Færsluflokkur: Bloggar
19.12.2006 | 13:35
Ellismellir
Alltaf gaman að lesa svona sögur af elliheimilinu.
Já, krakkar mínir einu sinni var þetta fólk frægt.
![]() |
Sharon Stone farin að slá sér upp með Christian Slater |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2006 | 12:06
Súla hjálpar
Kate Hudson hlýtur að fá yfir sig bylgju óánægju radda frá femínistum eftir þetta.
![]() |
Kate Hudson segir súludans styrkja sjálfsmat kvenna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2006 | 12:01
Aldrei ríkur
Það er fyrir löngu ljóst að ég verð aldrei ríkur en samkvæmt vísi þá er ástæðan sú að ég er ekki nógu útsjónasmaur. Þeir birtu amk. þessa skemmtilegu sögu á vefnum sínum áðan:
Eitt svarið er að þeir eru útsjónarsamir. Eins og bandaríski verðbréfamiðlarinn John Huntington, sem var að fara í hálfsmánaðar ferð til Evrópu. Hann ók á Rolls Royce bifreið sinni að banka í Manhattan, og bað um fimmþúsund dollara lán.
Bankamaðurinn spurði um tryggingu og John lét hann fá lyklana að Rollsinum. Bankamaðurinn lét John hafa lánið og lét keyra Rollsinn niður í bílageymslu bankans. Tveim vikum síðar kom John aftur, og vildi borga upp lánið. Það voru fimmþúsund dollarar og 15,40 dollarar í vexti. John skrifaði ávísun, fékk lyklana að bílnum sínum og kvaddi.
Bankamaðurinn var dálítið hissa á þessu ferli öllu, og sagði við John; "Ég veit að þú ert vellauðugur, til hvers í ósköpunum varstu að taka fimmþúsund dollara bankalán ?"
John brosti; "Hvar annarsstaðar gæti ég geymt Rolls Royce á Manhattan fyrir fimmtán dollara og fjörutíu sent, í tvær vikur ?"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2006 | 11:34
Skynsamleg ákvörðun
Það hlaut að koma að skynsamri ákvörðun.
Það má vel vera að það sé hægt að afsaka þessar tímabundnu ráðningar en fólk sér samt almennt í gegnum þetta.
Sá orðrómur hefur verið að Óskar ætli sér að fremja pólitísk harikiri, brussast áfram og ná sér eins mikinn pening og mögulegt er. Taka þátt í öllum leiðinlegu ákvörðunum á vegum borgarinnar. Svo muni bíða hans góð staða einhversstaðar.
Vantar ekki alltaf góða húsamsiðju á skipulagssvið?
![]() |
Óskar biður um að samningi hans við Faxaflóahafnir verði rift |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2006 | 08:40
Töff
aðstoð í brjáluðu veðri. Þeir voru meira að segja sendir
sérstaklega eftir þeim og svo bara neee... við reddum okkur sjálfir.
![]() |
Erlendir ferðamenn á sumardekkjum afþökkuðu aðstoð björgunarsveitarmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2006 | 08:20
Löngu tímabært
Ég held að margir fagni þessari ákvörðun hjá Sturlu, það er löngu kominn tími til þess að fá varanlegt varasamband við umheiminn.
Þetta er auðvitað bara búið að vera fyndið varðand þetta netsamband hérna heima.
![]() |
Nýr sæstrengur verði lagður fyrir árið 2008 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2006 | 00:45
Ekki gott við svefni
Fyrst þetta er svona örvandi og fínt er væntanlega ekki þessi virði að lesa rétt fyrir svefninn?
Annars er það örugglega rétt, það er ekki bara Shakespeare heldur allt sem örvara heilann. Sukado er sjálfsagt ekkert síðar tól til þess að örva heilann. Xboxið er sjálfsagt fín líka.
Það er helst uppáhaldsiðja landans sem er skaðlega eða sjónvarpsglápið.
![]() |
Shakespeare örvar heilann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2006 | 00:23
Áhugavert sjónvarpsefni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2006 | 23:06
Guðmundur farinn
Það kemur svo sem ekkert á óvart að Guðmundur hafi óskað eftir því að láta af störfum, reyndar svo snögglega að hann lét ekki einu sinni sjá sig í Kastljósviðtali sem hálf þjóðin beið væntanlega eftir.
Sjálfsagt er réttast fyrir Guðmund að taka sér gott frí og meta stöðuna. Sjálfur hélt hann áfram að grafa sína eigin gröf með ótrúverðugum yfirlýsingum um að viðmælendum stöðvarinnar hafi verið gefin fíkniefni. Hver trúir þessu?
Félagsmálaráðherra var hálf vandræðalegur þegar gengið var á hann og hann spurður hvort hann hefði fundið stjórnina. Svörin voru loðin og eftir smá töf, sagði hann að málið væri í vinnslu. Hversu erfitt getur verið að finna stjórn á svona samtökum, þeir hafa greitt milljónir og milljónir ofan og hjóta að hafa gert einhverjar athugandir. Það hlýtur að vera aðgengi að endurkoðum reikningu, og svo hlýtur að vera hægt að fá fundargerðir aðalfuda eins og hjá öllum öðrum félögum.
![]() |
Guðmundur lætur tímabundið af störfum fyrir Byrgið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2006 | 21:53
Dýr borgarabúlla
Mér er nú alveg sama hvort þetta sé fyrstaflokks hráefni, ef maður væri kominn á veitingastað af þessu kaliberi myndi maður líklega panta eitthvað annað en borgara.
Hvað segðu menn annars ef það væri 7500 króna hamborgari á matseðlinum á Holtinu?
![]() |
7.500 króna hamborgari á matseðli Four Seasons í Jakarta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)