16.7.2007 | 10:31
Frábært framtak
Um leið og menn eru að berjast um einhverja "smáaura" hérna heima, þegar þessi orku sjóðir eins og Geysir eru að reyna að berjast um innlend fyrirtæki er gaman að sjá árangurinn hjá Enex, þeir hafa verið að taka þátt í mjög spennandi verkefnum og nú seinast þetta.
Þetta verður að teljast með áhugaverðari verkefnum sem íslenskt fyrirtæki hefur tekiðp þátt í. Enex er að verða ótrúlega spennandi fyrirtæki á mjög skömmum tíma. Þeir hafa verið að riðja brautina fyrir íslensku útrásina sem er núna að komast á fullt.
![]() |
Risavirkjun jarðvarma í pípunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.7.2007 | 13:58
Óumhverfisvæni bíll forsetans
LeóM, sem er landsþekktur vegna áhuga á bílum skrifaði í dag ansi merkilegan pistil um bíla og umhverfisvernd. Hann bendir á að bíll forsetans er hugsanlega ekki jafn umhverfisvænn og bent hefur verið á vegna eyðingar á rafhlöðunni. Ekki veit ég hvað er til í því eða hvaða aðferðir hann notar. Hitt er ekki síður merkileg sem hann bendir á en það eru kostir Díselbíla fram yfir bensín, í umhverfislegu sjónarmiði. Það er mjög áhugavert og við höfum séð hér heima, meðal annars oktavían sem fór hringinn í kringum landið á 1 tanki, en það hefur ekki verið leikið eftir af bensín bíl.
Mér skilst að það sé verið að vinina í að endurskoða þessi mál nú hjá ríkinu og ég spái að dísil muni lækka í verði miðað við bensín.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.7.2007 | 18:14
Stílbrot
![]() |
Starbucks lokar í Forboðnu borginni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.7.2007 | 12:24
Tómur bær
Evróvision í gangi, nánast ekki sála á ferðinni. Það er greinilegt að
þjóðvegur 1 hefur verið yfirfullur í gær af sumarbústaðareigendum og
tjaldbúum.
13.7.2007 | 15:35
Frídagur
sama hvert maður hringir, menn eru farnir í frí. Ætli það verði
ekki svoleiðis að maður bara skellir sér sjálfur í frí.
13.7.2007 | 15:25
Ég og viktoría
Við Viktoría höfum verið ágætis félagar ansi lengi, alveg síðan hún vinakði mér um árið og á afmælisdaginn sinn á Öland, þegar ég mætti og tók þátt í prógramminu á afmælinu hennar. Þar sem meðal annars hin knái píanó snillingur Robert Wells, og Lionel Richie spiluðu. Hún var reyndar ekkert að hafa fyrir því að vinka mér sérstaklega þar, en gerði það hins vegar fyrir utan eigin kastala.
Ég hafði svo sem ekki fyrir því að segja henni að það er tæp vika á milli okkar i aldri. Það gerist síðar.
![]() |
Stressandi afmælisdagur fyrir Viktoríu Svíaprinsessu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.7.2007 | 18:57
Össur hress
Össur var að gera góða hluti í fréttunum áðan, að löggan sé að brjóta jafnréttislög með því að stöðva ekki róna en stöðva svo venjulegt fólk sem er að fá sér einn kaldann.
Ég styð össur í þessu, það eru ótrúlega fáir dagar þar sem þetta er í boði. Nágrannar eða aðrir sem þetta fer í taugnarna ár verða bara að bíta í vörina á sér í smá stund.
Skál.
12.7.2007 | 18:54
Afhverju ólöglegt?
Mér finnst þetta mjög merkilegar fréttir, að það skuli eiga að stoppa þetta. Þetta er afgreitt samkvæmt öllum reglum sem gilda í Svíþjóð, ég get varla ímyndað mér að þau séu mikið slakari en þau íslensku. Þarna er hreint ótrúlegtur verðmunur á þessum lyfjum og það þarf amk. að kynna sér afhverju þessi verðmunur stafar.
Nú er ég ekki að segja að það sé okur íslensku lyfjafyrirtækjanna, það er spurning hvort hérna séu skattar, eða lög t.d. um merkingar að kenna. Ég átta mig ekki á það hvaða skildur eru. Það þarf þá að skoða það, hvað er að valda þessum kostnaði.
![]() |
Lyfjastofnun telur vefsíðuna minlyf.net vera ólöglega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.7.2007 | 15:34
Iphone blandaður í duft
Samkvæmt þessu myndbandi blandast hann ansi vel. Þetta gengur nú ansi víða á netinu þetta myndband og menn misánægðir með að meðferðinni á símanum. Það kom mér reyndar á óvart hversu mikið hann blandast, verður algjörlega að dufti.
Minni á greinina mína á Deigluni í gær um Iphone. Ég nefndi reyndar ekkert um blöndunar möguleika símans en ýmsir aðrir eiginleikar voru teknir fyrir.
12.7.2007 | 15:21
Rosaleg bygging
Ég er búinn að fylgjast með þessu svakalega ferlíki rísa, ég hélt alltaf að þarna væri Bauhaus að rísa og við ættum fljótlega eftir að sjá meiri samkeppni í byggingarvöru. Þetta er bygga af svona svipuðum stíl, það er þetta er ódýr stálgrinarhús.
Maður spyr sig hvenær eiginlega verði komið nóg af verslunarhúsnæði hér í borginni, og hver ætli eiginlega að flytja í allar þessar skrifstofubyggingar sem nú eru að rísa í borginni. Er virkilega markaður fyrir þessi húsnæði?
Á sama tíma hefur ekkert framboð verið af lóðum hjá borginni af fyrir bara venjuleg hús, þetta eru allt einhverjar risaskrifstofu byggingar. Hvenær skildi borgin laga þetta?
![]() |
Verslunarhúsnæði byrjað að taka á sig mynd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |