Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Húmorsleysi - Fórnalambavæðing

Mér finnst merkilegt að lesa mörg blogg sem eru með þessari frétt, annars vegur eru sumir alveg brjálaðir yfir óvirðingunni, aðrir sótbölva femínistunum  og svo þeim sem finnst þetta bara fyndið.

Eru menn alveg að missa húmorinn?  Hvernig er þetta niðurlægjandi fyrir þessar konur? Á hvaða máta rýrir þetta gildi baráttu þeirra?

Ég held að menn ættu að stíga 2 skref til baka og velta þessu aðeins fyrir sér.  


mbl.is Fegursti femínistinn valinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svefnleysi

Þegar maður hefur hvílt sig jafnvel og um jólin er alltaf skrýtið a byrja að reyna að fara að sofa á eðlilegum tíma.  Maður er búinn að vera að lesa bækur og horfa á sjónvarpið fram á nætur, og svo allt í einu er komin tími til að fara að vakna á eðlilegum tíma og mæta í vinnuna.

Þetta hefur reynst þrautin þyngri þessa 2 daga milli jóla og nýárs.

Það hefur reyndar gengið ágætlega að vakna, hins vegar er maður dauðþreyttur í vinnunni eftir að hafa ekki sofnað fyrr en um miðja nótt. 


Elkó-sölumennska

Fór á Þorláksmessu og ætlaði að kaupa mér LCD sjónvarp í Elkó, ég var sem sagt búinn að sjá sjónvarpið í bæklingnum hjá þeim og lesa mér til um hann. Ekkert meistara stykki en verðið var gott. Allt eins og það átti að vera við einn skjá og helstu tengi sem ég þurfti.

Þegar ég mætti í Elkó, spurði ég hvort skjárinn væri ekki örugglega til. Hann var svo sannarlega til, en svo hófst sölumennskan. Sá sem vildi selja mér skjáinn vildi eiginlega ekki selja mér þann sem ég þó bað um. Alveg sama hvað ég gerði til að segja við manninn að þetta væri skjárinn, þá tók hann ekki neinni tilsögn. Hann benti alltaf á dýrari skjá. Ég hef áður lent í þessu og spurðist þá fyrir hjá kunningja sem vann í Elkó og hann sagði mér að hvatakerfið væri þannig að menn fá nánast ekkert í bónus fyrir tilboðin en geta fengið eitthvað fyrir að dýrari. Siðan þá hef ég nú tekið þessu "ráðleggingum" með nokkrum vafa.

Eftir að í ljós kom að maðurinn vildi bara ekki selja mér skjáinn, sagði ég honum að ég ætlaði að hugsa málið í nokkrar mínútur, fór aftur og náði mér í miða og prófaði annan sölumann. Tilkynnti að ég ætlaði að kaupa viðkomandi skjá, ef það væri eitthvað múður myndi ég labba út.

Næst tóku við tilraunir að selja mér tryggingar fyrir skjáinn. Það var reyndar mun kurteisara en þvinganirnar í skjá sölunni.

Annars fór ég svo á aðfangadag og ætlaði að kaupa síma í Elkó, ég heyrði þá aumustu afsakanir sem ég hef heyrt. Þegar maðurinn spurði hvort það þyrfti að setja Síu á netsímann sinn (sem augljóslega þarf ekki á lan-kapal), þá sagði gaurinn að hann vissi það ekki. Maðurinn sagði honum að menn gætu nú lesið sig til, þá sagði hann að honum væri meina að fara á netið í Elkó. Maðurinn nenti augljóslega ekki að benda honum á að hann gæti lesið sig til á kvöldin, enda myndi hann líklega selja aðeins meira af símum ef hann vissi eitthvað hvað hann væri að selja. Miðað við bónusa er líklegt að þeim tíma væri vel varið þótt hann væri ekki á beinum launum við það.

Annars held ég að peningum Elkó væri vel varið ef þeir myndu bara kaupa gott sölunámskeið af honum Tryggva vini minum. Ég er nokkuð viss um að þeir myndu græða nokkuð vel á því. Líklega hefur samkeppnin aldrei verið meiri í þessum geira, en einmitt núna. Ég er reyndar nokkuð viss um að Max hafi ekki grætt mikið þessi jólin. Maður hefði líklega fengið betri þjónustu með því að fara þangað.


Prestleg vorkun

Eitt af því sem hringir inn jólin eru klukkur dómkirkjunnar og svo messan á eftir.  Nú bar svo við að ég gat ekki annað en vorkennt kvennprestinum sem reyndi að radda.  Fannst mér eins og ég væri sjálfur mættur í útvarpið og farinn að radda, svo slæmt var þetta.

Annars er merkilegt þegar kirkjur nýta þetta tækifæri ekki.  Á þessum eina degi eru bæði augu og eyru manna á kirkjunni. Kirkjurnar fullar af fólki og fjölmargir að hlusta á messu.  Þá er um að gera að flýta sér ekki það mikið með messuna að enginn skilji hvað er um að vera, heldur ekki að hafa þetta svo langt að menn fagna því að fara í messu að ári.

Prestar hljóta að skipuleggja þessa messu betur en nokkra aðra messu. 


Össurarraus - Össur bregst við illur

Ég skrifaði hér fyrir nokkru pistil þar sem ég talaði um í fyrirsögn drykkju Össurar. Margir brugðust reiðir við og vildu vita hvaða sönnun ég hafði fyrir því að hann væri að drekka og skrifa.   Ég hafði það svo sem ekki, enda var drykkja ekki aðalatriði pistilsins.  Hins vegar voru athugasemdir og önnur umfjöllun eingöngu um áfengisdrykkju.

Nú skrifar Pétur Tyrfingsson pistil um Össur, sem Össur skilur á þann veg að verið sé að taka undir áfengishugmyndir á þeim nótum sem ég skrifaði hér um daginn:

Mér hefur stundum gramist þegar stuttbuxnaíhaldið í Borginni hefur afgreitt skrif mín um orkuútrás og þá sjálfa með því að blessaður ræfillinn hlyti að vera á stútnum allar nætur....Framundir það síðasta taldi ég að það væru sérstök hlunnindi sem fylgdu mínum vestfirsku genum að vera svefnléttari en flestir menn. Það gefur furðu mikinn tíma til að lesa og skrifa og vinna - og einu sinni skrifaði ég litla bók, Urriðadansinn, einungis á nóttunni.

Sé blogg Össurar lesið, þá er það ekki furða að það sé afskrifað sem fyllerísrugl. Ævintýrin sem þar birtast minna frekar á reyfarakenndar sögur en hlutir sem eru settir fram af manni með áratuga reynslu af því að vera í stjórnmálum.

Oft veltir maður því fyrir sér hvort Össur væri ekki í betri málum við að skrifa reyfara.  Það virðist ekki skorta á ímyndunaraflið hjá Össuri, og oft gaman að lesa bloggið hans, sem gaman mál en ekki sem blogg stjórnmálamans sem vill láta taka sig alvarlega. 


Gleðiðleg Jól

Ég vil bjóða lesendum bloggsins gleðilegra jóla.  Ég vona að þið hafið það sem allra best yfir hátíðarnar.

Kveðja Tómas Haflðason 

 


Að kaupa pottinn í sekknum

Í dag kom til mín maður sem greinilega var Hollendingur, hann var mjög snyrtilega klæddur og á fínum bíl.  Hann sagði mér frá vandamáli sem hann væri í.  Hann sýndi mér nafnspjaldið sitt, sem ég hélt þó ekki eftir.  Hann hefði verið á sýningu hér á landi og væri á leiðinni út á morgun.  Hann sagði að þeir hefðu verið að sýna potta og hann væri með nokkur pottasett sem hann gæti ekki tekið með sér í flug,  hins vegar hefði hann borgað vsk við komuna til landsins.  Yfirmaður hans hefði heimilað honum að gefa pottasettin en hins vegar þyrfti hann að koma með vaskinn til baka.

Ekki hafði ég nægan áhuga á pottasettum og jafnvel þótt þau hefðu verið gefins.  Ég hafði bara ekkert við 5 sett að gera.  Við fórum því ekkert lengra í umræðunni um hvað það var sem ég átti að gera til að eignast þau.

Hins vegar er maður alltaf tilbúinn að hjálpa og ég sagði honum að ef aðilar í öðrum fyrirtækjum í kringum mig hefðu ekki áhuga gæti hann komið til baka og ég myndi hjálpa honum.

Þegar hann var farinn fór ég að hugsa að ég kannaðist bara ekki við neina sýningu sem væri hérna núna.  Og hver færi að halda sýningu svo rétt fyrir jól? Nú eru kokkar á fullu að elda en ekki kaupa inn potta og pönnur.  Ég ákvað því að googla nafnið á fyrirtækinu og viti menn þá kom ýmislegt í ljós.

Þá kom í ljós að þetta er bara góð saga.   Þetta hollenska fyrirtæki er frægt um alla Evrópu, fyrir nákvæmlega sömu sögu, en þeir eru líka að selja hnífasett.  Þeir segja að verðið sé mjög hátt (hundrað þúsund kall á settinu), þeir séu að missa af lest eða flugi og geti eiginlega gefið settið eða fengið vaskinn til baka.  Alltaf svipuð saga.  Þeir eigi hins vegar 5 sett, sem þeir nauðsynlega verða að losna við (helst öll á einum stað).

Málið er að þeir eru ekki beint að svíkja, verðmætið sem þetta gjafverð er almennt talið eðlilegt miðað við söluverðið á sambærilegum settum (samkvæmt síðunum um þetta) Einhverjar efasemda raddir hafa verið um gæðin og ýmsir greiða hærra verð en aðrir fyrir þau.  Það sem hann gerir er að koma á fölskum forsendum og selja fólki potta sem hefði annars aldrei hugsað sér að kaupa potta.  Hann selur heldur bara ekki 1 heldur 5 sett í einu.  Sé þetta ekki kolólöglegt á Íslandi er þetta amk. ósiðlegt.

Fyrirtækið sjálft segist ekki stunda svona  sölumennsku, og segist nota sjálfstæða söluaðila.  Hins vegar hafa þeir vitað af þessu frá upphafi og hefði verið vilji til að stöðva þessa sölumennsku hefðu þeir fyrir löngu gert það.   Flestir þeir sem kaupa þessa potta gera ekkert í þessu, þar sem þeir eiga 5 sett af sæmilegum pottum á verði sem ásættanlegt.  

Mér finnst rétt að vara menn við þessu.  Hafi menn ekki í hyggju að kaupa 5 sett af pottum, eru menn betur settir að fara bara í næstu búsáhaldaverslun og velja sér potta og pönnur sem örugglega standast gæði og hafa viðurkenndan söluaðila.  Fyrirtækið sem umræðir heitir http://www.berghaus-wwc.com/ og síða með umræðu um þetta svindl er meðal annars að finna hérna: http://robbevan.com/blog/2004/09/16/berghaus-knives-scam.


Er Bílgreinasambandið að taka þátt í verðsamráði?

Ég var alveg hissa á að heyra þessa umræðu, ég hef oft notað síðuna þeirra.  Maður er ekki á kafi bílasölum og veit ekki hvað er góður eða slæmur díll.  Hins vegar er auðvelt að fara þarna inn og finna verðið sem á að vera á bílnum.  Maður hefur þá amk. hugmynd hvort það sé verið að reyna að pretta mann.  

Það er svo allt annað mál hvort maður prúttar út frá þessu eða bíður mönnum eitthvað miklu lægra í bílinn. 

Ég vona að þetta verði ekki til þess að þeir taki þetta út af síðunni hjá sér.   

Verðútreiknirinn 


Uppreisn

Ætli það yrði ekki uppreisn ef einhverjum stjórnmálamanni dytti í hug að nefna þetta.

Ég var einmit að lesa bókina Adventure Capitalist: The Ultimate Road Trip, það kemur fram í fyrsta kafla sú aðdáun að hinum nýríku og klikkuðu Íslendingum sem ætla að sprengja hreinlega upp landið. Ég mæli annars með þesari bók. Þetta er skemmtilegur kall. Verst að maður hafi ekki fattað þetta fyrr. Næsta bók eftir hann sem ég mun lesa er: A Bull in China.. Kaninn er á fullu að vakna yfir Kína, ég held ég hafi aldrei séð meira um viðskipti í Kína. Ég er nú búinn að lesa þó nokkrar bækur um þetta. Þetta verður sjálfsagt skemmtileg viðbót.


mbl.is Flugeldar verða áfram til sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En fjármagnstekjur?

Nú þegar það er í tísku að lifa á fjármagnstekjum er spurning hvort þetta verður líka tengt við þær?  Það getur bara verið gott mál fyrir millana sem eru að lifa á fjármagnstekjunum sínum að fá umferða sekt.

Ég held annars að þær rosalega hækkanir sem hafa orðið á umferðasektum ættu alveg að duga, nema að þeir ætli að lækka sektirnar fyrir þá sem eru með lægri laun miðað við það sem þær eru í dag.   Á einu ári er búið að lækka vikmörkin og hækka þessar sektir upp úr öllu valdi.  Á hverjum degi er verið að nappa ömmur á "ofsa hraða" hérna í borginni.  

Ég held að sektirnar eins og þær eru komi við kauninn á öllum. Fyrir utan hvað það er búið að setja upp myndavélar víða, að menn geta ekkert keyrt eins og bavínar um allt lengur.  Myndavélarnar eru bara of víða til þess.

Mér finnst þessi vikmörk samt vera komin út í öfgar, þótt það sé ekki skekja í búnaði lögreglumanna, þá er samt skekkja í hraðamælum, bara einfaldir hlutir eins og mismunandi dekk og svo framvegis geta gefið smá skekkju.  Um leið og það er búið að herða viðurlögin svona mikið var óþarfi að taka á vikmörkunum í leiðinni.   


mbl.is Skoðað hvort tekjutengja eigi umferðalagasektir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband