Færsluflokkur: Bloggar

Norðmenn seinheppnir

Norðmenn eru greinilega mjög seinheppnir með listaverkin sín, alltaf verið að stela þeim. Maður spyr sig hvort íslensku málverkin séu svo mikil klessu málverk eða hvort þeim sé einfaldlega betur gætt. Íslendingar ættu kannski að velta fyrir sér að gæta helstu málverka betur.
mbl.is Milljónarmálverki stolið í Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÍBV lagið á heilanum

Af ástæðum sem ég greini ekki frá hér, er ég með ÍBV lagið á heilanum.  Það vill til að þetta situr ekki mjög djúpt á sálinni enda held ég ekki sérstaklega með neinu liði í íþróttum. ÍBV lagið var hins vegar kyrjað um helgina af miklum krafti.

Ekki mjög spennandi

Ég get ekki sagt að þetta stefni í að vera mjög spennandi listi hjá Frjálslyndum þetta árið. Magnús Þór sem er eins umdeildur og hægt er að vera og svo pólitískur flóttamaður sem hefur verið í álíka mörgum flokkum og Kristinn H. Gunnarsson.
mbl.is Magnús Þór og Jón í efstu sætunum hjá Frjálslyndum í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott hjá Bónus

Það var mjög flott hjá Bónus að lækka virðisaukaskattinn strax, að sjálfsögðu geta þeir ekki gert það raunverulega en gera það í formi afláttar sem er sýndur við hvern hlut. Þetta hefur óneianlega vakið athygli á þessari skattabreytingu og minnir okkur á hversu góð áhrif þetta mun hafa á heimilin. Sérstaklega stór heimili sem þurfa að kaupa mikið inn.

Snilld

Ég veit ekki hversu ánægt fólk hefur verið að hringja í hann og komast að því að um var að ræða grín. Snilldar hugmynd hjá félögum hans, greinilega hugmyndaríkir menn hér á ferðinni.

Nú er spurning hvort Davíð hefni sín ekki, mæli samt ekki með aðferðinni sem var notuð fyrir norðan, þegar þeir hentu stelpunum í skottið.
mbl.is Tannlækningar í heimahúsi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umhverfsivernd í hávegum höfð

Það er greinilegt að umhverfisvernd var í hávegum höfð í gærkvöldi, bæði Happy feet og svo heimdildar myndin hans Al Gore, á palli.

Annars var löngu kominn tími á Scorsese kallinn.
mbl.is Scorsese fékk loks Óskarinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óli frændi orðinn klerkur

Nota tækifærið og óska Óla frænda til hamingju með daginn.  

Fréttablaðið, 25. feb. 2007 16:00

Yngsti klerkur landsins

Það verður stór stund í lífi Ólafs Jóhanns Borgþórssonar þegar hann verður vígður til prests. Auk þess markar vígsl-an önnur tímamót, því Ólafur Jóhann er aðeins á 26. aldursári og verður því yngsti prestur landsins. „Ekki þó frá upphafi," áréttar hann. „En þetta er sannarlega skemmtilegt þótt það sé auðvitað aukaatriði í sjálfu sér."

Ólafur er Eyjapeyi og ákvað það fyrir margt löngu að gerast prestur. „Ég ákvað það þegar ég var í 8. bekk og hef haldið nokkuð fast í það síðan. Það verður því ekki síst skemmtilegt að fá brauðið í ljósi þess að ég hef stefnt að þessu lengi." Þótt Ólafur Jóhann hafi lengi haft áhuga á trúmálum er hann ekki kominn af mikilli prestaætt. „Ég á einn fjarskyldan ættingja sem er prestur. Áhugi minn á starfinu kviknaði þegar ég var ungur og starfaði mikið í æskulýðsstarfi kirkjunnar í Vestmannaeyjum.

Þar fylgdist maður með starfi prestanna og því sem fylgdi, þar á meðal að taka þátt í stærstu stundum í lífi fólks. Prestar vinna að góðum hlutum og auðvitað á trúin ríkan þátt í þessu; að boða hinn æðsta boðskap er skemmtilegt og krefjandi verkefni sem mig langar að taka þátt í."
Ólafur Jóhann verður vígður til Seljakirkju og stígur því sín fyrstu skref í prestsskap í Reykjavík og líkar það vel.

„Ég er mikill landsbyggðarmaður í hjarta mér og vissulega væri spennandi að fara út á land, en hér í borginni er líka nóg af fólki. Ég hef starfað í Seljakirkju í hartnær tvö ár, sinnt æskulýðsstarfi og fleiru, og kann vel við mig í þessari sókn."
Ólafur býst við að halda upp á daginn með fjölskyldu sinni. „Við eigum sjálfsagt eftir að gera eitthvað skemmtilegt saman. Ég hlakka mikið til, þetta verður ábyggilega góður dagur og það er mikið og spennandi starf fram undan."

 


Bloggar í ritarann

Alltaf gaman þegar bloggurum gengur vel, en ég sé að femíniski bloggarinn Sóley Tómasdóttir er orðin ritari flokksins.

Til hamingju Sóley, þú ert væntanlega einu skrefi nær að bjarga heiminum :)
mbl.is Steingrímur endurkjörinn formaður og Katrín varaformaður VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýjir staðlar

Sé þetta raunin hljóta aðilar að færa sig yfir í nýja staðal, til dæmis Ogg sem er að mörguleiti betri staðall. Það er alveg út í hött að fyrirtæki séu að greiða fyrir þetta.
mbl.is Einkaleyfisdeila gæti haft víðtæk áhrif á fyrirtæki sem nýta sér MP3-tæknina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvískynjungsháttur

Nú eru þeir að íhuga að hætta sýningu á "ljósbláum" myndum.  Skemmtilegt orðalag!  Þeir eru ekki að bjóða upp á klám heldur "ljósblátt". 

Svo afsaka þeir sig með eftirfarandi orðum:

"Þessar kvikmyndir séu frá viðurkenndum söluaðilum og framleiddar með löglegum hætti."

Ha! Hvað eru þeir að meina, er ekki klám bannað á Íslandi?  Þessir aðilar sem þeir hentu út fyrr í dag, framleiða einmitt "löglegt klám". Hvernig verða menn svo viðurkenndir söluaðilar á klámi?

Þetta er auðvitað tvískynjungsháttur af verstu sort.


mbl.is Eigendur Hótel Sögu vilja hætta að sýna ljósbláar myndir gegn gjaldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband