Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Barist gegn erlendum bönkum

Ég heyrði nokkuð merkilega samsæriskenningu á útvarpi Sögu í morgun, sú var að viðskiptaráðuneytið kæmi í veg fyrir að erlendir bankar væru að koma til landsins.

Maður hefur gaman af svona samsæriskenningum. Það er nokkuð merkilegt að fólk virkilega haldi þessu fram af fullri alvöru og trúi því að viðskiptaráðuneytið sé sérstaklega að koma í veg fyrir það. Þetta er svona saga til að útskýra af hverju erlendir bankar eru ekki æstir í að koma til landsins og fá að okra aðeins minna á landanum en þeir bankar sem nú þegar eru hér.

Fyrir utan þá okur vexti sem eru hér á landi, þá fékk ég aldeilis að greiða mín gjöld þegar ég bjó í Svíþjóð. Auk þess þurfti ég að greiða reikningana mína 2 - 3 dögum áður en þeir voru á gjalddaga, bankarnir stálu vöxtunum í þessa 2-3 daga. Þetta er eitthvað sem var skiljanlegt fyrir tölvutæknina, en heitir þjófnaður í dag. Allir bankarnir þar stunda þetta.

Tækifæri fyrir íslensku bankana?

Díva vinnur

Hversu fyndið er að gaur sem er kallaður Díva skuli vinna dragrottningarkeppnina.  

Afhverju keppa konur ekki í karladressuppi, eða gera þær það?  Eru þeir þá dragkóngar eða?

mbl.is Steini Díva krýndur dragdrottning Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúleg verð á fartölvum

Samkeppnin á fartölvumarkaðnum virðist vera ótrúleg um þessar mundir, núna er hægt að kaupa sér sæmilega fartölvu fyrir 49.000 hjá Tölvutek.  Hvernig er þetta eiginlega hægt? Innifalið er allt sem þarf.

Eina sem þarf að gera er að bæta aðeins við minnið og maður er komin með flotta tölvu í ritvinnslu, netvafur og þessa vinnslu sem venjulegt fólk er að gera.

SMS kynslóðin mætt

Það er greinilegt að irc kynslóðin er mætt, áhugaverðar styttingar.

Hvernig verður þetta þegar SMS kynslóðin mætir á svæðið?  Nú þekkir maður þetta slangur ekki, en þegar 4real er komið í notkun þá hlýtur hitt að koma fljótlega.

Annars ætlaði ég að finna lista með algengum syttingum í SMSum til en ég fann það bara ekki á netinu.  Það hljóta einhverjir að hafa ekkert betra að gera en að skrá þetta niður. Eða hvað? 


mbl.is Ætla að gefa drengnum nafnið Superman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þekkingarlausi markaðsstjórinn

Mundi bendir á skemmtilega grein í vísi.  Fyndið að vera markaðsstjóri, fá svona rosalega gúrkulega frétt og vita svo ekki rassgat afhverju verið var að hafa samband við mann.  Þeir eru að kaupa google-adwords auglýsingar.

Það hlýtur einhver algjör strumpur að hafa skrifað þessa frétt og vita ekkert afhverju auglýsingar eru að britast á undarlegum stöðum. 


Skemmilegt ferðalag

Ég heyrði í þeim reglulega á föstudögum, en þeir hringdu inn á rás 2.

Það er ekki hægt að segja annað en að þetta hafi verið nokkuð öðruvísi en t.d. pólförum eða fjallaklifrurum sem við höfum svo oft fengið að heyra í. Hjá þeim er mestalagi verið að ræða um hversu vel gekk að klífa seinustu 200 metrana, hvað tærnar eru frosar og hvort búið sé að fara úr einum búðum í aðrar.

Þeir fóru þúsundir kílómetra í hvert skipti, virkilega gaman að heyra margt af því sem þeir lentu í, auk þess sem ekki var stöðugt verið í beinu sambandi.
mbl.is Hnattferð vélhjólabræðra senn á enda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sniðug markaðsetning

Þeir eru duglegir að vekja athygli á sér þessir klámkallar.  Löngu orðnir uppiskroppa með málefni til þess að fjalla um hvort sem er. Þannig að eina sem þetta getur gert er að auka vinsældir myndarinnar, sami söguþráður og vanalega bara nýtt nafn á aðlapersónuninni.

Hver er þessi Lidsay annars?  Enn ein stjarnar fræg fyrir að vera fræg og stunda hneykslanlegt líferni?


mbl.is Ný klámmynd byggð á ólifnaði Lindsay Lohan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Komin heim

Ég er komin heim eftir þetta fimm daga frí, sem var meira eins og tveggja vikna krús miðað við allt sem á daga mína hefur drifið, ég mun sjálfsagt skrifa eitthvað um það á síðunni.

Hins vegar var alveg örugglega hápunktur ferðarinnar seinasti sólarhringurinn, þar sem keyrt var frá Milan til Rómar, og kvöldverður tekinn á einum fínasta veitingastað Flórens með útsýni yfir eina Davíðsstyttuna og miðbæinn ásamt einhverju fallegastu sólsetu sem maður hefur séð.

Ólíkt því sem gengur og gerist í svona ferðum fékk ég smá lit á andlitið enda var yfir 30 stiga hiti allan tímann. Yfirleitt verð ég bara rauður, en núna er maður útitekin.


Mannlíf birtir launin mín

Ég er á leiðinni út í nótt, þannig að ég veit ekki hvort ég eigi eftir að sjá tekjublað Mannlífs en nú þegar hef ég fengið ábendingar bæði í athugasemdum hér sem og með SMS skeytum um að ég sé hluti af því blaði.  Það er spurning hvort maður reynir að pikka það upp á leiðinni út á flugvöll eða hvort það er í boði yfir höfuð núna. Ég sé það þá þegar ég kem heim eftir um viku.

Það verður gaman að sjá hverjir aðrir eru í þessu blaði, veit ekki hvað ég hef gert til að verðskulda þennan heiður.  Líklega er það Eyjan.is sem má hrósa sér þennan heiður frekar en nokkuð annað, en ég veðja að nokkrir eyjubloggarar og topp moggabloggarar séu þarna.

Seint átti ég von á því að sjá sjálfan mig í þessu blaði, og verður það nú væntanlega til að herða enn róðurinn í baráttunni gegn birtingu þessara upplýsinga.  Ég hef lengi verið á móti þessu, en mér hefur fundist það vera á milli starfsmanns og vinnuveitanda hvað viðkomandi fær í laun.  Mun beittari aðferðir eru til þess að finna skattsvikara enda þekkist það varla að skattsvikarar finnist eftir að einhver hafi snuðrar í álagningaskránum og tilkynnt nágranna sinn. Varðandi launaleyndina má vinna allar þessar upplýsingar upp úr þessum tölum án þess að vera að nafngreina einstaklinga.  Ríkið á að safna þessum upplýsingum upp til að leggja á mig skatta, en ekki til að breyta verslunarmannahelginni í Séð og heyrt hátíð, þar sem undir liðnum hver var hvar birtist nú hver græddi hvað og þjóðin smjattar á því.   

Sjálfsagt er eina góða við birtingu þessara upplýsinga menn sjá að ég hef ekkert að fela. Ég vakna á morgnana og mæti til vinnu og fæ greidd laun fyrir eins og annað fólk og greiði það til fógetans sem fógetans er.  


Áhugaverð samkeppni

Það verður áhugavert að fylgjast með þessu, ég hef heyrt að það sé alltaf sama fólkið ár eftir ár í blaði Frjálsar verslunnar.   Fólk hafi jafnvel lent þangað inn eitthver ár eftir að hafa fengið áætlað á sig einhverjar suddalegar tölur og þeir sem skoða þessa lista hafa rekist á viðkomandi. Svo helst fólk þar ávalt inni.

Mannlíf á sjálfsagt eftir að kaupa sér gamla útgáfu af frjálsriverslun. Enda er það sjálfsagt varla vinnandi vegur að koma sér upp slíkum fjölda af fólki á smá tíma. 

Það verður fróðlegt að fylgjast með því hvaða einstaklingar verða fyrir valinu og hvort blöðunum mun þá bera saman.  


mbl.is Samkeppni um „tekjublað“ eftir hátt í 20 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband