7.6.2007 | 10:04
Alls engin stjórnarandstaða í borginni
Það er með eindæmum að það er bara alls ekki nein stjórnarandstaða í borginni. Það hefur komið meiri gagnrýni á störf Sjálfstæðismanna úr eigin ranni heldur en nokkurn tíman frá þeim flokkum sem eiga að vera að gera það. Eini maðurinn sem hefur haldið uppi nokkuð stöðugri stjórnarandstöðu er Dofri Hermannsson, hversu útúr fríkað sem það sumt hefur verið. Hann hefur þó amk. verið í andstöðu.
Hvar eru vinstri græn í borginni? Hvar eru Frjálslyndir? Hvar er Samfylkingin?
Dagur hreyfði litla putta um daginn í þessu strætómáli, hann nýtti tækifærið og gangrýndi málið á einum fundi. Síðan gerist ekki neitt. Hvar eru framkvæmdarstjórnmálin Dagur? Láta sjá sig í Árbænum tala við fólkið (þitt). Hvar var stjórnarandstaðan þegar Björn Ingi var að braska með lóðir í Faxaflóahöfnum? Hvar voru þeir þegar allt var brjálað í Grafarvogi út af líkbrennslunni? Hvar voru þeir í kringum brunann mikla? Hvar voru þeir í spilakassamálinu? Svo mætti lengi telja.
Ég veit ekki hvort þetta sé einhver ný taktík í pólitík, einhver svona svæfingartaktík. Svæfa andstæðinginn og koma svo aftan að honum rétt fyrir kosningar og draga fram öll þessi mál. Vandamálið við þá taktík er að þeir líta bara ekkert vel út. Á meðan þeir hefðu haft fullt af höggstöðum og gætu aflað sér vinsælda virðast þeir sjálfir vera alveg stein sofandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2007 | 09:54
Ekki á leiðinni til 365
![]() |
Magnús Ragnarsson stefnir Ara Edwald |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.6.2007 | 20:29
Bloggvinur Staksteina
Í kjölfar þess að Þórir Guðmundsson veltir því fyrir sér hvort Staksteinar sé ekki bara velheppnað blogg, þá tók ég eftir því að á leiðarsíðu Moggans eru komnir inn nokkrir bloggvinir.
Það er ekki leiðinlegt að vera bloggvinur Staksteina.
Það kemur reyndar alltaf á óvart hversu fáir lesa þetta blogg Moggans. Í dag eru 34 búnir að kíkja inn á þetta blogg.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.6.2007 | 15:59
Afnemum lögin
Það á auðvitað að afnema þessi lög sem fyrst. Skil ekki hvernig menn sætta sig við Ríkisrekna stjórnmálaflokka.
Varðandi þessa meintu innkomu er spurning hvernig á að stoppa þetta. Það vitað það allir að þessi útgáfa af DV hafði engin áhrif á fylgi Framsóknarflokksins, blaðið skrifaði nú ekkert sérstaklega vel um aðra flokka heldur og lestur þess er nú ekki neitt til að hrópa húrra yfir, þótt blaðinu hafi í þessu tilfelli verið dreift inn á hvert heimili. Hvað vilja menn í þessum efnum? Ritskoðun á efni blaðanna? Hver sem er getur labbað niður í Póstinn og fengið dreifingu á fjölpósti á öll heimili landsins. Þessi nýju lög höfðu ekkert með það að gera að DV ákvað að fara í kynningarátak, sem tókst svona rosalega vel með hjálp Guðna.
Varðandi auglýsingu Jóhannesar á hann peninga, eins og svo margir aðrir. Ég bendi á að menn hafa reynt að hafa áhrif á álit manna með slíkum auglýsingum áður, ég minni t.d. á auglýsingu sem nokkrir ungir Sjálfstæðismenn stóðu að eftir SUS þing 2005. Íslendingar fjárfestu einnig í auglýsingu í NYT, vegna Íraksstríðsins, en að baki henni voru hvorki meira né minna lýðræðissinnarnir þjóðarhreyfingin. Það er vandséð hvernig ætti að stoppa þetta. Þeir ofurpeningar sem Jóhannes á, hafa í raun lítið með þetta að gera, fjölmargir einstaklingar geta mjög auðveldlega keypt sambærilegar auglýsingar fyrir nokkra hundraðþúsund kalla.
Hafi menn séð einhver öfl sem upp komu til að komast fram hjá þessum lögum, voru það minni öfl heldur ég átti von á. Ég átti t.d. von á að sjá meira auglýsingum frá umhverfisverndarsinnum eða öðrum slíkum hópum sem vildu beina umræðunni í átt að þeim málefnum sem þeir voru að berjast fyrir. Það er heldur ekki hægt að saka neinn flokk um að hafa verið í tengslum við ákveðin samtök fyrir utan flokkinn sem beittu sér gegn öðrum flokkum.
Framsóknarflokkurinn auglýsti alveg jafn mikið, flokkarnir virtust hafa sama magn undir höndum. Eini munurinn var kannski sá að þetta var ekki fjármagnað af fyrirtækjum eins og oft áður heldur vorum það við sem sáum til þess að flokkarnir hefðu fjármuni til þessa. Ég er ekkert upplýstari um bókhald flokkanna, fyrir utan að vita að það er Ríkið sem greiðir brúsann.
![]() |
Fara þarf yfir lög um fjárstuðning við stjórnmálaflokka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.6.2007 | 14:44
Egill birtir hjá Pétri
Nú hefur Egill ákveðið að nýta sér Bloggið sem miðil og fær Petrum til að birta tilkynningu. Kemur skemmtilega óvart í ljósi greina sem hann skrifaði um bloggið sitt um blogg og bloggara. En með lestur eins og Petrum er með, er þetta sjálfsagt með áhrifaríkari leiðum til að koma skilaboðum á framfæri. Aldrei sá maður lestur á síðu Egils, en ég væri ekki hissa þótt hann væri minni en lestur vinsælustu moggabloggaranna.
365 er sem sagt búið að loka á bloggið hans. Þetta er ekkert sem kemur á óvart, eins og ég skrifaði í gær átti ég von á að þeir hefðu gert þetta strax. Það hefði verið skrýtið fyrir fyrirtækið að vera með mann bloggandi óritskoða á vef fyrirtæksins, hugsanlega nýð um fyrirtækið, um leið og menn væru í deilum við viðkomandi. Það var auðvitað ljóst að Egill var kominn með aðrar vistarverur og hugur hans var í aðra átt.
Nú hafa þeir sem sagt farið mikla frægðarför og náð því gegn að Egill mun vinna upp uppsagnartímann sinn sem eru 3 mánuðir. Ég veit svo sem ekki hvað menn bjuggust við meira, fyrst þetta var samningurinn sem hann var með og menn vissu allan tímann af.
Menn hafa mikið rætt um "flótta" frá 365, en það þarf varla að koma mönnum á óvart að fjölmiðlamenn leiti í meira starfsöryggi en það sem boðið hefur verið upp á undanfarin ár. Væntanlega er það eitthvað sem menn verða líka að hugsa um.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.6.2007 | 12:53
Ó Ó strætó
Það gengur auðvitað ekki að kenna R-listanum um hvernig er komið fyrir strætó, menn hafa verið með heilt ár til þess að laga kerfið. Miðað við þá gagnrýni sem Sjálfstæðismenn voru með á strætó, hljóta menn að hafa verið með einhverjar lausnir á vandanum.
Auðvitað er pólitík í strætó, sama pólitík og Sjálfstæðismenn héldu upp þegar þeir voru ekki við stjórnvölin. Ég get bara ekki séð hvernig þjónustuskerðing hjálpar þeim fáu notendum sem nú notast við strætó. Ég skil heldur ekki hvernig það hjálpar íbúum í Árbæ að leiðin sem fór áður niður Miklubraut fari nú niður Sæbraut.
Ég held að menn verði að fara að gera eitthvað í þessum málum eða henda þessu kerfi. Það er alveg ljóst að kerfið er handónýtt.
Ég minni á grein Pawels vinar míns um strætókerfið, hann veit mjög vel hvað hann talar um enda einn ötulasti notandi strætó sem ég þekki og búinn að nýta sér kerfið frá upphafi.
Almenningssamgöngur R.I.P.
![]() |
532 milljóna króna tap á Strætó í fyrra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.6.2007 | 12:39
Ekki leiðinlegt
Það er ekki leiðinlegt að fá svona 200 þúsund kall á mánuði aukalega í vasann, ekki síst þegar menn eru með 1200 þúsund fyrir.
Nú bregður svo við að enginn lætur í sér heyra, oft áður hefðu ýmsir látið í sér heyra eftir slíka launa hækkun. Væntanlega er fólk orðið ónæmt fyrir þessu eftir alla milljónasamningana sem hafa verið gerðir undanfarin ár.
![]() |
Samþykkt að hækka laun seðlabankastjóra um 200.000 kr. á mánuði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2007 | 18:10
90% vatn
Þáttastjórendur á Bylgjunni gerðu óspart grín af öðrum fjölmiðlamönnum í gær. Í dag bregður svo við að þeir fullyrða að við séum 90% vatn. Eitthvað hefur nú vatnsmagnið aukist síðan ég var í líffræði.
Eru vatnsheilar hér á ferðinni?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2007 | 17:52
Gott mál - Kannski veitir ekki af
![]() |
Samþykkt að stefna að staðfestingu siðareglna borgarstjórnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2007 | 17:27
Tel mig ekki vera rasmisma
Tilvitnun dagsins á Bylgjunni var kona sem taldi Asíu búa síðri verkamenn á spítulum.
"Ég tel mig ekki vera rasisma, eða hvað það nú heitir".
Fljótlega á eftir kom annar sem hafði unnið með "slíku fólki" og taldi það vera hörkuduglegt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)