Færsluflokkur: Bloggar

Shit happens

Það er ótrúlegt að heyra svona sögur. Væri ekki bara betra að fá aðeins ódýrari hring og fá að gifast þeirri sem þú elskar.

Ég sé þetta alveg fyrir mér, hann að færa ástinni nýskitnum hringnum...


mbl.is Brúðguminn gleypti hringinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kom þetta henni á óvart?

Skildi það hafa komið Margréti á óvart að fóstbróðir Magnúsars Þórs, Guðjón A. Kristjánsson, hafi lýst yfir opinberum stuðningi við hann?  Hún hefur ráðist opinberlega á þá báða.  Hún hefur alla tíð sagst ætla að bjóða sig fram í formann eða varaformann.  

Hver var svo sættin að bjóða sig fram til varaformanns?  Þetta hljómar eins og Margrét ráði þessu bara, hún sé að gera Guðjóni Arnari greiða að hann fái að vera þarna aðeins lengur.   Hún ráði og reki menn í flokknum.

Svo eftir að hún er búinn að ráðast á þá félaga kvartar, hún undan því að hún fái ekki að bjóða sig fram á eigin verðleikum.  Það er eins og hún eigi enga stuðningsmenn í flokknum, eru hún ekki að bjóða sig alveg jafnt fram á eigin verðleikum og aðrir flokksmenn?   

Þetta er auðvitað allt saman hluti af plottinu, Margrét er að spila skák og hefur verið að gera það frá upphafi.   Hún þorði ekki að bjóða sig fram til formanns, því hún veit að Magnús Þór er mun umdeildari en Guðjón Arnar. Með þessu er hún að kalla eftir samúðaratkvæðum.  Hún ein konan á móti vondu strákunum. 


mbl.is Margrét: Hlýt að íhuga að bjóða mig fram í formannsembættið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við vitum þetta

Það þarf ekki Hawking til að segja okkur þessar fréttir, þetta vitum við.  Það er fagnaðarefni hvað Íslendingar eru að verða meðvitaðri um þessi mál á hverjum degi.  

Þetta byrjar allt hjá okkur sjálfum. 


mbl.is Hawking: Loftslagsbreytingar hættulegri mannkyninu en hryðjuverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sleggjann til Frjálslyndra?

Nú hefur Kristinn H. ákveðið að þyggja ekki sætið.  Það vekur athygli að þetta skuli gerast eftir að listinn hefur verið kynntur, en reyndar áður en hann hefur verið samþykktur.   Maður hefði haldið að flokkurinn hefði farið fram á að Kristinn gæfi svar  á undann.

Nú er það spurning hvort Kristinn fari ekki til Frjáslyndra, líklega er það einu sem eru enn með opna lista á þessu svæði en Kristinn er greinilega kominn með næsta leik en hann segir að þetta muni skýrast á næstu dögum.


mbl.is Kristinn H. ekki í framboð fyrir Framsóknarflokkinn í NV-kjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mun tapa

Ef eitthvað kemur Margréti í embætti, þá er það þegar Magnús og félagar bitu á krókinn og ráku hana.  Sverrir og Margrét bjuggu til snilldarplott, hún hegðar sér illa gagnrýnir stóru strákana, kemur svo fram sem saklausa duglega stelpan sem strákarnir eru á móti.

Augljóslega er ég ekki í flokknun, en þetta virðist liggja svo augljóslega fyrir og hreint ótrúlegt að þetta sé að takast.

Ef Margrét var upphefa á móti félögum Jóni og kó, afhverju birtist ekki neitt fyrr en löngu síðar.  Jafnvel kom fram að hún styddi þessar umræður.

Það var svo ekki fyrr en fylgið rauk upp úr öllu valdi að Margrét trompast og snýr algerlega við blaðinu.

Ég held að margir úr flokknum viti allt um þetta og því muni Margrét ekki bera sigur úr bítum.


mbl.is Margrét Sverrisdóttir sækist eftir sæti varaformanns Frjálslynda flokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kristilegavefritið Tadds

Kristilega vefritið Tadds hefur birt greiningu um heimsókna á vefinn sinn

Taddsarar eru konungar einkahúmorsins.   


Enginn á torrent.is

Það fór sem mig grunaði, það þorði enginn að gefa sig fram og bjóða mér á torrent.is enda allt eins víst að ég sé náinn samstarfsmaður Dómsmálaráðherra og stundi persónunjósnir um gesti mína.

Nei, bíðið við það er annar bloggari.

Hvað er bráðun?

Hefði haldið að þetta ætti að vera bráðnun, en bráðun kemur tvisvar fyrir. Ætli þetta sé dregið af bráð og ísinn sé að verða bráð sólarinnar?

Bráðun hafíss hraðar hlýnun andrúmsloftsins

Hæg bráðun hafíss kann að hraða hlýnun andrúmsloftsins mun meira en hingað til hefur verið talið, að því er vísindamenn við Náttúrustofnunina á Grænlandi segjast hafa uppgötvað. Ástæðan er sú, að ísinn bindur koltvísýring úr andrúmsloftinu í hafinu.

 


mbl.is Bráðnun hafíss hraðar hlýnun andrúmsloftsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr tekjustofn?

Spurning hvort þetta sé nýr tekjustofn fyrir ríkið.

 

Skattskylt kókaín

Annað árið í röð hefur Tennessee fylki í Bandaríkjunum grætt meira en eina og hálfa milljón dollara, eða um 106 milljónir íslenskra króna, á eiturlyfjaskatti. Eiturlyfjasalar þurfa að greiða skatt af öllum ólöglegum eiturlyfjum sem þeir eiga en upplýsingar sem verða til þegar þeir borga skattinn er ekki hægt að nota fyrir dómstólum.

Þegar þeir borga skattinn fá þeir vottorð hjá yfirvöldum sem þeir þurfa að sýna á ef lögregla tekur þá fyrir eiturlyfjasölu. Ef þeir geta ekki sýnt fram á að hafa borgað skattinn verða þeir ekki aðeins lögsóttir fyrir að selja ólögleg eiturlyf heldur einnig fyrir að svíkja undan skatti. Dómari í Tennessee hefur sagt að þessi skattur stangist á við stjórnarskrá en yfirvöld í fylkinu segja að skatturinn hjálpi þeim að berjast gegn glæpum og auka tekjur ríkisins.

Sem stendur er gjaldið fyrir gramm af kókaíni 50 dollarar, eða um 3.500 krónur, og fyrir grammið af marijúana er það 3,50 dollarar, eða um 250 krónur. Bandaríska útvarpsstöðin NPR skýrir frá þessu á vefsíðu sinni í dag.

 


Torrent besti vinur Ómars

Ég las á blogginu að mytorrent sé besti vinur Ómars.  Sjálfsagt er Ómar mest að sækja heima gerðar bíómyndir og efni í löglegri dreifingu en það er samt flott hjá Ómari að tala um þessi mál og viðurkenna þetta í leiðinni. 

Staðreyndin er sú að menn vilja ekki viðurkennas svona hluti á netinu af ótta við að lenda í lögfræðihótunum og óttektum.  Hver nennir því eftr að hafa rætt um þessa hluti ógætilega á blogginu.

Svo ekki sé talað um úttekt á heimilinu af svartklæddum mönnum.

Þetta er því yfirleitt feimnismál.  Það sést t.d. best á torrent.is

Það er nokkuð merkileg staðreynd að af þeim 9.299 sem eru inn á torrent.is virðist ég ekki þekkja neinn.  Amk. hef ég ekki rekist á neinn sem á boðslykil á lausu.  Menn eru nefnilega ekki opnari en svo með þessa hluti að samfélagið er lokað og bundið við boð um að fá að taka þátt.

 Ég veit reyndar ekki hversu lokað svona samfélag upp á tæplega 10 þúsund manns er.    Hversu erfitt ætli það sé að verða sér út um boðslykil? Það hefur amk. enginn boðist til að bjóða mér inn í þetta samfélag.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband