljósi allt þetta ár, er að það sé gaman í félaginu okkar. Ég vona að það hafi tekist.
Ég var svo að rekast á þetta kynningarmyndband um JCI, það er frá Bretlandi en lýsir samt ágætlega minni upplifun af JCI.Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.9.2007 | 16:28
Ekið út á Reykjanes
Ég ók í nótt út á Reykjanes í Djúpinu. Þetta var merkileg keyrsla í kolniða myrkri. Á endanum fannst þetta þó og ég er kominn á staðinn.
Ferðin tók um 4 tíma og var ég með par frá Eistlandi með mér í bíl. Þau sváfu reyndar mest af leiðinni þannig að ekki gafst mikill tækifæri til að spjalla.
Það þarf ekki að taka fram hvað það er mikil fegurð hérna á þessu svæði, mjög gaman að koma hingað og ekki síður að keyra þessa leið með fólk sem er vant að keyra á beinum og breiðum vegum og fannst mikið til þess koma að keyra þetta um miðja nótt.
26.9.2007 | 13:24
Skilmálasúpa Flugleiða
Það er hreint með ólíkindum að Flugleiðir séu nú farnir að krefjast þess að maður skrifi upp á lögfræðiskilmála sem er á við heila laga skruddu og allt á ensku. Þegar ég pantaði mér um daginn flugmiða með þeim, þá var ég krafinn um að skrifa undir skilmála sem voru allir á ensku. Ekki bara það en eftir að hafa skoða þá í 10 mínútur og reynt að smella mig áfram var ég engu nær og þó búinn að lesa ansi mikinn texta.
Eftir að hafa verið gangrýndir verulega í fyrra fyrir að vera með óljósa skilmála, bættu þeir einum lið við þar sem kom fram að fólk yrði að fljúga alla leggina til að miðinn væri gildur.
Nú ætla þeir greinilega að ganga skrefinu lengra og tryggja sig fyrir öllu.
Það getur ekki verið krafa á mig sem íslenskan neytenda að kaupa vöru af íslensku fyrirtæki að ég samþykki þessa sklmála. Þeir geta sjálfsagt krafið mig um að skrifa undir tugi síðna af lagatexta þegar ég kaupi mér flugmiða, en lágmarkið er að hann sé á minni eigin tungu.