Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Ljótasta rokksveit landsins

Ég veit ekki hvort þetta er hannað útlit en að sjá þessa gaura svona saman gerir þá að ljótustu rokksveit landsins.   Hafi þetta ekki verið hannað ljót útlit, þá tókst þeim vel til því að rokksveitir eru nú ekki frægar fyrir að vera fallegar.  
mbl.is Gulli gengur aftur í Brain Police
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú koma kröfurnar niður

Eftir yfirlýsingarnar sem voru um helgina hljóta kröfurnar að koma niður hjá Eiði, hann er varla að fara að halda uppi þessum kröfum og fá bara að vera á varamannabekknum hjá Barcelona.  Menn hljóta að vera að spila einhverja taktíikt í þessu.  
mbl.is Segir launakröfur Eiðs Smára háar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ómenningin ekki fín?

Er það ekki þessi ómenning sem fjölmargir erlendir gestir koma hingað og skoða? Hefur þessi ómenning verið einhver undanfarin ár miðað við það sem hún var hérna fyrir 10 árum þegar allir staðir lokuðu klukkan 3 og bærinn fyltist af reiðum ungum mönnum?  Hvar er svo göngulöggan?  Nú eiga sjálfvirkar eftirlitsmyndavélar að koma í staðin.  Er ekki málið að löggan verði aðeins sýnilegri?
mbl.is Vill að ómenningin í miðborginni verði upprætt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spennandi tímar framundan

Það er alveg ljóst að það verða spennandi tímar framundan á íslenska markaðnum, það verður gaman að sjá hvernig íslenski markaðurinn mun fylgja þessum erlendu. Oft áður hefur verið eins og íslenski markaðurinn hafi ekki verið í fullkomnu samabandi við þá erlendu þar sem viðbrögð hafa ekki fylgt alveg í kjölfarið. Á föstudaginn byrjaði þetta hins vegar strax og af meiri látum en á mörgum erlendu mörkuðunum, sem er í sjálfu sér eðlilegt með einsleitari fyrirtækjum á íslenska markaðnum en erlendis.
mbl.is Fjárfestar búa sig undir frekari titring á fjármálamörkuðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krónikan enn til sölu

Nú eru komið nokkuð margir mánuðir síðan Krónikan lagði upp laupana.  Það kom því nokkuð á óvart þegar ég fór í Hagkaup áðan og sá að þeir hér í Grafarvoginu virðast seinir að fá fréttirnar, því þeir eru að enn að sleja blaðið.

Miðað við magnið í rekkunum virðast þeir ekki selja mikið  því það var nóg framboð. 


Ekkert samhengi

Ég get ekki séð að það sé nokkurt einasta samhengi á milli þessara mála.  Ég vona að Þorlákshafnarbúar haldi áfram að berjast fyrir sinni höfn, en auðvitað þarf að breyta hlutum í samgöngu málum Eyjamanna.    Þetta er amk. frekar skrýtin útgangspunktur, að annar möguleikinn muni útiloka hinn.

Af því sem ég hef skoðað er ekki spurning að ferja til Bakka er besti kosturinn, þetta er mjög hröð leið, hægt að hafa tíðar ferðir og varðandi ferðamennsku sé ég ekki að ferja eigi að gera úrslitakostinn hvort fólk fari til Eyja eða ekki.

Magnús Kristinsson virðist hafa fundið ágæta leið fyrir sjálfan sig, það er spurning hvort aðrir Eyjamenn fái að njóta kostsins.  Það er verst að hann man ekki hvað farartækið kostaði, svo hann veit varla hvað hann á að rukka.


mbl.is Vilja stórskipahöfn í Þorlákshöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eðlilegur flutningur?

Það kemur ekki á óvart Dagur B skuli gelta, nú þegar HB grandi er að fara burt með sitt hafurtask úr Reykjavík.   Hann er vanur að gera það og er sá einsi sem gerir það.

Hvaða áhrif mun þetta svo hafa á Faxaflóahafnir?  Þeir eru jú með bæði höfnina hér og svo á Skaganum, þetta er því flutningur innan svæðiðsins.   Nú þegar hefur verulega verið þrengt að þeim og hugmyndir eru um stórkostlega byggð á þessu svæði. Peningalyktin hefur í langan tíma verið óvinsæl lykt í Reykjavík og spurning hvenær íbúar krefjist þess að hún hverfi endanlega.  Svæðið á örugglega eftir að nýtast sem flott byggingarsvæði, eins og gerst hefur víða á svona hafnarsvæðum erlendis. Síðast var ég að skoða höfnina í Frankfurt um daginn og sá hvernig gamla athafnarsvæðið var orðið flott íbúðarbyggð, Turning Torso í Malmö er á svipuðu svæði og svo öll byggði á hafnarsvæðinu í Stokkhólmi. 

Hvar eru vinstri græn? Eru þau yfir höfuð til í borgarstjórn?   Frjálslynd eru þau búin að ákveða sig hovrt þau eru frjálslynd eða Íslandshreyfingin?  Aðrir borgarfulltrúra á vegum samfylkingarinnar?  Hvaða fólk er það annars? Eru þau ekki öll flúin á þing og mega ekkert vera af að þessu.  Starfskrafturinn bendir amk. til þess.

Í fréttinni kemur fram að það séu 2 heilir mánuðir síðan Samfylkingin sendi inn fyrirspurn!  Engar hugmyndir en fyrirspurn.  Þessi fyrirspurn er nú dregin fram eins og það hafi verið einhver vanræksla af meiri hlutanum að svara þessu ekki strax.

Ég hef áður bloggað um það að ég vona að þessi stjórnarandstaða fari að vakna hér í borginni.  Það veitir virkilega ekki af því.  Það er af nógu að taka.   Þeir þurfa að gera gott betur en að senda fyrirspurnir, hvernig væri að vera með hugmyndir.  Gamli minnihlutinn mátti þó eiga það að þar voru hugmyndir í gangi, eftir að menn duttu úr skuldanöldrinu.

 


mbl.is Framtíð athafnasvæðis HB Granda í Reykjavík óráðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óeffektív undirskriftarsöfnun

Ég sé að Akureyringar eru komnir með einhverja lélegustu undirskriftarsöfnunaraðferð sem um getur, en það er með því að skrifa athugasemd á blogg.  Ég geri ekki ráð fyrir að nokkur muni taka mark á þessu.

Hins vegar held ég að bæjarstjórnin ætti virkilega að hugsa sinn hug, þetta getur orði mjög dýrt fyrir þau þetta spaug.  Eftir því sem mér skilst er þetta fámennur hópur fólks sem hefur verið óánægður með þetta. Þrátt fyrir allt hefur þetta gengið mjög vel á Akureyri undanfarin ár, þar sem fjölskyldufólkinu hefur verið skipt frá unga fólkinu.   Hátíðin er haldi í bæjarfélaginu, með þá þjónustu sem fólk þarf á að halda. 

Hafi bæjarstjórnin haldið að hún væri að gera einhverjur greiða væri gaman að heyra í þeim núna, sá hópur hefur haldið sig algjörlega fyrir utan umræðurnar eftir helgina.


Algjör gúrka

Það er greinilega rosaleg gúrka í gangi þessa dagana.   Þarna eru nefnd 1-2 dæmi, en þessir hversu algengt ætli það sé að verktakar í Reykjavík taka að sér verk og klári þau ekki á tilsettum tíma?  Ég hefði haldi að fréttin ætti (svona nánast) að vera um verktaka sem tók að sér verk, skilaði því fullkomlega og á réttum tíma.
mbl.is Varað við verktaka á vefnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svakalegur munur

Svakalegur munur væri ef þeir myndu koma með þennan streng til landsins. Það væri auk þess mjög ánægjulegt ef þetta væri gert án þess að stjórnmálamenn séu eitthvað að skipta sér af þessu. Það hefur verið ótrúlega mikið rætt um nýjan streng og örðugglega er einhver góð nefnd í málinu. Hins vegar er ekkert gert.

Nú eru komnir menn í málið sem ætla sér að græða á þessu og þá er drifið í hlutunum.

Að skoða hversu marga staði á tengja er í líka alveg ótrúlegt og greinilegt að þetta er risa verkefni.


mbl.is Ný ljósleiðaratenging við Ameríku og Evrópu boðuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband