Færsluflokkur: Bloggar

Magnað

Mér finnst alveg magnað hvað þeir eru vinsælir, ég fór sjálfur á tónleikana þegar þeir komu fyrir ca. 2 árum síðan. Ég hélt að menn hefðu skolað Deep Purple úr kerfinu. Ég gerði það allan vegnaa. Spurning hvort koma Uriah Heep með setji auka boost í þetta. Maður fær kannski Easy linving flutt almennilega ef maður fer :)
mbl.is Uppselt í stúku á tónleika Deep Purple og Uriah Heep
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Anna hataði móður sína

Þá er þessum parti í sögunni lokið, ég hef stundum stillt á ET þegar þættirnir hafa verið endursýndir á nóttunni. Þar hefur þetta verið aðalmálið og já Britney. Auðvitað hefur verið sýnt frá réttarhaldinu og hinum léttgeggjaða dómara.

Miðað við það sem Anna hefur sjálf sagt um móður sína, hefur hún varla nokkuð með hana að gera. Þær hafa ekki talast við í mörg ár, og Anna grét hástöfum þegar hún lýsti móður sinni sem hræðilegri manneskju.

Svo var það auðvitað spurningin úr hverju hún dó, ýmsir hafa vitnað til þess að hún hafi verið að taka ýmis lyf. Reyndar er þá nokkuð fyndið að það hafi fundið nein lyf í íbúðinni eins og sagt var.

Svo eru það allir þessir elskugar, hún hefur svo sannnarlega ekki verið við eina fjölina felld, ef hluti af þessum ástarsamböndum er réttur.

Nú er það auðvitað næsti þáttur í sögunni, það er málið hver fær barnið. Við eigum sjálfsagt eftir að sjá þann hluta fram á vorið.
mbl.is Anna Nicole Smith verður jarðsett á Bahama eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki mjög spennandi

Ég held þetta sé ekki mjög spennandi þáttur, ég heyrði einu sinni í Beckham sjálfum og þvílíkt leiðilegt enska sem maðurinn talar og þess rödd...

Svo fá þau um milljarð fyrir þetta. Ekki leiðinilegt að fá milljarð fyrir að flytja.
mbl.is Veruleikaþættir um Beckhamhjónin í Hollywood
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frekar hress

Hún hefur alltaf verið frekar hress á þessum myndum sem við höfum séð hana á, ég hef nú meiri áhyggjur hvað er um að vera hjá barngreyinu.  Hvar er það á meðan móðirin hendist inn og út af endurhæfingarstofnunum.
mbl.is Læknar telja Britneyju haldna fæðingarþunglyndi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skipulagið ekki í lagi?

Það er fyndið að Samfylkingin viðurkennir að vera svo sein að eina helgin sem er laus hafi verið sama helgi og Sjálfstæðisflokkurinn er að halda sitt landsþing.

Þvílíkt skipulagsleysi!
mbl.is „Var eina helgin sem var laus"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fátt nýtt undir sólinni

Ég hef fengið svoan símtöl síðan ég skráði fyrsta lénið mitt, þá var ég nógu vitlaus til að setja rétt símanúmer undir og síminn stoppaði ekki hjá mér á eftir.

Núna fæ ég bara svona 1 - 2 símtöl í mánuði, þar sem mér eru boðin hreint ótrúleg tilboð, eitthvað sem ég get ekki hafnað.

Einhvera hluta hefur mér alltaf þótt þægilegra að hafna þessu.

Þetta fólk er augljóslega mjög þjálfað sölufólk og eru með öll rökin. Fyrst reyndi ég að rökræða við þetta fólk og hafna þeim kurteisilega, núna segi ég bara nei takk og legg símann á. Ég nenni ekki að þjarka við einhvern í 10 mínútur um þetta. Ég er löngu hættur að hafa samviskubit yfir því að vera ókurteis.

Svona er maður orðinn ódannaður.
mbl.is Varað við hlutabréfaviðskiptum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað a umboð ætli þetta sé?

Það er eins gott að það komi fljótlega fram hvaða umboð þetta er. Væntanlega liggja nokkur undir grun núna.

Hverrjir ætli hafi verið að selja bíla ótrúlega ódýrt undanfarið? 


mbl.is Grunur um tollalagabrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltof seint!

Það eru allir löngu búnir að gleyma þessu.  Afhverju ætli þau séu að gera þetta svona seint? 

Menn reyna nú að álykta um svona mál á meðan þau eru í umræðunni. Greinilegt að þar á bæ séu menn frekar seinir til.

Heyrði reyndar af því í útvarpinu í morgun að það hafi komið upp í ástarbænum Bolungarvík að bjóða þeim í heimsókn, en það hafi ekki fundis samhljómur í bæjarfélaginu vegna þess að þar njóti menn ásta á gamla máttann :)


mbl.is Æskulýðssamband Þjóðkirkjunnar styður ákvörðun Bændasamtakanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin um sömu helgi og sjálfstæðisflokkurinn?

Björn Ingi segir frá því að Samfylkingin sé að hugsa um að hafa flokksþing sitt á sama tíma og Sjálfstæðiflokkurinn er með sinn Landsfund.

Það væri alveg fráleitt hjá þeim að halda sinn fund á sama tíma, fyrir báða aðila.

Tími Landsfundar Sjálfstæðisflokksins, var ákveðinn ca. við lok seinasta. Það er nú ekki eins og þeim vanti helgar til að halda sitt þing og fá þá að njóta sinnar umfjöllunar í fjölmiðlum.

Algjört klúður

Greinilegt að fyrirtæki þurfa að spyrja andlit sýn áhugaverðra spurninga eins og hvort þeim finnist maturinn eða varan yfir höfuð vera góð. Gaman af því að vera með andlit fyrirtækisins sem getur svo alls ekki notað vöruna.

Þeir hefðu átt að horfa á einhverja þætti með Newlyweds, þar hefur væntanlega komið í ljóst hvort hún væri að kaupa mikið af Pizzum.
mbl.is Andlit pítsukeðju með ofnæmi fyrir pítsum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband