Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
16.7.2007 | 19:51
Ótrúlegt!
Maður á ekki til orð þegar maður les þetta. Sem betur fer virðist enginn hafa slasast alvarlega. Þegar ég var að reyna að fara inn á vísi.is var það einfaldlega ekki hægt, því serverinn var of busy. Þeir bjóða upp á live útsendingu, en að sjálfsögðu virkar það ekki heldur.
Ég vona að það sé ekki lofkælingin hjá þeim félögum sem veldur því að serverinn er of bussy. Krosslegg fingur :)
![]() |
Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti í sjónum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.7.2007 | 14:24
Hafa þeir sem þetta gerðu aldrei hitt Þjóðverja?
Ég held að þeir sem gerðu rannsóknina hafi aldrei hitt Þjóðverja. Þjóðverjar sjálfir vita af þessu og hlæja, amk. þeir sem hafa húmor fyrir þessu. Ég hef amk. hitt þjóðverja sem ætluðu að skella sér í ókeypis kaffi í Hagkaup, í von um að hitta samlanda sína. Svo hitta ég skálavörð í Sigurðarskála, sem skaffaði eina rúllu í einu á salernið, því þjóðverjarnir tækju þær alltaf.
Ég veit að þetta er sterómynd af þjóðverjum, enda á ég marga fína þýska vini, þar sem peningar skipta ekki máli. Ég á líka marga vini sem peningar skipta miklu máli. Allir eru hins vegar sammála um þá steríó týpu af þjóðverjum, þar sem þeir eru nýskir.
![]() |
Peningar skipta Þjóðverja litlu skv. könnun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.7.2007 | 11:00
Bara fyrir innfædda
Danir eru svo merkilegir með þessi sumarhús sín, þeir eru svo hræddir um að erlendir kaupahérðnar kaupi landið sitt að þeir þora ekki að leyfa sölu nema til innfæddra. Samkvæmt því mega íslendingar ekki kaupa sumarhús á Jótlandi.
Þeir mega auðvitað kaupa hús þar sem þeir vilja, þar á meðal á Íslandi og í Svíþjóð. En Danir eru sagði flykkjast til Svíþjóðar að kaupa sumarhús.
Manni finnst þetta vera skrýtinn ótti hjá Dönum, það eru í mestalagi Íslendignar sem eru nógu vitlausir til þess að kaupa hús þar. Merkilegt nokk, eru þessi takmörk fyrst og fremst bundin einstaklingum en fjárfestingafélögin geta raðað niður dönsku byggingunum.
Er það ekki hálf öfugsnúið að einstaklingar sem ætla að kaupa 1 hús geti það ekki, en fyrirtæki sem ætla að kaupa 100 geti það?
![]() |
Óvenjulítil eftirspurn eftir sumarhúsum í Danmörku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.7.2007 | 10:31
Frábært framtak
Um leið og menn eru að berjast um einhverja "smáaura" hérna heima, þegar þessi orku sjóðir eins og Geysir eru að reyna að berjast um innlend fyrirtæki er gaman að sjá árangurinn hjá Enex, þeir hafa verið að taka þátt í mjög spennandi verkefnum og nú seinast þetta.
Þetta verður að teljast með áhugaverðari verkefnum sem íslenskt fyrirtæki hefur tekiðp þátt í. Enex er að verða ótrúlega spennandi fyrirtæki á mjög skömmum tíma. Þeir hafa verið að riðja brautina fyrir íslensku útrásina sem er núna að komast á fullt.
![]() |
Risavirkjun jarðvarma í pípunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.7.2007 | 13:58
Óumhverfisvæni bíll forsetans
LeóM, sem er landsþekktur vegna áhuga á bílum skrifaði í dag ansi merkilegan pistil um bíla og umhverfisvernd. Hann bendir á að bíll forsetans er hugsanlega ekki jafn umhverfisvænn og bent hefur verið á vegna eyðingar á rafhlöðunni. Ekki veit ég hvað er til í því eða hvaða aðferðir hann notar. Hitt er ekki síður merkileg sem hann bendir á en það eru kostir Díselbíla fram yfir bensín, í umhverfislegu sjónarmiði. Það er mjög áhugavert og við höfum séð hér heima, meðal annars oktavían sem fór hringinn í kringum landið á 1 tanki, en það hefur ekki verið leikið eftir af bensín bíl.
Mér skilst að það sé verið að vinina í að endurskoða þessi mál nú hjá ríkinu og ég spái að dísil muni lækka í verði miðað við bensín.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.7.2007 | 18:14
Stílbrot
![]() |
Starbucks lokar í Forboðnu borginni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.7.2007 | 12:24
Tómur bær
Evróvision í gangi, nánast ekki sála á ferðinni. Það er greinilegt að
þjóðvegur 1 hefur verið yfirfullur í gær af sumarbústaðareigendum og
tjaldbúum.
13.7.2007 | 15:35
Frídagur
sama hvert maður hringir, menn eru farnir í frí. Ætli það verði
ekki svoleiðis að maður bara skellir sér sjálfur í frí.
13.7.2007 | 15:25
Ég og viktoría
Við Viktoría höfum verið ágætis félagar ansi lengi, alveg síðan hún vinakði mér um árið og á afmælisdaginn sinn á Öland, þegar ég mætti og tók þátt í prógramminu á afmælinu hennar. Þar sem meðal annars hin knái píanó snillingur Robert Wells, og Lionel Richie spiluðu. Hún var reyndar ekkert að hafa fyrir því að vinka mér sérstaklega þar, en gerði það hins vegar fyrir utan eigin kastala.
Ég hafði svo sem ekki fyrir því að segja henni að það er tæp vika á milli okkar i aldri. Það gerist síðar.
![]() |
Stressandi afmælisdagur fyrir Viktoríu Svíaprinsessu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.7.2007 | 18:57
Össur hress
Össur var að gera góða hluti í fréttunum áðan, að löggan sé að brjóta jafnréttislög með því að stöðva ekki róna en stöðva svo venjulegt fólk sem er að fá sér einn kaldann.
Ég styð össur í þessu, það eru ótrúlega fáir dagar þar sem þetta er í boði. Nágrannar eða aðrir sem þetta fer í taugnarna ár verða bara að bíta í vörina á sér í smá stund.
Skál.