Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Eðlilegt

Þetta mál virðist allt vera hið ótrúlegasta, nú ætlar þessi nefnd að setja sig í eitthvað hásæti og ákveða hvaða hús eigi að koma í staðinn.  Hvernig má það vera að þessi nefnd telur sig geta ákveðið fyrir okkur hvað eigi að koma í staðin?

Það er virkilega gaman að sjá umræður um þetta hérna á moggablogginu, þar virðast fordómar í garð SUS helst ráða skoðunum manna á álytinu.  Menn eru á fullu að gera SUS upp skoðanir og að menn séu á móti allri friðun.

Hver er svo þessi mynd af Laugarvegnum sem menn vilja varðveita? Hnignandi verslunargata, sem er í stöðugri samkeppni við kringlur í bænum.   Er það sá laugarvegur sem hefur verið í stöðugri uppbyggingu undanfarin ár, þar sem húsum hefur verið breytt þannig að ekki er hægt að sjá þetta séu sömu húsin?

Svo var mjög áhugavert að það væri hægt að lyfta þessum húsum upp, og byggja undir þau. Er það þá sömu götumynd?

Er réttur þeirra sem eiga húsin, hafa kynnt hugmyndir og gengið í gengum margra ára ferli einskis virði?

Húsafriðunarnefnd hefði átt að grípa strax inn í, og friða þessi hús hefði það verið hennar vilji. Að gera það á 11 stundu eru vinnubrögð sem á ekki að líðast. 

Ég tek því heilshugar undir með SUS og vona að Þorgerður taki ekki mark á nefndinni.   

 

 

„Undirbúningur að uppbyggingu á viðkomandi reit hefur staðið yfir um margra ára skeið bæði að hálfu eigendanna og borgarinnar. Deiliskipulag svæðisins var kynnt, rætt og samþykkt innan borgarkerfisins. Íbúum gafst tækifæri á að gera athugasemdir við byggingaráformin og eigendur lóðarinnar hafa sýnt mikla viðleitni í þá átt að taka tillit til þeirra.“ „Eins er nýlega lokið heildarvinnu við friðun húsa á Laugaveginum og voru umrædd hús ekki á þeim lista sem friða átti. Niðurstöður þeirrar vinnu má skoða í svokölluðum Laugavegsbæklingi sem gefinn var út árið 2005. Ritstjóri bæklingsins er Nikulás Úlfar Másson, núverandi formaður Húsafriðunarnefndar.“ „Ummæli formanns nefndarinnar í viðtali við Morgunblaðið sýna auk þess að nefndin hefur farið langt út fyrir valdsvið sitt við ákvarðanatökuna. Formaðurinn telur þar að nefndin hefði ekki getað tekið ákvörðun um friðunina fyrr en fyrir lægi hvað ætti að „koma í staðinn". Af lögum um húsafriðun er ljóst að hlutverk nefndarinnar er að standa vörð um byggingafræðilegan arf þjóðarinnar, en ekki að vera fagurfræðilegur dómstóll fyrir allar nýbyggingar í miðbænum, eins og formaðurinn virðist telja.“


mbl.is SUS: Laugavegshúsin verði ekki friðuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð grein í mogganum

Um daginn hringdi blaðamaður Moggans í mig og bað um viðtal, vegna ræðunámskeiða JCI, þar merkilega við þetta var að hann var stadddur erlendis, og hringdi í gegnum netið.    Hins vegar var frábært að sjá vinnubrögðin þar á bæ enda var boðið upp á að staðfesta það sem ég sagði.

Hérna er svo greinin:



Kíkið endilega á síðu Ræðunámskeiðsins ef þið hafið áhuga á að taka þátt, það er alveg víst að menn tapa ekki á því að skella sér á ræðunmáskeið, hvort sem menn ætla bara að halda litla ræðu eða kynningu í vinnunni.

Mac is Back

Ég skrifaði um það í gær að ég saknaði umfjöllunar um republikana á Deiglunni, nú hefur loksins komið alvörur replublicaka grein, þar sem Þórlindur Kjartansson fjallar um John McCain.

Í gær skrifaði ég um hvernig Deiglan hefur fyrst og fremst fjallað um Demókratana, en virðast vera fyrst barátta milli svarts frambjóðanda og hins vegar konu.  Það er því nánast ljóst að þaðan munu koma stórar fréttir, hverjar sem þær verða.

Hjá Rep virðist þetta vera sama gamla tuggan, hjartaveilir stresskallar.  Það er því ekki furða að maður sé ekki jafn spenntur yfir þeim.  Þetta er reyndar algjörlega óháð því hvað þetta fólk stendur fyrri, ég skal alveg viðurkenna það :)

Það eru nú nokkuð margir mánuðir eftir af þessar baráttu og nægur tími til stefnu.  


Við hverju var búist?

Maður veit ekki hvernig þessu fólki datt í hug að fá sjónvarpssálfræðing til að hjálpa aumingjans stúlkunni. 

Manni finnst hugmyndin álíka fáránlegt eins og koma með áfengi í heimsókn til manns í afeitrun.  Hvað sem er að henni er augljóst að þetta líferni og athygli sem hún hefur fengið hefur haft veruleg áhrif og einhver svona þáttur hefði aldrie gert neinum gott. 


mbl.is Fjölskylda Britney reiðist Dr. Phil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kær bloggvinur

Í dag fékk ég mjög kæran bloggvin en þetta er Deiglan.  Áður var ég bloggvinur Vefritins, en nú bætist þetta elsta pólitískavefrit við í hópinn. 

Sem fyrsti (og eini Framleiðslustjóri) vefritsins hlýt ég að vera ánægður með að bætast í þennan hóp.

 


Obama er maðurinn

Það hefur verið gaman að lesa Deigluna þessa dagana, hver greinin á fætur annari þar sem gæðum Obama er líst.  Eina sem skortir á er umfjöllun um Republicanana.

Nú seinast skrifar reynir ágæta grein um Clinton og Obama.  Hann endaði greinina sína svona:

Það er ótrúlega langt eftir að þessari baráttu og mikið vatn á eftir að renna til sjávar, það á eftir að vera gaman að fyljgast með aðferðum spunameistaranna.

 


Hvert er braskið?

Það vantar nú eitthvað stórkostlega inn í þessa frétt eins og hún stendur og vonandi er fréttin eitthvað betri í blaðinu sjálfu.  Ég get ekki séð hvað það kemur borginni við að BYR í Kópavogi ákveði að veita eitthvað rosalegt veð í hjalla sem er að hruni kominn. 

Getur ekki verið að BYR sjái verðmætið liggja í lóðinni sem er undir húskofunum en ekki þeim sjálfum?  Ég sé amk. enga sérstaka ástæðu fyrir að BYR sé að lána mönnum gífurlegar fjárhæðir í veð sem standa ekki undir sér.

Hitt er svo með borgina.  Hver er hennar þáttur í þessu máli? Vara er það hlutverk borgarinnar að skipta ser af þvi hvað bankinn er að lana viðskiptavinum sinum.

Eg get ekki beðið með að lesa þessa frett i 24 stundum þegar eg kem heim. Voandi er su frett skyrari. 


mbl.is Lykt af braski í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Millar í bobba

Mér fannst nokkuð merkilegt að RÚV skildi flytja um það frétt að Gnúpur væri í vondum málum.  Hingað til hefur það verið orðrómur, en hins vegar hefur RÚV væntanlega haft eitthvað meira fyrir sér í þessu máli fyrst þeir fóru út í þetta en bara orðróm.

Annars eru orðrómar ansi margir um þessar mundir, meðal annars að margir séu í stórum vandamálum vegna þess að menn hafi tekið feiknalega há lán til verðbréfaviðskipta.   Maður trúir því nú varla að þetta sé svo gríðarlegt, markaðir hafa hækkað gríðarlega undanfarin ár og menn hljóta að vera tilbúnir að mæta einhverjum smá áföllum.

Spurningin er hins vegar hvenær botninum verður náð.  Einhverjir hljóta að fara að sjá kauptækifæri á markaðnum. 


mbl.is Mikil verðlækkun á hlutabréfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Háðir fjölmiðlar og óháðir fjölmiðlar

Borgar Þór Einarsson skrifar ágæta grein í dag um New Hampshire kosningarnar, eitt af því sem hann fjallar þar um er sjónvarpsstöðin Fox, sem hefur meðal annars verið sýnd hér á Fjölvarpinu og ég hef stundum náð að horfa á.

Það hefur verið hrein unun að hlusta á þá snúa út úr veruleikanum og miðla "réttum skilaboðum".

Ég er því alveg fullkomlega sammála Borgari þegar hann segir í lokin:

Ég mæli annars með lestri greinarinnar, en þetta er bara hluti greinarinnar en hann fjallar einnig um niðurstöður kosninga New Hampshire.

Of seint í rassinn gripið

Er það nú ekki orðið of seint að friða þessi hús, þegar verktakinn er búinn að fá öll tilskilin leyfi til að rífa húsið?  Þessi umræða er búinn að vera í gangi í nokkur ár, þannig að húsafriðunarnefnd hefði haft nóg af tíma til þess að friða þessi hús.

Árbæjarsafn hefur nú þegar hafnað að fá þessi hús til sín, enda eiga þeir þessa húsagerð hjá sér.

Ég sé ekki að það sé nokkur eftirsjá í þessum húskofum.  Það er ekki hægt að sjá að það séu nokkur sérstök menningarverðmæti.  Við eigum vondandi eftir að sjá glæsilegar húsbyggingar á þessu svæði.

Það er fyndið að húsið sem á að friða er með risastórt Nike merki á þakinu.   Það fylgir sjálfsagt.

Svo er með þessa götumynd, en þarna fyrir ofan nokkur vegleg hús, og ekki meiri skerðing á götumyndinninni en þegar þau hús voru byggð.

Það er heldur ekkert sem segir að borgir þróist ekki, þessi hús eru börn síns tíma. 

 


mbl.is Ráðherra friði Laugavegshús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband