Færsluflokkur: Bloggar
18.12.2006 | 12:16
Framlög til LÍN hækkuð
Maður hefur lítið fylgst með málefnum LÍN en ég tók hins vegar eftir því í seinustu viku þegar rætt var um að lækka ætti framlag til LÍN. Vissulega kom það á óvart en yfirleitt hafa kosningaárin verið námsmönnum góð.
Það helsta sem kom til greina varðandi þessar breytingar hjá LÍN, var því að þetta væri einhverskonar milli leikur.
Nú hefur hins vegar komið á daginn að svo var ekki.
Það verður amk. fróðlegt að fylgjast með viðbrögðum nemenda við þessari grein hjá Gunnari.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2006 | 11:31
Indverskur íþróttamaður féll á kynjaprófi
Íþróttaheimurinn er alltaf að vera flóknari.
Ætli Hjalti Úrsus hafi verið tekin í kynjapróf?
![]() |
Indverskur íþróttamaður féll á kynjaprófi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2006 | 11:03
Athugasemdir
Ákvað að virkja athugasemdir á blogginu mínu, hef oft skipt um skoðanir varðandi það hvort athugasemdir séu æskilegar eða ekki.
Helstu kostir þess eru auðvitað að fá feedback frá lesendum.
Hitt sem vill oft verða með athugasemdir eru leiðindi sem þeim fylgja og skætingur.
Ég ætla amk. að gera tilraun með að hafa þetta opið hjá mér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2006 | 09:33
Bloggvinir
Fékk fyrsta bloggvin í gær, það var StebbiFr. Mér er heiður að hafa Stebbi hafi orðið minn fyrsti blogg vinur. Ég þekki Stebba í gegnum starfið í Sjálfstæðisflokknum en við höfum nokkrum sinnum hist á þingum og í öðru starfi. Svo hef ég eins og svo margir lesið bloggið hans.
Ég hafði ekki hugsað mér að fara mikið um í leit að blogvinum, en hafi menn áhuga á að gerast blogvinir tek ég mönnum fagnandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2006 | 09:19
Kompásþátturinn um Byrgið
Horfði á þáttinn um Byrgði í gær og var alveg agndofa yfir því sem þar var borið á borð. Fannst þó eftir að hafa horft á þáttinn töluvert vanta upp á þetta, en eftir situr að þarna hlýtur að vera maðkur í mysuni.
Hvað sem menn segja um að Guðmundur megi gera það í sínu svefnherbergi sem honum henta, þá getur hann ekki gert það á launum hjá ríkinu og nýta sér skjólstæðinga sína til þess og það traust sem hann vinnur sér inn á meðan hann "læknar fólk".
Ætli viðkomandi hafi líka stolið símanum hans og tekið myndir af honum á sprellanum. Nema að hann vilji meina að þetta hafi verið falsað.
Hann féll líka í sömu gildru og barnaperranir í vor á NFS, þegar hann sagðist þurfa að kanna sér ýmis málefni. Í NFS þættinum í vor var einmitt tekið fram að þetta væri algengasta afsökun sem menn nýttu sér að þeir væru að kynna sér þessi málefni.
Eftir að hafa skoðað nokkur blog um málið er greinilegt að menn eru með mjög misjanfnar skoðnair á þessu. Þetta mál er því bara rétt að byrja.
Það alvarlega í þessu er hvað verður um byrgið og þá skjólstæðinga sem þar eru. Það er óumdeilt að Byrgðið hefur gert mjög góða hluti. Spurning hver framtíð birgisins verður.
![]() |
Endurskoðun á rekstri Byrgisins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2006 | 00:03
69.is aftur í loftið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.12.2006 | 22:16
Vandræði hjá 69.is
Það eru greinilega vandræði í gangi hjá 69.is, en vefurinn hefur verið einn af stóru íslensku linkavefunum. Nú virðist eingöngu birtast stjórnborðið hjá þeim og spurning hvort þeir félagar hafi tapað öllum gögnum vefsins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.12.2006 | 17:41
Cantat lokaður í nokkrar vikur
Það virðist vera að það verði ekki mikið niðurhal um jólin.
Það var þó ekki hægt að kenna rottunum um þetta, en breytir því ekki að það er greinilega komin tími á að skoða varaleiðir í staðin fyrir streninginn.
Annars hefur niðurhalshraðinn verið þannig heima hjá mér að það mætti halda að Cantat hafi verið bilaður í maragar vikur en ekki klukkustundir. Btnet ekki alveg að standa sig í hraðanum. Fjárfesti þó í dýrari pakkanum hjá þeim.
Hversu fyndið er það að Hive hafi alltaf verið að auglýsa frelsi festi menn svo inn í ár, nema að viðkomandi kaupi af þeim búnað. Þeir hafa núna mörgum mánuðum eftir að ég skipti yfir til BT, sent mér rukkun upp á 10 þúsund kall. Það eru þakkirnar fyrir að versla af þeim í 2 ár.
Lengi lifi frelsið!
Það skildi þó ekki vera að gamli (humm) góði L$ sé sá sem sé að standa sig best í þessu.
![]() |
Hugsanlegt að Cantat-3 verði óvirkur í tvær til þrjár vikur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.12.2006 | 14:23
Nýja framsóknarmerkið í nýju ljósi
Ég ákvað að nota mitt listræna frelsi til þess að túlka nýja framsóknarmerkið.
Þetta er mun betra merki og sýnir hin rétta innri mann flokksins.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.12.2006 | 14:04
Hræringar á blaðamarkaði
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)