Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Yahoo.is til sölu

Dv segir frá því að Yahoo.is sé til sölu. Byrjunar verð er 100.000 USD.

Hýsingarfyrirtækið Gíraffi stendur fyrir sölunni, en að sögn Garðars Arnarssonar, kerfisstjóra, hafa nokkur tilboð borist í lénið. Ekki fæst þó upp gefið hversu há tilboðin eru.

Sé hins vegar skoðað boðin á ebay kemur í ljós að enginn hefur sýnt þessu áhuga.

Líklega er þetta frekar tilraun hjá þeim félögum til þess að kynna sitt littla hýsingarfyrirtæki.  Það er alveg ljóst að fáir hafa áhuga á að eiga slíkt lén, enda réttur Yahoo inc sterkur og fáir sem hafa áhuga á að standa í málaferlum við þá. 


Bækur fyrir MILLJÓNIR

Er einhver að kaupa bækur fyrir milljónir?  Ég hef stundum farið inn á þessar fornbókamarkaði og þar sé ég rykfallna kalla, selja rykfallnar bækur.  Flestar sem kosta hundrað kalla.

Maður sér þessar búðir hverfa hverja á fætur annari, þegar þessir kallar fara á ellilaun.

Það er rosalega erfitt að átta sig á því að það sé verið að selja bækur á þessum gríðarlega háu upphæðum.   


mbl.is Stærsti bókastuldur Íslandssögunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árásum lokið

Árásunum í dag minntu á í gamla daga þegar blogger lá reglulega niðri.  Á þeim tíma voru örfáir menn sem voru að uppfæra vefina sína, fyrst og fremst þeir sem voru að nota önnur kerfi.

Já, í þá gömlu góðu daga árið 2000 :) 


Góðverk World class?

Var að hlusta á Dísu í World Class í morgun útvarpi Rásar 2, á henni að heyra virtist þetta nánast vera hugsjónastarf! 

Það er auðvitað rétt hjá henni að með aukinni hreyfingu eru þau að spara ríkinu fullt af peningum, hins vegar kostar það um 5.000 þúsund á mánuði að vera hjá þeim á ódýrasta taxta. Svo varla er um mikið hugsjónarstarf að ræða. Þau moka inn á nýársheitin um hver áramót, fólk sem dugar oft í 1-2 mánuði en heldur svo áfram að borga enda með samning til eins árs.

Svo sagði hún að það væru mjög fá tilfelli um að fólk nýtti sér ekki kortin. Trúir því einhver?  Bara með því að horfa í kringum sig, sér maður fjöldann allan af stuðningsaðilum við þessar stöðvar.  Hún sagði að allt væri gert til þess að halda í þessa einstaklinga.

Hvernig ætli sé staðið að því?

Í fyrra var ég einn af þessum stuðningsaðilum.  Byrjaði af krafti og hætti svo eftir mánuð.   Varð ekki var við að það hefði nokkuð verið gert til að halda í mig.

Ekki að þetta hafi verið nokkrum öðrum að kenna en mér. Hins vegar er ekki hægt að segja að það hafi verið gert eitthvað til að halda í mig.  Í raun hefðu þeir getað gert ýmislegt ef þetta væri raunverulega það sem WC vildi.  Þeir vita nákvæmlega hvenær og hvar hvert kort hefur verið notað, t.d. gætu þeir sent mér bréf eða tölvupóst, þar sem ég væri hvattur til þess að mæta eða boðið upp á eitthvað til að koma mér af stað aftur.

Hins vegar græða þessar stöðvar mest á mönnum eins og mér, sem byrja með krafti og detta svo út.  Peningar í áskrift og enginn kostnaður á móti.

Þeir mega eiga það að í þessu afskiptaleysi, þá gerðu þeir enga tilraun heldur til að halda í mig, þegar kortið mitt rann út.   Maður hefði haldið að eitthvað væri gert, t.d. að senda mér tilboð á sérkjörum ef ég héldi áfram.  Meira að segja þegar ég var stuðningsaðili í Nautillus, fékk ég slíkt boð.  Líklega þarf WC bara ekki á þessu að halda, það er nóg af fólki sem streymir á eigin vegum til þeirra og þeir græða meira á að taka bara þá sem mæta sjálfviljugir, frekar en að bjóða tryggum viðskiptavinum einhver sérkjör.  WC sendi mér þó jólakort fyrir ári síðan, þar sem ég gat nýtt upp í nýtt kort en því var ekki fyrir að dreifa í ár.

Annað sem er skrýtið hjá þeim er að maður getur ekki bætt áskrift aftan við aðra. Ef ég kaupi kort í dag til að tryggja að kortið mitt renni ekki út og ég komist ekki inn, þá er það ekki hægt nema að "geyma" kortið og standa svo í að virkja það sérstaklega. 

Væntanlega förum við fljótlega að heyra árlegar fréttir frá þessum stöðvum að allt sé að fyllast og þau séu að fara að hætta að taka fljótlega við nýjum viðskiptavinum.  Ég hef heyrt þennan söng undanfarin ár, samt hef ég aldrei heyrt um að neinum hafi verið neitað um kaupa kort. 

Auðvitað eru stöðvarnar samt frábærar, ég hef verið mjög ánægður með að æfa hjá þeim (þegar átakið er í gangi).   Hins vegar skal þarf ekki að halda það eina mínútu að þetta sé annað en púra buisness fram í fingurgóma hjá eigendunum og miðað við uppbygginguna er nokkuð upp úr þessu að hafa.


Victoria Beckham að skrifa bók

Vísir segir frá því að Victoria Beckham sé að fara að skipuleggja að skrifa bók.

Victoria Beckham, sem eitt sinn upplýsti að hún hefði aldrei lesið bók til enda ætlar sjálf að skrifa bók, að sögn breska blaðsins Daily Star. Bókin á að fjalla um barnauppeldi fyrir fyrir hana fær kryddpían litlar 300 milljónir króna.

Það eru svo sem engar fréttir að Victoria ætli að græða á því að skrifa bók en nú í nóvember kom út bók eftir hana, þar sem hún kennir konum ýmis trikk og áður hafði hún skrifað sjálfsævisögu.

Þó hún hafi ekki lesið neina bók um ævina, hefur henni aldeilis gengið vel að selja bækurnar sínar og því kannski ekki furða að menn séu tilbúnir að greiða henni vel fyrir verkið.

Hérna eru svo linkar á bækurnar hennar hjá Amazon:
That Extra Half an Inch: Hair, Heels and Everything in Between
Learning to Fly: The Autobiography: The Autobiography


Kraftlaust skaup

Mér fannst þetta vera heldur kraflaust skaup í ár, fáir mjög fyndnir brandarar en nokkrir sem var hægt að brosa í annað út af.  Skaupið verður alltaf þynnra og þynnra með hverju árinu og minna og minna til að sækjast í að glápa. 

Eftir skaupið í fyrra voru svo sem ekkert svakalegar væntingar.

Það er samt ánægjulegt að maður getur horft á það aftur á netinu, manni finnst það alltaf skrýtið að það sé ekki endursýnt.  Þó svo að margir hlutir séu ekki fyndnir í frumsýningu, getur verið að melta þá sé kannski von á betri skilningi.  

Mér skilst að ástæðan séu einhverjir samningar við leikara og sparnaður.  Getur það verið?

Þeir samningar virðast þá ekki ná yfir sýningar í gegnum netið.

Einnig hafa gömlu "góðu" skaupin verið í boði á netinu í lengri tíma, en þá með því að sækja þau af torrentum.  Sjálfur hef ég nú ekki látið verða af því að sækja neitt þangað og velt því fyrir mér að þetta sé kannski svona "bitter sweet" minningar sem maður eigi ekkert að vera að eyðileggja með því að glápa á þetta aftur.  Þetta var amk. fyndið á þeim tíma. 


Gleðilegt nýtt ár!

Ég óska öllum gleðilegt nýtt ár.  Ég er rosalega lélegur í þessum SMS kveðjum, og skild meira að segja símann minn eftir heima.  Því er þetta bara málið.

Stöndum með Tarrentino

Nú verða Íslendingar að standa með Tarrentino! Gleymum veðrinu, skellum okkur út að sprengja :)

Flugeldasalan

Björgunarsveitir hljóta að hafa nokkrar áhyggjur af þeim rúmlega þúsund tonnum sem voru fluttar til landsins í ár (þeir og aðrir).  Það er nánast ekki nokkur séns að það verði selt nokkuð nálægt því sem þeir áætluðu.  Gott árferði og góð jólasala sem áttu að vera vísbending um góða sölu, á eftir að drukkna í rigningunni sem er núna í gangi.

Maður fer auðvitað og verslar flugelda, en ef veðrið verður eins og það var í dag, verður það bara lítið brot af því sem það hefur verið undanfarin ár.  Maður verður nú að sjá dótið sitt sprringa, og vill helst ekki að það verði í næsta húsgarði.

Hitt er annað mál að umræðum um "landráðamennina", sem eru að selja framhjá björgunarsveitunum er skemmtileg.  Ég heyrði viðtal við Örn Árnason um daginn, þar sem hann afsakaði sína sölu annars með að þetta væri frjálst samkvæmt lögum og hins vegar þá væri hann að gefa starfskrafta sína í góð málefni eins og björgunarsveitirnar.  Hann náði meira að segja koma því út úr sér að hann væri alls ekki í samkeppni við björgunarsveitirnar, því hann væri bara með kökur. Fyndið að vera í svona mikilli vörn.

Ég fagna þessum frjálsu aðilum sem eru að selja, þó svo að þeir verði að standast eðlilega samkeppni og merkja verslanir sínar þannig að menn átti sig á því hjá hverjum er verið að versla við.  Þrátt fyrir að björgunarsveitirnar séu með frábært starf og maður vildi ekki vera án þeirra , þá tryggir samkeppnin að þeir geti ekki rukkað mig um hvaða verð sem þeim dettur í hug.   Samkeppnin eykur líka fjölbreytileika og sjálfsagt að menn hafi val um að geta keypt ódýrari flugelda.  

Sem betur fer fyrir björgunarsveitirnar eru flestir tilbúnir að versla við þá og þeir hafa yfirburðarstöðu á markaðinum.   Ég fer alla vegana þangað og kaupi mest af flugeldunum mínum þar en stundum en fer líka á aðra staði og skoða hvort það séu einhverjir skemmtilegir flugeldar í boði.  


Hetjudáð Idolstjörnu

Vísir segir fá því hvernig gestur á tónleikum hafi verið laminn á tónleikum.  

„Það var einhver gaur með fylleríslæti og alltaf að biðja um óskalag og með tóm leiðindi. Hann henti skyndilega Magic dós í gítarinn minn," segir Ingó og bætir því við að hann hafi hætt að spila og þögn hefði slegið á salinn.

Einn tónleikagestur gerði athugasemd við þessa hegðun mannsins en því var svarað með hnefahöggi. Ingó segir að hann hafi heyrt að slagsmálin hafi haldið áfram fyrir utan staðinn með fyrrgreindum afleiðingum.

Það virðist sem þarna hafi verið einhver gestur að reyna að bjarga hlutunum og hafi svo verið barinn í kjölfarið.  

Það er nokkuð merkilegt að það sé yfir höfuð verið að tala við Idolstjörnuna.  Hvað gerði hann þegar gestur á ballinu, sem reyndi að verja hann, var tekinn út og laminn? 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband