Færsluflokkur: Bloggar

Eirríkur rauði - en eina ferðina

Ég neita því ekki að það kom mér á óvart að Eiríkur Hauksson hefði verið fyrir valinu, fyrirfram bjóst ég við að Heiða í Unun hefði farið fyrir okkar hönd.

Ég átti líka von á því að Matta myndi ganga betur, mér fannst það skemmtilega grípandi lag.

Ég held að lagið sem fer sé samt nokkuð skemmtilegt rokklag. Flott hvernig Eiríkur var búinn að læra textann á ensku og söng hann um leið og úrslitin voru kunn.
mbl.is Eiríkur Hauksson verður fulltrúi Íslands í Helsinki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Háskóladagurinn - nú og þá

Ég fór á Háskóladaginn, það var nokkuð skemmtilegt. Minn Háskóladagur var þó skemmtilegri:
  • Þá voru efnafræðigellur í bolum með formúlum á, meðan ég var þarna sá ég gamlan kall benda mjög greinilega með snertingu á formúlu á brjóst hennar.
  • Stærðfræðingarni mættu með skjal sem sýndi ofurlaun stærðfræðinga, en við nánari skoðun kom í ljós að einn aðili var með einhverjar milljónir í laun á mánuði, en hinir fengu bara venjuleg laun.
Ég ákvað nú samt að fara í verkfræði, stærðfræðin heillaði en ég þorði ekki að skella mér í stærðfræði. Flestir vinir mínir ákváðu að skella sér í stærðfræði, reyndar held ég að launa grafið hafi haft lítil áhrif á þá ákvörðun.

Ég hafði reyndar mjög gaman af því að skoða þetta, ég það er mikið í gangi í mínum gamla skóla.
mbl.is Háskóladagurinn í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt útlit Britney

Britney greinilega hress, náði þessari góðu mynd af henni í gær.

Ég held að ferill þessarar hressu söngkonu hlýtur að vera kominn á enda.

Myndin er auðvitað af gamalli vinkonu Sinead O'Connor, og ryfjum upp þegar hún reif myndina af páfa. Ekki það að rökuð Britney sé sambærilegt, hins vegar virðist stúlkan komin í ræsið.
mbl.is Britney snoðklippt á húðflúrsstofu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott sýning

Ég hef farið á þessa sýningu undanfarin ár og þetta er mjög flott sýning.  Ég hef grun um að ég komist ekki í dag, en það verður þá bara að bíða betri tíma.

Mæli með því að fólk líti inn og skoði. 


mbl.is Blaðaljósmyndarar í Gerðarsafni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fátækt Samfylkingingarinnar

Það er að bera í bakkafullan lækinn að fjalla um skrif varaformanns Samfylkingarinnar, fyrst byrjar hann að kasta steinum úr glerhúsi þegar hann byrjar að skrifa um jafnrétti innan flokkanna, en líklega var niðurstaða kvenna á fáum stöðum verri en einmitt hjá Samfylkingunni, þrátt fyrir allt hjal um jafnrétti á góðum stundum.

Ég vitna í ágætan pistil efir Árna Helgason á Deiglunni:

Þegar horft er til þess hvernig Ísland kom út í samanburði við önnur Evrópuríki er ekki annað hægt að segja en að útkoman sé jákvæð. Af 31 Evrópuþjóð árið 2004 var aðeins ein þjóð með lægra lágtekjuhlutfall en Íslendingar, tvær með sama hlutfall en 27 þjóðir með hærra hlutfall.

Í þessu samhengi er gaman að rifja upp skýrslu Hörpu Njálsdóttur, þar sem Samfylkingin byrjað að hampa en sú gleði hvarf fljótlega þegar ástæður fátæktarinnar komu í ljós: húsnæðisverð í Reykjavík. En á þeim tíma var einmitt núverandi formaður Samfylkingarinnar Borgarstjóri.


Snilld!

Hvað er betra enn að vera drukkinn og veiða hákarla?

Er ekki málið að þetta verði næsta verkefni fyrir Andra Capone að veiða hákarla. Við Íslendingar hljótum að vera með okkar eigin hákarla veiðimann.

Annars held ég að Árni Matt ætti að senda (svona for old times sake) sjávarútvegsráðherra Ástrala bréf og spurja hverju það sæti að þeir séu að veiða Hákarla þegar þeir fordæma hvalveiðar Íslendinga.
mbl.is Drukkinn veiðimaður veiddi hákarl með berum höndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað þarf maður að gera til að vera stórkaupmaður?

Þar sem ég veit ekki hvað þarf að gera til að verða stórkaupmaður?  Ég velti þessu fyrir mér þegar ég sé að Skúli Björnsson er formaður stórkaupmanna og vinnur hjá fyrirtæki sem ég hef heyrt af?  

Þetta vekur sem sagt upp spurningar hjá mér hvenær maður er kaupmaður og hvenær maður er stórkaupmaður.

Verða menn stórkaupmenn við að ganga inn í félagið, óháð því hvort maður hafi selt eitt einasta stikki um ævina? 


mbl.is Skúli J. Björnsson nýr formaður FÍS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vill Össur þjóðnýta 10/11?

Bloggkóngurinn Bjarni Már skrifar skemmtilegan pistil í dag á Deigluna þar sem hann veltir því fyrir sér hvort Össur ætli að fara að þjóðnýta matvöruverslanir. Hérna er það sem Bjarni segir:

Hugo Chavez, eða strigakjafturinn með stálhnefana eins og Össur Skarphéðinsson kallar hann, sýndi sitt rétta andlit í gær. Á fundi með öldruðum stuðningsmönnum sínum sagðist hann ætla að þjóðnýta matvöruverslanir sem seldu kjöt á hærra verði en stjórnvöld heimila. Sagðist hann aðeins vera að bíða eftir afsökun til þess að yfirtaka verslanir í einkaeigu sem ráðskast með verðlagið!!!

Skemmtileg deila í uppsiglingu

Það getur verið að það sé ný deila í uppsiglingu á milli þessarar próffessora innan Háskólans. Þorvaldur sættir sig varla við að vera kallaður Dyrhólagatisi.

Nýr Dyrhólagatisti?

Öllum getur skjátlast. En það er misjafnt, hversu illa þeim verður á og hversu vel þeir taka því síðan. Frægt var, þegar Finnur prófessor Magnússon las í maí 1834 kvæði undir fornyrðislagi úr jökulrispum í Runamo í Svíþjóð. Þótti það einhver mesta háðung, sem orðið hefði í norrænum fræðum. Mikill lærdómur leiddi hann í gönur. Finnur var hinn vænsti maður, en lét lítið fara fyrir sér eftir þetta.

Annað dæmi var, þegar Björn Jónsson ritstjóri birti í Sunnanfara 1901 mynd af Gatkletti við Arnarstapa á Snæfellsnesi, en sagði, að hún væri af Dyrhólaey. Keppinautur hans, Hannes Þorsteinsson, ritstjóri Þjóðólfs, var ekki seinn að benda á villuna. En Björn vildi ekki viðurkenna hana, þótt augljóst væri, og kallaði Þjóðólfur hann stundum eftir það „Dyrhólagatistann". Þetta uppnefni var því sárara sem Björn hafði sökum þrálátra kvíðakasta ekki lokið prófi frá Kaupmannahafnarháskóla.
Það var öllu saklausara, þegar Sigurður Skúlason norrænufræðingur gaf út Sögu Hafnarfjarðar 1933. Hann hafði mislesið te fyrir tjöru í verslunarskýrslum og gert Hafnfirðinga fyrir vikið að áköfum tedrykkjumönnum. Jón Helgason orti um muninn á Kristi og Sigurði:

Fyrst kom einn og breytti vatni í vín
og vann sér með því frægð sem aldrei dvín.
En annar kom og breytti tjöru í te
og tók að launum aðeins háð og spé.

Sigurður bar ekki sitt barr eftir þetta. Hann hefði auðvitað átt að sjá villuna, en gerði það ekki.

Alræmdasta dæmið var af Guðbrandi Jónssyni prófessor. Hann skrifaði í útvarpsgagnrýni í Vísi 19. nóvember 1938, að erindi, sem dr. Björn Karel Þórólfsson skjalavörður hefði flutt, hefði verið „efnisríkt, en of þurrt, og flutningurinn var of þver og svæfandi". Sá hængur var á, að erindið hafði fallið niður. Guðbrandur afsakaði sig með því, að hann hefði sofnað við útvarpið og ekki lesið rétt úr hraðrituðu minnisblaði. Hlegið var um allt land. Þetta varð Jóni Helgasyni tilefni til gamankvæðisins „Hraðritunar".
Sigurður A. Magnússon féll síðan fyrir gamalkunnu bragði, þegar borin var undir hann ljóðabók, sem tveir blaðamenn á Vikunni höfðu soðið saman eina sumarnóttina árið 1963. Hann fór hinum lofsamlegustu orðum um bókina, sem prakkararnir nefndu auðvitað Þokur. Þá orti Loftur Guðmundsson:

Dæmdi sig hinn dóma strangi
dárann mesta í glópa flokki.
Alltaf hefði Mera-Mangi
muninn þekkt á skeiði og brokki.

Faðir Sigurðar var kunnur hestamaður og kallaður Mera-Mangi.
Ég sé ekki betur en Þorvaldur Gylfason, sem er einmitt prófessor eins og þeir Finnur og Guðbrandur, sé kominn í þennan fríða flokk. Hann birti hér í blaðinu 10. ágúst 2006 grein um Gini-stuðla, sem áttu að sýna, að tekjuskipting á Íslandi hefði á tíu árum breyst úr því, sem hún var í Noregi, í það, sem hún væri á Bretlandi. En Þorvaldur gáði ekki að því, að Gini-stuðlarnir fyrir önnur lönd voru reiknaðir án söluhagnaðar af hlutabréfum og verðbréfum, eins og venjan er, en þeir Gini-stuðlar, sem hann reiknaði út fyrir Ísland, voru að slíkum hagnaði meðtöldum.

Þetta er svipuð villa og ef Sigurður gamli Skúlason hefði lagt saman tölur um notkun Íslendinga á tei og tjöru, fengið út háa tölu, borið hana saman við tölur um notkun annarra þjóða á tei einu saman og síðan fullyrt, að Íslendingar drykkju miklu meira te en aðrar þjóðir. Samkvæmt nýrri skýrslu Evrópusambandsins um tekjuskiptingu 2003-2004, sem er aðgengileg á heimasíðu hagstofunnar, er tekjuskipting á Íslandi ein hin jafnasta í Evrópu, aðeins jafnari í þremur löndum og ójafnari í 27 löndum.
Þorvaldur ber ekki fyrir sig eins og Guðbrandur, að hann hafi dottað yfir minnisblaði. Þess í stað skiptir hann um umræðuefni, eins og sést á grein hans hér í blaðinu í gær. Þar víkur hann talinu að því, að tekjuskiptingin sé orðin hér eitthvað ójafnari en hún var fyrir 10-15 árum, sem er eflaust rétt, en minnist ekki á samanburð Gini-stuðla fyrir Ísland og önnur lönd, sem var aðalatriðið í máli hans síðastliðið haust. Þorvaldur þrætir þannig enn fyrir, að mynd sín af tekjuskiptingunni sé röng. Höfum við Íslendingar eignast nýjan Dyrhólagatista?

Hvað á að gera?

Hvað á ríkið að gera? Taka á móti þessu liði og vísa því beint úr landi? Velja "klámlega einstaklinga" úr röðinnni á Keflavík og meina þeim inngöngu?

Svo lengi sem þetta fólk gerir ekkert ólöglegt er varla hægt að banna þeim að koma hingað og halda þessa ráðstefnu.

Stígamót: Klámráðstefnu verði aflýst

Stígamót skora á ráðamenn þjóðarinnar að koma í veg fyrir að þing nærri hundrað framleiðenda klámefnis fyrir netmiðla verði haldið á Íslandi í næsta mánuði.

Bréfið sem er undirritað af Guðrúnu Jónsdóttur, talskonu Stígamóta er stílað á ríkisstjórn Íslands, þingheim, borgarstjórn, lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins og ríkislögreglustjóra.

Í bréfinu segir m.a. að Íslendingar hafi sýnt að þeir vilji ekki fá fulltrúa skipulagðra samtaka lögbrjóta til landsins. Það hafi t.d. verið sýnt í verki þegar fulltrúar Vítisengla gerðu tilraun til að ná fótfestu á landinu. Í bréfi Stígamóta segir að því verði ekki trúað að þessi samkoma verði liðin.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband