24.9.2007 | 00:19
Kynningarfundur á morgun
Við keyptum auglýsinguí Verðandi, ég hannaði auglýsinguna sérstaklega fyrir þetta á meðan ég var í New York. Eins og stundum vill verða þegar maður er að gera svona undir tímapressu þá urðu mistök. Ég auglýsti fundinn minn á Mánudaginn 25. sept. Þetta er auðvitað algjört klúður.
Hérna er auglýsingin frá mér.
Ég vonasta auðvitað til að mánudagurinn verði það sem stendur upp úr, því það verður enginn á Kaffi Óliver á þriðjudaginn.
Annars eru þetta tilraunir hjá okkur að hafa þetta á bar, við höfum yfirleitt haldið þessa fundi í JCI heimilinu en ýmsir bent okkur á hversu erfitt það er að mæta á fundi sem eru haldnir á slíkum stöðum.
Við vonum alla vegna eftir því að það eigi einhverjir eftir að koma og kynnast því sem JCI hefur upp á að bjóða.
21.9.2007 | 00:53
Allt í leiðindum
Ég trúi því varla að skjár1 sé að fara að bjóða landanum aftur upp á Allt í drasli. Eru þetta ekki bara einhverjir leiðinlegustu þættir sem til eru? Ég er amk. ekkert yfirmig spenntur að fylgjast með þvottaóðri húsmóður hlaupa um heimili landans og fara í dekstu króka og kima í leit að ryki.
Þetta var nú ekki mjög skemmtilegt með Heiðar snyrti. Núna púff.
20.9.2007 | 14:59
Sekur uns sakleysi sannað hjá tollinum
Kom heim í morgun og flaug í gegnum tollinn. Þetta er alltaf jafn skrýtið að fara í gegnum hliðið, manni líður alltaf eins og glæpamanni þótt maður hafi ekki neitt óhreint í pokahorninu. Ástæðan er líka sú að það er yfirleitt komið fram við mann eins og að maður sé að brjóta af sér. Þetta var staðfest í grein í Mogganum í morgun að þessi tilfinning er rétt. Tollararnir gera sjálkrafa ráð fyrir að maður sé að svíkja.
Það skal tekið fram að sá sem tók á móti okkur í morgun var mjög kurteis og spurði eingöngu um tíma sem við vorum úti og einnig hvað við hefðum verslað fyrir. Þetta hefur ekki alltaf verið svona og er nú svo komið að ég nenni helst ekki með betri myndavélina mína á milli landa, vegna þeirra umræðu sem ég lendi í nánast í hvert skipti sem ég fer með myndavélina.
Vélina keypti ég reyndar í Bandaríkjunum, en pantaði heim með pósti og greiddi öll gjöld af henni. Ég átti mínar nótur í þau ár sem hún var í ábyrgð og hef ekki séð ástæðu til þess að geyma nótur í 5 ár, löngu eftir að öll ábyrgð er dottin úr gildi. Enda hefur það verið nóg hingað til að fylla út miða sem staðfestir að ég fór með vélina úr landi.
Það gildir ekki lengur og hefur greinilega verið starfsregla í um 1 ár hjá þeim, því þrátt fyrir að hafa sýnt gulamiðan hefur mér verið sagt að hann skipti bara ekki neinu máli. Ég hafi getað smyglað henni áður. Þeir hafi rétt á að rukka mig um tolla og skatta í 5 ár!
Til hvers var þá verið að láta mig fylla út þessa gulu miða?
Að því er virðist eru þeir líka hættir að biðja fólk um að fylla þessa miða. Sem er eðlilegt í ljósi þess að þeir taka ekki sjálfir mark á þessum miðum sem þeir voru að biðja fólk um að fylla út.
það er alveg fáránleg nálgun að gera ráð fyrir að maður sé sekur þangað til sekt er sönnuð. Ég vorkenni þeim ekkert að sjá að myndavél sé gömul. Ég sé heldur ekkert að því að einn og einn komist inn í landið með skattlausa myndavél, ef við hin þurfum ekki að lenda í þriðju gráðu yfirheyrslu með þeim ruddaskap sem því fylgir frá Tollurunum út af velli að margra ára gamalli myndavél. Bara af því þeir geta gert það.
Ég vorkenni þeim ekkert að opna augun og sjá þegar fólk trylla heim með heilu ferðatöskurnar af dýrum vörum og svo hina sem eru bara að túristast og viljum að myndirnar úr ferðinni séu í lagi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
17.9.2007 | 01:39
Mikil ganga
Í dag var gengið 25,5 km í New York, það er óhætt að segja að maður sér þreyttur eftir alla þessa göngu. Í gær voru það um 20 km, og dagana á undan eitthvað svipað. Þetta er í fyrsta skipti sem ég kem til NY og því mikið að fara yfir á svo stuttum tíma.
Til þess að meta vegalendir göngunar var fjárfest í göngnumæli sem hefur reynst algjör snilld.
Annars hefur þetta verið hreint ótrúlegt ferðalag.
12.9.2007 | 15:29
Eyjan átti slúðrið
![]() |
Merki Vodafone sást í Símaauglýsingunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.9.2007 | 18:17
Hörðu skotum skotið að rektor
Ég er á póstlista starfsmanna Háskólans, en þar var sendur póstur eftirfarandi póstur fyrr í dag:
Sæl öll!
Ég hef frétt að búið sé að segja upp hreingerningafólki í Árnagarði og
einhverri byggingu háskólans annarri. Það merkilega er að fólkið fékk
uppsagnarbréf - að mér skilst án þess að við það væri talað sérstaklega og
án þess að því væri boðin áframhaldandi vinna á rýrari kjörum - líkt og
gerðist hér um árið þegar Securitas tók við hreingerningum í ýmsum byggingum
HÍ. Við störfunum hafa tekið Pólverjar sem ætla má að ekki séu ofsælir af
launum sínum. Í þeim hópi sem hefur verið sagt upp eru konur sem starfað
hafa við HÍ um áratugaskeið. Mér finnst háskólanum lítill sómi að
uppsögnunum og þætti vænt um að heyra meira um málið - og í framhaldi af því
álit annarra á því sem gerst hefur.
Í kjölfarið kemur eftirfarandi svar:
Er þetta ekki bara í stíl við það sem eiginmaður rektors og yfirmenn hans í Icelandair eru að gera hjá sínu fyrirtæki, þ.e. að segja upp starfsfólki?
Talandi um að skjóta neðan beltis! Það verður fróðlegt hvort ekki eigi eftir að vera brugðist við skrifum á þennan póstlista í kjölfarið, viðkomandi á sjálfsagt eftir að fá fund fljótlega með rektor. Það er alla vegna ljóst að svona skrifar maður ekki um æðsta mann í því fyrirtæki sem maður er að vinna hjá fyrir framan alla starfsmenn.
11.9.2007 | 18:12
Jesús með síma frá vodafone
Var þetta plott eða klaufaskapur? Allt til að fá athyglina, jafnvel að vera með merki samkeppnisaðilans?
Sjónvarp | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.9.2007 | 11:54
Komin á facebook?
Ég ákvað að skrifa um þetta á Deiglunni í dag, því það er merkilegt hvað það hafa margir farið inn á þessa vefi á undanförnum vikum en í rauninni hefur þetta fengið litla umfjöllun í fjölmiðlum.
Kíkið á pistilinn minn og segið hvað ykkur finnst um þetta..
5.9.2007 | 12:53
Áhugavert að fara á Rodez
Þetta er samt orðin nokkuð stór "stafsetningarvilla" og eiginlega ekki hægt að kalla það stafsetningarvillu. Ég hef heyrt af fólki sem hefur farið til rangra borga en þetta er fyrst og fremst misskilningur.
Maður hefur sjálfur lent í vandræðum þegar maður er að misskilja nöfn á borgum og hvort er um að ræða local heiti, enska hetið eða íslenska nafnið.
![]() |
Afdrifarík stafsetningarvilla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.9.2007 | 12:47
Spenndandi tímar fyrir íslensku orkufyrirtækin
Það eru greinilega spennandi tímar fyrir íslensku orkufyrirtækin. Við eigum eftir að sjá miklu meiri útrás en verið hefur. Í morgun heyrði ég að þetta ætti eftir að vera stærra en útrás fjármálafyrirtækjanna. Þetta er svo sannarlega eitthvað sem maður væri til í að taka þátt í.
![]() |
Hægt að sexfalda raforkusölu frá jarðvarmavirkjunum í Bandaríkjunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |