Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007
18.7.2007 | 10:45
Stóra bloggkeppnin
Í fyrstu hélt ég að þetta væri grín, en nú er komið á daginn að svo er alls ekki. Gísli sem heldur úti málbeininu virðist taka þetta alvarlega og hefur meira að segja skráð eigið blog á blog.is
Mér skilst að þeir sem ætli að taka þátt í atvinnumanna bloginu, þurfi að vera með meira en 50 þúsund manns í heimsóknir, það er í sjálfu sér nokkuð stór hópur.
Ég efast samt um að margir muni skrá sig til keppni, amk. í atvinnumannaflokkinn. Nýliða kannski, en ekki atvinnumanna flokkinn.
Moggin hlýtur annars að þakka þessum "outsider" fyrir að fara af stað með svona keppni, bloggið hefur verið eitthvað svo dauft undanfarið.
18.7.2007 | 09:14
Popup
Ég var að skoða mbl.is í gömlum vafra. Það kom óneitannlega á óvart að það sé enn verið að nota popup hjá mogganum. Allir nýjir vafrar eru hættir að birta popup, og því verður maður ekki lengur var við þetta.
17.7.2007 | 22:01
Skemmtileg síða
Fann þessa skemmtilegu síðu. Hún sérhæfir sig í smábæjarblöðum. Hérna heima eru nokkuð mörg svona smábæjarblöð, bara ekki á netinu. Ég fæ t.d. reglulega Jökul frá Ólafsvík.
http://www.smalltownpapers.com/
17.7.2007 | 18:42
Búddacafé á leið til Íslands
Ég hef snætt á Búddabar í París, það er mjög merkilegur staður og þekkist í fjölmörgum löndum. Mér er sagt að fyrirtækið S.Þ. Veitingar sem rekur meðal annars redchili séu að undirbúa kaffihús, sem mun heita Buddacafé. Maður veltir fyrir sér stemninguna sem á að vera á þeim stað og hvort það eigi að vera eitthvað líkt og það sem gengur og gerist á buddhabar.
Hérna er hægt að skoða stemninguna á buddha-bar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2007 | 18:35
Byrgid.is skráð aftur
Ég var að taka eftir því að það er búið að skrá lénið byrgid.is aftur. Nú veit ég ekki hvað þeir sem keyptu það ætla sér að gera með það. Það fyrirtæki er sagt versla með húsgögn, hversu mikil kaldhæðni í því, hafi þeir ætlað að selja húsgögn á þessu léni, stuttu eftir að brenna þurfti öll húsgögn Byrgisins, vegna lúsar.
Ég hefði haldið að byrgis nafnið væri of "heitt" til þess að einhver myndi nota það næstu árin. Þeir ætla kannski að tryggja sér það til seinni tíma nota. Í því samhengi er nokkuð merkilegt að lénið agusto.is er laust.
17.7.2007 | 18:29
Tölvunörd hýsir ekki eigið lén
Fannst mjög gaman af því að sjá að lénið Tölvunörd.is (tolvunord.is) skuli ekki vera hýst hjá eiganda þess heldur út í bæ. Er hægt að vera tölvunörd án þess að hýsa eigin lén?
Nú veit maður svo sem ekki hvaða ástæður liggja að baki, en mér var í sjálfu sér skemmt.
Í mínum hugar er þetta svona eins og að vera bílanörd, en fara svo með hann í smurningu á verkstæði. Fyrir því geta verið margar ástæður svo sem leti, en samt fyndið.
17.7.2007 | 16:38
Auknar kröfur hjá bönkunum
Það er nokkuð merkileg viðbót hjá bönkunum að nú má ég ekki stofna bankareikning nema að þeir fá að afrita skilríkin mín. Maður veltir fyrir sér hvað er næst í þessum efnum, þetta er algjörlega óþolandi finnst manni.
Það er amk. skrýtið að banki sem maður er búinn að vera í viðskiptum alla sína ævi og veit álíka mikið eða meira um manns fjármál en maður sjálfur fari allt í einu fram á að fá að ljósrita ökuskýrteinið.
Mér er sagt að þetta séu reglur frá Evrópusambandinu.
Bölvað Evrópusambandið :)
17.7.2007 | 15:19
Tónlistarleg sátt í togaraútgerð
Mér var skemmt þegar ég las þetta:
Við höfðum verið í hálfgerðu fríi frá Bretlandi síðan um áramót en nú liggur fyrir að Nylon er að fara í aðra útrás í lok árs. Ég hef ákveðið að að fara ekki með. Þetta er auðvitað ákvörðun sem ég hef hugsað mikið en ég er sátt við hana og við stelpurnar kveðjumst tónlistarlega" í fullkomni sátt og ég óska þeim alls hins besta enda er ég ekki að kveðja þær sem vinkonur.
Ég veit það ekki, Nylon hefur alltaf verið í mínum huga hálfgert grín, og amk. ekki neitt tónlistarlegt stórvirki. 4 stelpur sem syngja lög eftir aðra, þjálfaðar upp og gerðar út eins og togari til að græða fyrir eigendur sína.
Það er þess vegna sem mér fannst þetta með tónlistarlegu sáttina skemmtilegt.
Ætli sumir séu ekki komnar með leið á þessu og efast um að nýtt Spice Girls ævintýri sé á leiðinni. Betra að skella sér heim og læra smá vegis, frekar en að spila í frægðar lottóinu.
![]() |
Emilía hættir í Nylon |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.7.2007 | 11:36
Bílaleitin heldur áfram
Ég veit það ekki, maður er nú alveg að komast í þrot með þessi bílakaup, næsta er bara að halda í gamla bílinn og eiga hann uns hann mun andast vonandi við háan aldur. Þegar ég fór og fékk að vita hvað ég fengi fyrir þann gamla, var mér sagt að það væri bara brot af því sem ég átti von á og verðgræjan hjá bílgreinasambandinu.
Á maður að fara að standa í að selja þetta sjálfur? Ég held að ég sé þá fyrst kominn í buisness sem ég hafi ekki áhuga á. Nema að maður fari kannski þá að hitta venjulegt fólk, sem maður getur talað við.
16.7.2007 | 19:51
Ótrúlegt!
Maður á ekki til orð þegar maður les þetta. Sem betur fer virðist enginn hafa slasast alvarlega. Þegar ég var að reyna að fara inn á vísi.is var það einfaldlega ekki hægt, því serverinn var of busy. Þeir bjóða upp á live útsendingu, en að sjálfsögðu virkar það ekki heldur.
Ég vona að það sé ekki lofkælingin hjá þeim félögum sem veldur því að serverinn er of bussy. Krosslegg fingur :)
![]() |
Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti í sjónum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |