Gaman niður í bæ í dag

Það var mjög gott veður, og margir niðri í bæ. Mikið fjör miðað við oft áður, það hefur einhvern veginn laðað við 17. að vera kaldur og með ringingum.

Ég var sjálfur í allan dag í sölu bás JCI, aldrei áður hef ég blásið í jafnmargar blöðrur þrátt fyrir að hafa tekið þátt í svona skemmtunum 3 - 4 sinnum áður.  Almennt gekk salan mjög vel, við náðum að klára heilan helíum kút og vorum komin ofan í annan þegar ég fór.  

 


mbl.is Hátíðahöld hafa gengið mjög vel um land allt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með hjón?

Ég fékk ábendingu í kjölfarið á fyrri færslu, þar sem ég var spurður hvernig þetta væri með hjón.  Það er alltaf einn skráður fyrir tryggingunni, þótt báðir aðilar séu að tryggja.   Í fjölda tilfella hefur annað hjónið fallið frá en hitt er lifandi.  Hvaða réttindin hefur viðkomandi?  Ætli það falli undir það sem sagt var að menn hafi engan rétt?  

Eins og áður sagði eiga þessir menn eftir að svara ansi mörgu. 


Stutt í sjúkrabílin

Það hefur væntanlega verið lán í óláni hjá þessum hálfvitum að stutt var í sjúkrabílinn.
mbl.is Tóku fram úr sjúkrabíl í forgangsakstri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott hjá stelpunum okkar

Stúlknalandsliðið greinilega að gera góða hluti, með strákarnir eru með buxurnar á hælunum.  Hvernig er það var ekki búið að rétta eitthvað þeira hlut í greiðslunum?  

Annars fannst mér þetta best eftir tiltölulega hrokafullt viðhorf sem kom fram í gær.  Held að frakkarnir hafi haldið að þetta yrði "walk in the park".

Ætli það fjölgi ekki eitthvað áhorfendunum á fimmtudaginn, þegar þær mæta næsta liði?  Ég myndi amk. mæta ef ég hefði snefil af áhuga á knattspyrnu.  Held að ég hafi aldrei nokkurn tíman mætt á deildarleik, og hef mætt á landsleiki þegar mér hefur verið boðið á þá. 


mbl.is Ísland sigraði Frakkland 1:0
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rosalega var þetta leiðinilegt

Mikið svakaleag var þetta leiðinlegt sjónvarpsefni í gær.  Ég hefði allt eins getað horft á eldhúsdagsumræður.  Ég datt inn í þetta rétt þegar Benedikt var að koma í þyrlunni á einhvern ofboðslega tilgerðarlegan hátt.  Svo voru sagðir einhverjir mjög ófyndnir brandarar og salurinn lá í krampa.  Langar og leiðinlegar ræður.

Er ekki hægt að hætta að sýna þessi leiðindi?  Hafa einhverjir áhuga á þessu aðrir en þeir sem voru þarna í salnum, það er leikhúsfólk sjálft. 


mbl.is Benedikt Erlingsson var sigurvegari Grímunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mörgu ósvarað

Ég hef lesið nokkuð í kringum þetta mál og átta mig ekki alveg á því.  Þeir eru búnir að nota þessa peninga sem að þeir væru þeirra eigin í 10 ár eða meira án þess að nokkur hafi vitað af þeim. 

Afhverju var þessum peningum ekki skipt til sinna eiganda bara strax?  Þeir hefðu alveg eins getað átt sinn hluta í VíS.

Eftir því sem ég á mogganum eru nokkuð ströng skilyrði um að menn hafi þurft að vera í viðskiptum við VÍS allan tímann á eftir, amk. fyrirtæki, en svo vissi fólk alls ekki af þessu.  Hvað er málið með það?

Hitt er að þessi hlutir erfast ekki. Ef þetta hefði verið gert strax, er ljóst að viðskiptavinir sem höfðu verið tryggir Samvinnutryggingum á sínum tíma hefðu fengið strax hlutabréf í þessu félagi hefði verið hægt að höndla með þetta strax í upphafi.  Sá hlutur hefði þá erfst, en núna er fjöldi fólks sem hefði átt rétt á þessu látið.

Hvað verðu svo um þá peninga? Dreifast þeir hlutfallslega á hendur þeim sem gerðu allt rétt, svona óaðvitandi?

Eru fleiri svona sjóðir til? 

Þessir menn eru klárir viðskiptakallar og hafa komið ár sinni vel fyrir borði, meðal annars með því að nota þessa peninga eins og um þeirra eigin væri að ræða.  Mér held að menn þurfi að svara eitthvað fyrir þetta. Það eru örugglega til svör við þessum spurningum, þau svör hafa bara ekki komið fram enn þá.


mbl.is Eignarhaldsfélaginu Samvinnutryggingar slitið - eigið fé 30 milljarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðrún Ögmunds í atvinnuleit

Það er greinilegt að Guðrún Ögmunds er í atvinnuleit.  Hins vegar á greinilega ekki að veita henni neina pólitíska bitlinga, en Pétur benti á það í gær að hún  sótti um stöðu skrifstofustjóra skrifstofu barna og fjölskyldumál.   Svo þetta núna.

Það býður henni kannski einhver góð staða á góðum stað.  Atvinnuleysi er um 1% á landinu í dag, þannig að hún verður varla lengi atvinnulaus. 


mbl.is Margrét María Sigurðardóttir ráðin umboðsmaður barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Die hard eða Á tæpasta vaði?

Í gær skrifaði mogginn frétt með fyrirsögninni:

Nýjasta „Á tæpasta vaði“ myndin örugg

Í kjölfarið skrifaði ég einar 3 færslur um nöfn á myndum.

Í dag birtir svo mogginn aðra frétt en nú virðist íslenskuþýðingin með öllu gleymd. 


mbl.is Die Hard valin besta hasarmynd allra tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bolli Thor í Fangelsinu

Ég var að hlusta á Útvarp Sögu áðan og heyrði þá að vinur minn hann Bolli Thoroddsen er að vinna á Litla Hrauni. Það var nokkuð skemmtileg umræða á Útvarpi Sögu, þar sem kom meðal annars fram að japönsk bardagalist sem hann kann víst og hefur lagt stund á getur nýst honum vel.
Bolli á örugglega eftir að standa sig vel í þessu starfi, þetta hefur góð áhrif fyrir stjórnmálamenn að vinna svona störf og kynnast þessari hlið lífsins.

Ekki hægt að ákveða fjölda á forsíðu

Mér finnst nokkuð merkilegt en það virðist ekki vera hægt að ákveða
hversu margar færslur birtast á forsíðunni hjá manni hérna á
moggablogginu.  Veit einhver hvernig á að gera þetta eða er þetta
bara ákvörðun stjórnenda moggabloggsins?

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband