Færsluflokkur: Bloggar

Aukning í fríblöðunum

Þetta eru jákvæðar fréttir, að Íslendingunum skuli vera að ganga betur í Danmörku með fríblöðin. Þetta eru strákarnir okkar :)

Talandi um Kaupmannahöfn, þá voru eigendur Café Conditori Copenhagen að selja staðinn, þau eru búin að reka þetta í 10 ára og hefur náð gríðarlegum vinsældum. Þau voru frumherjar í að breyta bakaríum úr því að vera bara bakarí með eitthvað meira. Reyndar hefur það verið mín tilfinning að þau hafi verið að dragast aftur úr seinustu ár, lifa á gamalli frægð fyrir að vera fyrst í þessum efnum.
mbl.is Dönsku frídagblöðin bæta enn við sig lesendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt í rugli við Flugstöðina

Ég er búinn að koma þarna nokkrum sinnum undanfarið og með þessum breytingum sem eru alltaf í gangi er ég ekkert hissa á einhverjum slysum. Það er ekkert gert til að útskýringa breytingarnar. Ég sá um daginn slys sem hafði orðið eftir að innkeyrslu hafði verið breytt og viðkomandi var að bakka út á veginn til að snúa við.

Það er líka skrýtið að geta ekki beðið eftir farþegum án þess að þurfa að borga. Þú ert þarna "out in the nowhere", nóg pláss í allar áttir en samt er verið að rukka fúlgur fjár eins og á stæðum í dýrum miðborgum.
mbl.is Umferðarslys við Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En Landsvirkjun?

Miðað við þetta kæmi ekkert á óvart að þau hefðu líka leitað til Landsvirkjunnar.

Nú það í raun sjálfsagt að þau leiti hvert sem er eftir peningum, en á móti eiga menn ekki að vera hissa á svona viðbrögðum. Ég efast um að Sjálfstæðisflokkurinn leiti til Baugs um fjárstuðning eftir það sem Jón Ásgeir hefur sagt (óháð því hvort það sé rétt sem hann sagði um flokkinn).
mbl.is VG óskuðu eftir fjárstuðningi Alcan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf að ná tökum á póstinum

Nú þarf bara að ná tökum á póstinum, ríkið hefur á fullu verið að selja frá sér eignir á sama tíma og pósturinn verið á fullu. Það þarf að ná tökum á þessu fyrirtæki og helst að selja það.

Enn er eftir að útskýra fyrir mér afhverju það var svo gott fyrir póstinn að kaupa sér prentsmiðju.

Þetta framtak er mjög gott hjá Valgerði, enda algjör óþarfi að eiga hlut í þessu félagi.
mbl.is Hlutur ríkisins í Baðfélagi Mývatnssveitar seldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjöf til Breta

Það er sjálfsagt búið að kreysta þá nægjanlega mikið til þess að sleppa þeim. Nú eiga Íranir hönk upp í bakið á bretum í staðin fyrir að fá nokkrar kjarnorku sendar í pósti.
mbl.is Forseti Írans segist ætla að láta sjóliðana lausa sem „gjöf til Breta“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Keypti HP

Keli mælti alls ekki með Boðeind og því varð lítið úr að það yrði versluð tölva þar (reyndar stóð það aldrei til). Hins vegar vantaði mér sæmilega ódýra tölvu sem hentaði við fyrir böðul sem flakkar mikið. Niðurstaðan var HP tölva keypt hjá start.

Það sem seldi mér hana á endanum var að hún lút út fyrir að vera nokkuð róbust og án þess að vera mjög dýr.

Mér hefur aldrei áður fundist svona erfitt að kaupa mér tölvu. Mikið úrval á góðum verðum. Allt frekar flatt hvað spekkurnar varða, nánast eins. Til þess að komast eitthvað upp fyrir þessar spekkur varð tölvan allt í einu tvisvar sinnum dýrari.

Vanmetnasta leikkonan

Sandra Bullock er örugglega ein vantmentasta leikkona Holliwood. Ég skil ekki þá bloggara sem hafa verið að tala illa um hana. Svo er hún næstum Íslandsvinur í gegnum þennan óperusöngvara sem gisti heima hjá henni. Sáu menn ekki Miss Congeniality eitt og tvö eða hvað?
mbl.is Sandra Bullock leikur í kvikmynd á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magga ein í bragga

JensGuð segir frá því fundi Íslandshreyfingarinnar á Akureyri. Jens Guð er snilldar bloggari og á sína spretti, þessir ansi góður. Stundum birti ég hluta úr færslum en ég get bara alls ekki gert það í þessu tilfelli. Öll færslan er snilld:

 

  Íslandshreyfingin hægri grænir snú hélt framboðsfund á Bláa hattinum á Akureyri.  Fjórir fulltrúar léku á alls oddi.  Tveir gestir mættu.  Annar var útlendingur sfrá Gambíu em að hélt að hann væri að mæta á íslenskunámskeið.  Sennilega ruglaði nafn Íslandshreyfingarinnar hann í ríminu.  Hann stendur ennþá í þeirri trú að hann hafi verið á íslenskunámskeiði.  Honum þótti kennslugögnin léleg.  Hann lætur gott heita vegna þess að námskeiðið var ókeypis.  Hann lærði samt íslenska orðið grænt.  Veit að vísu ekki hvað það þýðir.  En getur borið það fram. 

  Hinn gesturinn er alsæmerssjúklingur sem man ekki eftir að hafa mætt á fundinn.  Og veit ekki hvernig á því stóð að hann mætti á fundinn.  En fundurinn tókst vel.  Það skiptir mestu máli. 

  Verra þykir mér að Íslandshreyfingin hefur fellt út baráttumál varðandi lánshæfi námsmanna eftir að í ljós kom að það mál komst í höfn fyrir hálfu öðru ári.  En samt.  Menn eiga að standa á sínu. 

 


Næsta skref í markaðsátakinu

Spurningin er hvaða PR fyrirtæki eru þeir með í þessu? Þeir eru að gera þetta lista vel, hvernig þeir eru að láta þetta endast í marga daga. Reyndar er þrettándinn farinn að vera heldur þunnur, ég held að fólk sé alveg búið að ná punktinum og nenni kannski ekki að eltast við þetta lengur.

Spurningin er svo hvort þetta skilar sér í viðskipti til Múrbúðarinnar, það er alls ekki víst. Menn hafa vitað lengi hvaða verð eru að finna í búðum eins og Byko, en það eru fyrst og fremst þægindaverslanir.
mbl.is Múrbúðin kærir BYKO til Neytendastofu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fartölva án P

Ég er ansi hræddur um að menn yrðu frekar hissa ef þeir keyptu fartölvu sem væri ekki með P-i. Núna er verið að selja Acertölvurnar (og fleiri), þær eru allar án goggsins (< > eða meira en og minna en). Í mínum huga er þetta eins og það vantaði p-ið, því líklega nota ég þessi tákn meira en það.

Ég er annars alveg ringlaður í hvaða vél ég á að fá mér, ég fór á stúfana í gær og fann ekkert.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband