Færsluflokkur: Bloggar

Hrós dagsins fær hrokinn

Hrokinn fær hrós dagsins, þetta fær hann fyrir að koma mér inn á torrent.is. Ég hef nokkrum sinnum auglýst eftir aðgengi, enda forvitnilegt samfélag.

Ég vona að þetta eigi eftir að reynast mér jafnvel og þegar snillingurinn PalliH gaf mér Gmail reikninginn minn fyrir að bæta sér við á hotmailið sitt. Síðan þá höfum við svona 2 sinnum spjallað saman á msn, en Gmailið mitt virkar vel, þótt mb. vaxið hægar en gagnamagnið mitt í pósthólfinu mínu.

Broddaklipping

Menn segja að tískan fari í hringi, en ansi er langt síðan broddaklipping var í tísku. Sjálfur var maður með brodda, og er þetta líklega í einuskiptin sem gel fór í hárið á mér, sem og eina skiptið sem gert eitthvað við hárið á mér regulega. Þess má geta að broddatímabilið varði mjög stutt í mínu tilfelli fyrir vikið.

Ólíkt mörgum tísku greiðslum, voru broddarnir ekkert alsæmir. Síðan þá hafa menn tekið upp ýmsar greiðslur, meðal annars einhvers konar mini-hanakamb.

Ég veit ekki alveg samt hvernig ég tæki bankamanni með brodda.

Kemur lítið á óvart

Það kemur lítið á óvart að Kristrún sé í hópi aðstoðarmanna.  Samfylkingunni vantaði góða geymslu fyrir hana, svo hún hlaupi ekki á braut enda öflug kona á ferðinni með mikla reynslu.

Þar fyrir utan er hún örugglega rétta manneskjan í starfið. 

Á næstunni hljóta að fara að detta inn aðrir aðstoðarmenn.  Menn hafa verið með alskonar skemmtilegar kenningar um aðstoðarmenn Sjálfstæðisflokksins.  Flestar út í bláinn, að því er ég held.


mbl.is Kristrún Heimisdóttir ráðin aðstoðarmaður utanríkisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórn þingsflokks Frjálslyndra

Það var nokkuð skemmtilegt að heyra um stjórn þingsflokks Frjálslyndra
samanstandi af 3 þingmönnum af 4 þingmönnum Frjálslyndra.  Eini
sem er ekki í stjórn er
formaður flokksins.  

Hvað ætlar framsókn að gera?

Ég var að lesa grein eftir bloggvinkonu mína, Salvöru.  Hún er að benda á strákaplottin innan framsóknar. Ég er sammála Salvöru, ég hef ekki heyrt neitt hvernig flokkurinn ætlar að byggja sig upp og ná aftur vopnum. Eina sem ég hef heyrt er sú öfluga stjórnarandstaða sem flokkurinn ætlar að veita.   Það eitt og sér dugar auðvitað engan veginn, flokkurinn þarf að breyta ímynd sinni.

Það er nokkuð merkilegt að í helgablaði DV er nú opnu viðtal við Guðna Ágústsson.  Hvernig má það vera að fyrsta prímadonnuviðtal við nýjan formann Framsóknar sé í þessu blaði.  Er þetta ekki blaðið sem felldi Framsókn?  Hefur eitthvað breyst á þessum fáu dögum sem eru liðnir frá kosningum, eða var allt þetta tal tilliástæða?

Viðtalið sem slíkt er mjög áhugavert, þar segir Guðni meðal annars að Halldór hafi ekki treyst sér sem arftaka, Halldór hafi verið sterkur og virtur stjórnmálamaður lengst af sínum ferli og að Ingibjörg hafi valið besta kostinn með því að fara í stjórn með Sjálfstæðisflokknum.  Guðni fer heldur ekki mjög fögrum orðum um VG, sem er nú eins og þeir í stjórnarandstöðu. 


Hvað með eftirfylgnina?

Ég velti fyrir mér hvernig póst og fjarskiptastofnun fylgir eftir þessum leyfisveitingum.   Maður heyrir alltaf mjög falleg loforð um útbreiðslu og svo framvegis en svo heyrir maður einhvern veginn minna af því hvernig efndir eru hjá mönnum. 

Þetta er sérstaklega merkilegt í ljósi þess að þetta er hluti af þeim hlutum sem eru metnir þegar fyrirtæki eru metin.  Við heyrðum um daginn af skúffufyrirtækjum frá Sviss sem voru með miklar hugmyndir um að framkvæmdir hér á landi, án þess að vera með nokkra starfsemi.  Afhverju ætli þessi Svissnesku fyrirtæki hafi áhuga á að byggja dýrt dreifikerfi upp um fjöll og fyrnindi á Íslandi?  Ég efast um að við sæjum fleiri senda en á þéttbýlustu svæðunum, ef þeir gerðu þá svo mikið.

Ég tek það fram að ég er ekki að tala um Nordisk Mobil, það getur vel verið að þeir séu með miklar áætlanir á prjónunum og ætli að standa við þau loforð sem þeir gáfu. 


mbl.is Nordisk Mobil Ísland fær tíðniheimild fyrir langdrægt farsímakerfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðir punkar hjá 2000 kallinum

Las grein eftir Ástþór Magnússon í morgun, þar sem hann lýsti samskiptum sínum við símann. Fyrir utan hefðbundnar upphrópanir hjá kallinum voru nokkuð merkilegir punktar hjá honum.  

Síminn ber auðvitað ábyrgð á því að gera reikisamninga við traust fyrirtæki, og fyrirtæki sem taka á svona vanda.  Það er algjörlega óásættanlegt að vera kominn með símann sinn í þær aðstæður að það er verið að rukka menn um stórar upphæðir án þess að ráð við nokkuð.

Það er líka nokkuð merkilegt að það skuli vera margfalt dýrara að hringja úr símum erlendis frá en að taka á móti þeim.  

Sjálfur hef ég stundum einfaldlega keypt mér frelsiskort þegar ég hef ætlað að dvelja einhvern tíma, það er alveg ljóst að 2000 kall fyrir frelsiskort eru smáaurar miðað við kostnaðinn sem er stundum eftir svona ferðir.   


Naddaq á íslandi. Gott mál?

Ég veit ekki hvort það var hugmynd manna að íslenski verðbréfamarkaðurinn myndi lenda ofan í vasa bandarísku risana hjá Nasdaq. Ég er hins vegar ekkert viss um að þetta sé slæmkt fyrir Ísland, væntanlega eykur þetta enn áhuga á íslenskum bréfum og opnar aukin tækifæri fyrir íslenska fjárfesta til að fjárfesta erlendis á einfaldan máta.
mbl.is Nasdaq yfirtekur OMX
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árás á torrent.is

Þegar ég les þetta lítur þetta frekar út sem árás á torrent.is en á leikinn. Það er amk. mikið gert úr því að þetta sé að finna á síðunni torrent.is. Síðan hefur verið þyrnir í augum margra. Leitað hefur verið leiða til að stöðva hana en hingað til hefur ekki orðið árangur af þeim tilraunum. Þetta er því ný leið til að ráðast á síðuna.

Torrent.is drefir bara efni sem notendur setja inn og hafa áhuga á að vera þarna úti, einhver þarf að halda þræðinum lifandi og aðrir að sækja. Það er enginn munur á að þetta sé þarna inni frekar en á erlendum torrentum, notendur geta jafnauðveldlega sótt þennan leik þangað. Væntanlega munu stjórnendur torrent.is eyða þessum torrent út, þannig að dreifing verður stöðvuð. Það eru varla sérstakar fréttir að svona efni sé til, nóg er af svona hlutum á netinu fyrir þá sem hafa áhuga á að leita að því.

Að lokum enda ég þessa færslu eins og aðrar sem fjalla um torrent.is auglýsa eftir aðgangi. Ég vona að enginn falli í þá gildru að veita mér þann aðgang, en og aftur finnst mér það fyndið að af þeim 18 þúsund notendum skuli ég ekki þekkja neinn. Ég þekki greinilega ekki nógu mikið af tölvunördum (já eða núna klámhundum).
mbl.is Nauðgunarþjálfun á Netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta hægt?

Ótrúlegt að þetta skuli vera hægt! Maður þarf greinilega að fara að skoða photoshop eitthvað.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband