20.5.2007 | 12:25
Dottið í tísku
Það virðist dottið í tísku að gera eitthvað við blessuðu hafmeyjuna, amk. er þetta í þriðja skipti sem eitthvað er gert við hana á stuttum tíma. Maður væri ekkert hissa að hún ætti eftir að lenda fleiri skakaföllum á næstunni.
![]() |
Litla hafmeyjan færð í klæði múslima |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.5.2007 | 12:21
Flott hjá Jóni
Ég er mjög stolltur af honum að fá stöðu við svo góðan háskóla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.5.2007 | 12:17
Þingvallastjórn skal barnið heita
Þessari nafngift er klárlega beint að fyrverandi seðlabanka á væntanlega að rífa í hár sitt og skegg út af þesar nafngift. Svo hlakkar í þeim reyndu að koma þessu nafni á.
Fréttamaðurinn Óli Björn gerir þetta að umtalsefni á blogginu sínu, þar kallar hann þetta PR - Stríð! Ekki veit ég hvernig þetta PR-stríð birtist mönnum, en hingað til hefur það birst þannig að fáeinir bloggarar hafa skrifað um það.
Það er samt mjög gott sé það rétt að þessar umræður séu komnar það langt að menn séu farnir að hafa áhyggjur af nafngiftinni. Bendir nú til þess að menn séu að smella saman seinustu hnútunum.
![]() |
Fundað um stjórnarmyndun á Þingvöllum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.5.2007 | 11:53
Stjórnarmyndun
Stjórnarmyndunarviðræður eru merkilegt ferli, framsóknarmenn saka nú sjálfstæðisflokkinn um að hafa verið að makka bak við tjöldin en vissu þó allan tímann af því að slíkt væri í gangi. Jón Sigurðsson hamrar inn hversu mikið fífl hann var á meðan á þessu stóð.
Á hinn bóginn hefur Geir komið fram af miklum heilindum í þessu. Ef hann hefði verið að spila eitthvað spil hefði hann væntanlega beðið með að segja frá því að viðræður stæðu yfir með Samfylkingu. Ef það hefði verið spil, hefði hann látið nokkra klukku tíma líða, sagt þá að hann hefði hringt í Ingibjörgu og að lokum hitt hana um kvöldið. Hins vegar upplýsti hann strax um það, á fundinum að hann hygðist ræða við hana, skellti sér svo í að ræða við hana.
Það kemur heldur ekki á óvart að það væru umræður um að þetta hafi farið fram að hluta fyrir kosningar, en hefði stjórnin fallið og VG og Samfylkingin fengið nægan meirihluta til að fara í stjórn er ekki nokkur vafi að það hefði verið raunin frekar en að fara í stjórn með Sjálfstæðisflokknum.
Það eru líka mjög áhugaverðar pælingar með að þessi stjórn verði hægrisinnaðri en sú seinasta, það á auðvitað eftir að koma á daginn. Hvað eru Framsóknarmenn að meina með þessu? Að þeir séu vinstramegin við Samfylkinguna?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.5.2007 | 14:28
Þingflokksherbergin
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.5.2007 | 14:04
Steingrímur J og framsókn
Hitt sem kom mér ekki síður á óvart var hversu fljótur hann var að gefa eftir í sínum helstu stefnumálum og það í fjölmiðlum. Stóriðjustefnan mátti svo gott sem halda áfram amk. þau verkefni sem núna eru í gangi. Það er nú ekki lítil stóriðja sem er í kortunum ef það allt nær fram að ganga.
Það er nokkuð hætt við að vinsældir Steingríms muni dala í kjölfarið.
Framsóknarmenn einnig hafa komið mér nokkuð á óvart, það var aldrei neitt leyndarmál frá degi eitt að Sjálfstæðisflokkurinn væri að ræða við aðra flokka. Þetta kom meðal annars fram í fjölmiðlum. Formaðurinn var hins vegar ekki að ræða við aðra. Svo hvernig á að kenna Baugi um hvernig er fyrir þeim komið. Var meira mark takandi á DV á þessum degi en öðrum dögum? Var meira mark tekið á DV þennan dag en öðrum snepplum sem bárust inn um lúguna á þessum degi? Ég leyfi mér að efast um að þetta hafi haft mikil áhrif.
17.5.2007 | 12:45
Bloggflótti
Sjálfur hef ég sýnt ákveðinn bloggleiða, amk. hef ég ekki haft mikið að segja hérna undanfarna daga. Samt hafa verið áhugaverð mál í gangi, meðal annars Baugur vs. Björn og úrslit kosningana.
Ég ætla samt ekki enn að lýsa yfir bloggstoppi, en kannski hægagangi þangað til að maður dettur í gírinn. Það gæti verið síðar í dag og það gæti verið eftir nokkrar vikur.
Svo ég segi nú eins og Framsóknarmennirnir, þá verðið þið fyrst til að frétta af því.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
12.5.2007 | 09:01
Kosningabaráttan að hefjast
Svona á kosningabarátta að vera.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.5.2007 | 15:13
DV hamrar á Jóni Bjarnasyni
Nú auglýsir DV á fullu í dag eftirfarandi:
Jón Bjarnason, þingmaður vinstri grænna, leigir íbúð af Blönduósbæ á 52 þúsund krónur á mánuði. Um tuttugu eru á biðlista eftir íbúð hjá bænum. Jón segir ekki hafa verið biðlista þegar hann flutti í íbúðina fyrir átta árum. ...
Bloggar | Breytt 12.5.2007 kl. 01:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)