Færsluflokkur: Bloggar

Eins og eldur um sinu

Þessi frétt gengur nú eins og eldur um sinu. Þetta er nokkuð magnað, maður er nokkuð hissa á því að þau hafi gefist svona snemma upp.
mbl.is DV kaupir Krónikuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sól í straumi biðst afsökunar

Sól í Straumi hefur beðist afsökunar á auglýsingu sem ég fjallaði um á blogginu mínu í gær. Yfirlýsingin nær þó bara yfir birtingu á RÚV, en ekki þá dreifingu sem farið hefur fram á netinu í þeirra nafni.

Afsakanlegt gáleysi önnum kafins manns

Ég er mjög önnum kafinn maður, þar með er ég greinilega kominn með mjög góða ástæðu gangvart skattinum. Þetta er amk. mat lögmanns Tryggja Jónssonar.

Nú veit ég ekki hvort hann er sekur eða saklaus en rökin eru nokkuð skondin.

Vísir, 29. mar. 2007 10:37

Afsakanlegt gáleysi önnum kafins manns

Jakob Möller sagði við málflutning í Héraðsdómi í dag að meint bókhaldsbrot Tryggva Jónssonar væru mistök sem ættu sér skýringar. Ekki væri um ásetning að ræða eða stórfellt gáleysi, heldur afsakanlegt gáleysi önnum kafins manns. Jakob vísaði þannig til 16. ákæruliðs sem snýr að bókfærðri kredityfirlýsingu frá færeyska fyrirtækinu SMS.

 


Öðruvísi listi

Svansson eru ekki vanur að fara venjulegar leiðir og svo sannarlega gerir hann það ekki með þessum lista.

Maður hefur lent inn á mörgum svona listum "blogg sem ég les" en aldrei hef ég orðið svo frægur að lenda inn á lista af bloggum sem ég veit að eru til en les ekki.

Það kemur lítið á óvart að Matti veit ekki alveg hvernig á að taka þessu. Ég skil það alveg, ég myndi heldur ekki vita hvernig ég ætti að taka þessu ef ég væri á svona lista. Nægjanlega góður eða þekktur til að vera tekinn fram en um leið keyrður í jörðina með að vera ekki þess virði að lesa.

Það er auðvitað það sniðuga við þennan lista. Fæst okkar myndum búa til svona lista, bara vegna þess að við viljum kannski ekki vera að stofna til illdeilna við einhverja sem við lesum ekki.

Mér fannst þetta sniðugt hjá Munda og mjög original.

Ég held bara að ég eigi mér ekki svona lista eða hvað.. hann væri amk. ekki sá sami og Munda.

Allur sannleikurinn?

Múrarabúðin er á fullu með ansi sniðuga markaðsetningu. Markaðsetningu sem er bæði ódýr og áhrifarík. Flestir myndu segja að þetta væri marakaðsetning fyrir neðan beltisstað samt. Það mál líka velta fyrir sér hvort það sé einhver sönnun ef enginn hefur keypt málninguna á þessu verði að hún hafi ekki verið á boðstólnum? Menn hafa væntanlega farið í ódýrari kost hefði hún verið svona dýr.

Málningarbransinn hefur alltaf verið dálítið skrýtinn bransi í þessum efnum, ég held að árásin á Byko eigi engan sérstakan rétt á sér. Farið og ræðið við þá sem eru bara að selja málningu, þar eru líka alls konar mjög sérstakir "dílar" í gangi.

Það er samt tiltölulega einfalt fyrir fólk að horfa fram hjá þessum afsláttum. Hvað kostar að mála íbúðina. Þar eru Múrarabúðin heldur ekki að koma eðlilega fram, þeir vita að það skiptir margt máli um gæði svona málningar, t.d. hvað er mikið þekingarefni í henni. Ég hef reynt þessa málningu frá Múrarabúðinni og þurfti að fara mun fleiri umferðir yfir dökka veggi en þá málningu sem hef ég áður notað. Það kostar því ekki bara efnið, heldur líka minn tíma við að mála.
mbl.is Segja afsláttarmálningu aldrei hafa verið selda á upprunalegu verði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

64 ÞÚSUND hús

Hver segir svo að það sé ekki bullandi góðæri á Íslandi? Verði þetta af veruleika mum um 20% Íslendinga eiga beint hús, það er þá fyrir utan fjölskyldurnar sem standa að baki þessum einstaklingum, sem mun væntanlega þýða að önnur hver fjölskylda á orðið sumarhús.
mbl.is Skipulagðar frístundabyggðir rúma allt að 64 þúsund frístundahús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tekur að segja frá þessu?

Það tekur varla að segja frá þessu, þessi undirskriftarsöfnun fer í bækurnar sem dýrasta undirskriftarsöfnun, með einum minnsta árangrinum. Menn þar á bænum hljóta að vera mjög ósáttir með árangurinn, enda hefur lítið heyrst frá þeim undanfarið.
mbl.is Nærri 8200 hafa skrifað undir sáttmála Framtíðarlandsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg fráleitt

Manni finnst þetta alveg ótrúlegt, má ég sem sagt fara setja upp myndavélar í kvennaklefum bæjarins og sýna öðrum. Bara ef það er ekki hægt að sanna að ég hafi fengið eitthvað út úr því?

Ef þetta er málið er alveg ljóst að það verður eitthvað að laga til þarna, nú þegar allir eru komnir með myndavéla síma get er ekki hægt að sætta sig við að það sé jafnvel tekið mynd af manni í karlaklefanum, þessu dreift og svo er bara sagt skamm.
mbl.is Sýknaður af ákæru fyrir að taka mynd af naktri konu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er líkt með Sjálfstæðisflokknum og Rússavodka?

Guðmundur Steingrímsson kemur með brandara um Sjálfstæðisflokkinn í kjölfar Brandara Jóns Axels.
Tja, hvað er líkt með Sjálfstæðisflokknum og Rússavodka?

Jú, báðir gefa sig út fyrir að vera 40% en eru í raun 15% og stórhættulegir í þokkabót.
Einhverra hluta á ég von á því að brandari Jóns Axels eigi eftir að lifa lengur. Það má alveg brosa út í annað yfir brandara Guðmundar. Sérstaklega hvað línan "Bæði rauð og bitur" lýsir Guðmundi vel þarna.

Ert þetta ekki ári of snemma?

Vissi ekki að þetta væri komið á það stig að menn væru farnir að taka á móti áli. Þetta kemur mér mikið á óvart. Hvað ætli það sé langt þangað til að framleiðsla raunverulega hefjist?
mbl.is Fyrsti súrálsfarmurinn kominn til Reyðarfjarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband