22.6.2007 | 20:03
Þær eru víst heimskar!
Var að horfa á kastljósið þar sem Ragnar Reykás-kona fullyrti að kindur væru gáfaðar, þar sem hægt væri að temja þær.
Það skal enginn segja mér að þessar skeppnur séu gáfaðar, árin í sveitinni sönnuðu það fyrir mér.
Ég get samt alveg trúað því að það sé hægt að kenna þeim eitthvað. Þær eiga sínar sterku hliðar eins og smjúga í gegnum girðingar.
22.6.2007 | 17:43
Ekki blogg í minn síma
Ef það er eitthvað sem mig vantar þá er það að geta sótt ákveðin blogg í símann minn. Þetta hljómar ágætlega og kannsi ágætt síðar þegar þriðja kynslóðin er komin á fullt og maður verður beintengdur allan sólarhringinn.
Þá held ég að verði líka virkilega töff að vera bara ekki með síma.
Annars var fyndið að þegar ég byrjaði að vera með síma, í hópi fyrstu manna, gat ég látið hann hringja í tímum en strætóbílstjórar gerðu tilraun til að stoppa mig að tala í símann í strætó þar sem það truflaði aðra farþega.
22.6.2007 | 16:03
Af hverju ekki?
Ég veit svo sem ekki afhverju einhver ætti að vilja sjá hana í Playboy? Hún hefur sýnt allt sem hægt er að sýna og það án þess að fá nokkuð greitt fyrir það. Þetta virðist hafa verið svona dæmi, að þegar hana hefur vantað athygli þurfi bara að skella sér út nærbuxnalaus og í stuttu pilsi. Svo er það bara djúpu sætin í bensinum.
Hana vantar amk. ekki peningana. 31 milljón króna bens, eru smáaurar miðað við þær tekjur sem hún hefur haft af þessum blessuðu þáttum sínum og verkefni eins og að mæta í partý fyrir greiðslu.
Þetta er auðvitað fyrir utan alla þá peninga sem foreldrar hennar eiga.
Ef hún er alveg á staurnum þarf hún bara að láta taka af sér mynd í fangelsinu, eitthvað blaðið var tilbúið að greiða hundruð milljóna fyri að fá myndir af henni í fangelsinu.
![]() |
Benzinn hennar Parísar gerður upptækur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.6.2007 | 15:45
McDonaldshagfræði
Maður þarf eiginlega bara að panta einn hamborgara í einu þegar maður fer á McDonalds og viðlíka staði. Um leið og pöntunin er orðin meira þá er það nánast undantekningarlaus að menn klúðra þessu eitthvað og það vantar eitthvað. Aldrei hef ég fengið of mikið, nema ef vera skildi 3 servéttur frekar en 2.
Hitt er að leggjast í rannsókn á því sem maður fær í hvert skipti. Formið bíður kannski ekki upp á það um leið og manni er réttur pokinn út um gluggann. Maður getur auðvitað bara beðið og svo ef það vantar eitthvað að bíða þangað til einhver lætur sjá sig eða bara bankað á gluggann. Það er amk. alveg nauðsynlegt að gera eitthvað.
Talandi um servéttur og McDonalds, þá virðast ungbörnin sem hafa alltaf starfað á þessum annað hvort orðin of vandlát eða of dýr í rekstri. Ég veit ekki frá hvaða austantjaldslandi afgreiðslufólkið er niður í skeifu en ég gerið mitt ítrasta um daginn til að biðja um servéttu. Þrátt fyrir að ég hefði talið að það hefði verið tiltölulega augljóst hvað ég var að biðja um, þá gekk þetta ekki fyrr en seint og um síðir eftir að ég var kominn hálfur inn um lúguna og farinn að benda. Leikrænir tilburðir og segja nafnið á öllum tungumálum sem ég kann komust skilaboðin ekki á framfæri.
22.6.2007 | 14:14
Áhugaverðar niðurstöður
Þessu ber auðvitað að fagna og vonandi er lægri launu munur yngir hópa ábending um það sem koma skal, og að menn séu að ráða ungt fólk inn á sambærilegum launum en það taki tíma að vinda ofan af eldri samningum.
![]() |
Óútskýrður launamunur kynjanna 10-12% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.6.2007 | 09:59
Er moggabloggið að deyja
Ég held þó ekki, ég skrifaði þetta svar við færslunni hans Sveins.
Það mun alltaf koma maður í manns stað. Ég hef enga trú á því að það muni deyja eða detta uppfyrir þótt einhverjir nokkrir ákveði að hætta eða flytja sig annað. Það er líka mjög eðlilegt að þetta gangi í bylgjum og að vinsældir bloggsins séu ekki stöðugar. Þetta er búið að vera ofur vinsælt núna í 1-2 ár, en var það líka fyrir 3-4 árum. Munurinn er kannski sá að núna er meir af þjóðþekktum einstaklingum að blogga, það er kannski bara eðilegt líka. Bara hefðbundinn tæknikúrva, þar sem þeir sem eru tæknilega sinnaði ryðja brautina, en svo síðar verður þetta "almenningseign".
Ég veit ekki heldur hvort nokkrir þúsund kallar á mánuði skipti máli fyrir bloggara. Það er eitthvað allt annað sem rekur menn áfram til að blogga en að menn séu að græða á þessu.
22.6.2007 | 09:56
Anti-sportistinn fellir tár
Þetta var mjög gaman í gær, þetta er í fyrsta skipti sem ég horfi á Íslenskt íþróttalið og upplifi að mér finnist það virkilega gott.
Eins og ég skrifaði í gær þá fannst mér algjör sind hvað mogginn sinnti þessu illa. Þetta hefði átt að vera fyrsta frétt á mogganum.
Ég skal fúslega viðurkenna að ég felldi ekki tár enda þótt ég hafi verið ánægður með stelpurnar næ ég nú ekki að lifa mig mikið inn í þetta. Það falla hvorki tár né er mikið öskrað á sjónvarpið.
![]() |
Fimm marka sigur Íslands á Serbum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.6.2007 | 09:37
Saxobanki
Ég hef lengi verið áhugamaður um veriðbréfaviðskipti þótt ég sé nú ekki virkur á markaðnum. Ég reyni hins vegar að fylgjast ágætlega með og fannst þetta námskeið áhugavert. Svo ekki sé talað um ókeypis hádegismatarins.
Að sjálfsögðu er ekkert til sem heitir ókeypis hádegismatur, enda var haft samband við mig fljótlega frá bankanum og mér boðið af opna reikning. Þrátt fyrir að ég segði þeim eins og er að ég væri nú ekki að fara að fjárfesta. Ég var upplýstur að það væri ekkert mál, ég gæti amk. byrjað að fá reikning með gervipeningum, þar sem ég gæti byrjað að trada og prufa gíranir.
Ég er nú ekki byrjaður á þessu en sótti eitthvað forrit í gær. Maður verður sjálfsagt ríkur á örskotsstundu með öllum gervipeningunum sem maður á nú.
Þekkir einhver þennan banka? Eru þetta góðir gaurar?
22.6.2007 | 09:03
Ógeðishornið Einkamal.is
Ég heyrði umfjöllun um Einkamál.is á zúper í morgun, ég gerði mér engan grein fyrir hvað grasserar þarna. Miðað við mat eins sem er á vefnum, var að það væri svona 50% perrar. Ég þekki nokkra aðila sem hafa notað vefinn til að finna makann sinn þarna.
Ein hringdi inn og sagði frá því að hún hafði fundið manninn sinn þarna, en hún hafi bæði hitt menn sem vildu að hún settist á andlitið á og horfðu á taka til nakta heima hjá henni.
Hvað er að?
22.6.2007 | 00:02
Engin umfjöllun á mogganum
Það vekur athygli að Mogginn var með nánast beina lýsingu þegar íslenska karla landsliðið var rótburstað af Svíum en svo núna er ekki einu sinni frétt á forsíðunni um árangur íslensku stúlknanna.
Ótrúlegt nokk horfði ég þó nokkrar mínútur á þennan leik áðan, það er mjög sjaldgæft.
Áfram Ísland - Áfram stelpurnar okkar :)