Nasaháraeyðingar

Heyrði á RÚV áðan þegar ég var á leiðinni í vinnunna nokkuð effectíva leið til að eyða nasahárum.   Mér skilst að Íslendngar sem hafa varið í klippingu í Tyrklandi hafi lent í þessu, það er að eyrnapinni er settur í spritt og svo kveikt upp og stungið upp í nefið.  

Það er nú eitthvað við það að horfa á logandi eyrnapinna, svona rétt áður en honum er stungið inn í mann.

Ætli þeir hreynsi á sér eyrun á sama hátt? 


Dáið harkalegast

Viðar Eggertsson hefur tvisvar skriað athugasemdir hjá mér í kvöld og hef ég verið að velta fyrir mér þýðingum á erlendum heitum á kvikmyndum.

RÚV hefur verið mjög duglegir að þýða titla á myndum, seinastí kvöld heyrði ég auglýs "Fast and the Furious", sem var þýtt sem ofsaakstur. Ég mynnist þess að hafa heryt talað um hana á sínum tíma annað hvort í umfjöllun eða auglýsingum undir öðru heiti. Menn virðast vera nokkuð sér á báti í þessu og að þýða titlana á eigin vegum.

Hitt sem ég rifjaði líka upp, er að flestir titlar eru þýddir á sænsku (var þegar ég bjó þar), það gett allt saman nokkuð vel.

Ég skal alveg viðurkenna að þetta gæti verið eitthvað sem maður yrði vanur, hins vegar finnst mér þetta í raun ekki skipta stóru. Pirra mig helst yfir þessu þegar ég veit ekkert hvaða mynd menn eru að tala um, þrátt fyrir að hafa jafnvel séða hana. Svo ef menn ætla að halda áfram að þýða myndir með einföldum titilum eins og ofsaharði er hætt við að það komi fram slatti af myndum með sama heiti (Speed, Termincal velocity, Velicity. Allar þýða augljóslega aðra hluti, en hætta við að ef menn ætli einhverjar flýtileiðir verði þetta frekar mikill grautur.

Dáið hart II

Í tilefni af umræðu um kvikmyndina dáið hart hér fyrr í kvöld var Dáið harðara sett í tækið í kvöld.  Þar var meðal annars Friður Daltóni Thompson, merkilegur leikari sem hafði náð langt sem lögfræðingur þegar hann gerðist leikari.  Hann er núna í framboði, mæli með heimasíðunni, við tækifæri ætla ég að skoða þetta betur:

egermeðfriðiði.com    

 


Hart andlát

Ekki veit ég hvaða mynd þetta er á tæpasta vaði og hef vætnanlega lítinn áhuga að sjá hana.  Ég hef heyrt umræðu um það í útvarpi að menn eigi alveg eins og þýða þetta eins og að texta myndina sjálfa eða bókatitla bóka. 

Sjálfum finnst mér þetta kjaftæði. Ég efast um að þetta muni skapa ungmennum þessa lands töluverðum vandræðum að viðhalda íslensku.

Þeir óttast kannski svona texta:  

Oki vá gaurar er þetta varla aulýsing ef þið eruð svona stressaðir að fkn vita fkn ræmn, bara hafa þetta á ensku mar.

Ég nota bene stal þessu á netinu og skipti út nokkrum orðum, til að staðfæra.

Ég held samt að þetta hafi enga úrslitakosti.
mbl.is Nýjasta „Á tæpasta vaði“ myndin örugg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögreglan með almannatengslafulltrúa

Mér sýnist lögreglan vera komin í með góðan almannatengsla fulltrúa, amk. er þetta mjög góð saga og eykur sjáfsagt enn frekar hróður Blöndóslögreglunnar.   Þegar fólk er orðið tilbúið að gefa radarvarann sinn. 

Ég hef aldrei notað svona græjur, en ég hélt að lögreglan væri fyrir löngu kominn með græjur sem tækju á þessu. 


mbl.is Vildi gefa lögreglunni radarvarann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrýtin auglýsing

Ég var ekki alveg að fatta þessa auglýsingu sem birtist í Mogganum í morgun og beindist að Árna Johnsen. 

Átti þetta að vera jákvæð eða neikvæð auglýsing?  


mbl.is Æla, notaðir smokkar og rotnandi matarleifar tóku á móti gestum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir í orkunni

Ég sagði frá því um daginn að allir væru komnir í orkuna, Landsbankinn er líka farinn að fjárfesta í orku og lénum tengdu því:

http://hydrokraft.is/ 


Af því lýðræðið virkaði ekki

Það var fróðlet að heyra í talsmanni þeirra, þar sem lýðræðið dugaði
ekki lengur og kosningar dugðu ekki ætluðu þau að grípa til eigin
ráða.    Mér finnast þetta nokkuð merkileg rök fyrir þessu
átaki.
mbl.is Mótmælendur við álver Alcoa-Fjarðaáls í Reyðarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þó fyrr hefði verið

Þetta er mjög fín lexía fyrir þessa ríku smástelpu sem og aðrar í
hennar stöðu.  Fólk sem heldur að peningar geti keypt þeim hvað
sem er, en greinilega átti hún ekki von á öðru en peningar pabba gætu
leyst hana úr þessu.
mbl.is París segist ætla að hætta heimskupörum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Merkilegt skot

Mér fannst þetta merkilegt skot hjá Ágústi, enn merkilegra finnst mér svar frá Runólfi. Í því reynir hann ekkert að svara fyrir þessa ásakanir en er meira að tala um hvernig framtíðin mun meta Ágúst.  

Afhverju svarar Runólfur ekki ásökunum um fjárhagsóreiðu? 


mbl.is Runólfur svarar Ágústi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband