19.6.2007 | 15:26
Heitt
Við í Íshúsinu erum alltaf ánægð að lesa svona:
http://tryggvienator.blog.is/blog/tryggvienator/entry/242866/
Enda loftkæling "heit" þessa dagana.
Þegar ég byrjaði á þessu hlógu margir, en sá hlátur hefur heldur betur minnkað, enda nóg að gera þessa dagana.
19.6.2007 | 14:50
Góður þáttur
Ég var ánægður með þáttinn í gær hjá David Attenborough, þetta var einmitt umhverfisvernd að mínu skapi. Það mætti sýna miklu meira af svona fræðsluþáttum, málið er að umhverfisverndin er best heima hjá okkur sjálfum og við þurfum að hugsa þetta.
Svona þættir skila helling, maður fer að hugsa um þessi mál en við Íslendingar búum við ódýra orku og því hugsa menn síður um þessa hluti.
Ég verð seint samt í hópi umhverfissinna, og hef ekki reynt að halda því fram um sjálfan mig. Ég hef samt gert ýmislegt eins og að fá réttar ruslatunnur fyrir utan blokkina hjá mér (dagblaða og lífrænn úrgangur), einnig flokka ég ruslið eins og ég get og skila á rétta staði.
Maður gæti samt gert meira og svona þættir hjálpa þar til.
Hitt sem manni finnst merkilegt er hversu langt menn sækja sumar afurðir sem eru seldar hér í búðum, hvað ætli ananas frá Argentínu hafi farið um marga tengipunkta og fengið að dúsa í mörgum bílum áður en hann náði að komast heim í ísskápinn hjá okkur. Hann er samt góður og ég kaupi hann.
Ég er líka nokkuð duglegur að keyra, og það ávallt einn (eða svo gott sem). Eyði yfirleitt nokkuð löngum tíma á hverjum degi að keyra. Ég ek ekki heldur um á neinum hybridbíl með litla vél. Fannst það tímana tákn að dælan neitaði áðan að afgreiða mig um meira en 10 þúsund kall á bílinn og hann var ekki orðinn fullur. Segir nú kannski meira um verðið á eldsneytinu, það hefur hins vegar ekki minnkað aksturinn hjá mér. Hugsanlega gæti það haft áhrif næst þegar ég kaupi mér bíl, þá spyr ég kannski út í eyðsluna um leið og ég fæ að vita hvað álfelgurnar kosta :)
19.6.2007 | 12:53
Grein um lífeyrissjóði
Las í morgun áhugaverða grein um Lífeyrissjóði, sérstaklega sjóðinn Vista. Þessi grein sagði hvernig ungur maður var prettaður til þess að taka inn Vista sjóðinn, þegar hann ætlaði bara að leita upplýsinga.
Þegar ég var framkvæmdarstjóri í stærra fyrirtæki með nokkuð marga unga menn í vinnu, var ég var við þetta. Mönnum var sagð einhver svakaleg fín saga um hvað þeir ættu eftir að hafa það fínt í ellinni, minna fór af því að segja mönnum frá kaupum og kjörum. Svo voru menn í raun ekkert nær hvað þeir voru að skrifa upp á. Svo kom bara miði til mín með upplýsingum um að þarna átti að hefja greiðslur, þegar þeir voru spurðir komu vissu þeir ekkert í sinn haus, það hafði bara einhver hringt og sellt þeim þetta.
Ungi maður endaði á að bölsóttast almennt út í lífeyrissjóði og ríkidæmi þeirra. Þessir gömlu sjóðir þurfa ekkert á verktökum að halda til að afla félaga, enda er það að mestu á sjálfstýringu hjá fólki. Hins vegar eru það þessi viðbótarsparnaður sem þarf að huga að og það er þar sem þessir verktakar eru að reyna að ná til fólks. Mest virðast þeir miðað á ungt fólk, sem kemur lítið á óvart ef þeir fá þóknun af öllum greiðslum það sem eftir er.
Þessir ágætu lífeyrissjóðir þurfa líka eitthvað að fara að endurskoða launakjör æðstumanna sinna, sðelabankastjóri bliknar í samanburði við þau laun. Hvaða ástæður eru fyrir því að greiða mönnum slík laun, í sjóðum þar sem þarf lífeyrisgriðslur yfir 100 manns til að standa fyrir launagreiðslum framkvæmdarstjóra sjóðisins?
19.6.2007 | 10:28
Fær 365 eitthvað?
Þegar ég les þessa frétt velti ég fyrir mér hvort 365 hafi fengið eitthvað? Er þetta spurning um að komast út úr hlutunum "gracefully"? Mætti ekki Egill bara með pappírana sína, ekkert skriflegt og þá staðreynd að ef það ætti að þvinga hann til að vinna, yrði honum ekkert úr verki.
Hvað um það er þetta líklega það besta sem 365 hefur gert í þessu máli. Ég held að þeir komi miklu strekari út úr þessu en áður.
![]() |
Egill og 365 ná samkomulagi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.6.2007 | 10:18
Allt í hassi hjá flassi?
Undanfarna daga hafa komið umfjallanir um Flass.net á fréttablaðinu, það hefur verið ótrúlegt að fylgjast með þeim halda "faci" á meðan ásakanir hafa komið fram það hefur alltaf eitthvað verið að, reikningar ekki borist eða mönnum hafi verið greitt.
Það er greinilegt að fyrirtækið er komið í strand og þeir eiga einfaldlega ekki peninga, hins vegar halda þeir áfram væntanlega í von um betri tíð. Eða hvað?
Ég hef stundum rekið augun í þetta fyrirbæri og fundist merkilegt, þetta eru fjölmörg fyrirtæki í mjög ólíkum rekstri undir einum hatti. Skókóngurinn virðist ekki lengur bara vera skókóngur, heldur með viðburðaþjónustu, útvarpsstöð og blaða útgáfu. Guð má vita hvað meira.
Hins vegar er hann með einhvern óharnaðan strák í framlínunni sýnist manni. Menn þurfa auðvitað að íhuga hvar þeir setja nafn sitt og að vera framkvæmdarstjóri á vinnustað, þar sem maður hefur ekki raunverulega yfirsýn getur haft veruleg áhrif. Við sjáum eins og Japís, Stefán Hjörleifsson var dæmdur, þrátt fyrir að eigin sögn að hafa ekkert komið nálægt þeim skattsvikum sem fram fóru. Hann var framkvæmdarstjóri. Punktur.
Ég veit auðvitað ekkert hvort eitthvað slíkt er í gangi hérna.
18.6.2007 | 19:17
Næst vinsælasti vefur landsins skráður
Tók eftir því að Bjarni Ingimar hefur skráð gamlan jók, en það er að skrá mlb.is, fjöldi manns gerir þá villu að skimpla inn mbl.is.
Þetta á sjálfsagt eftir að vera vinsæll vefur, það væri gaman að vita hvað Bjarni ætlar að gera við lénið.
18.6.2007 | 19:13
Silfrið enn á forsíðu
Það vekur athygli að vefur silfur Egils er enn auglýst á forsíðu Vísis. Þetta er eftir alla umræðuna og aðgenginu var lokað.
Afhverju skildu þeir ekki hafa tekið út linkinn?
18.6.2007 | 09:35
Vekur athygli
Það vekur athygli að ég get vippað mér inn í næstu háspennu og keppt um 12 milljónir eins og maður hefur oft séð auglýst. Þessir kassar eru nokkuð víða um borgina. Hins vegar þegar nokkrir spilara mæta live og spila um 600 þúsund er mótið stöðvað.
Hvað með Bingó í vinabæ? Er munur á því að spila bingó eða póker? Í báðum tilfellum leggja menn pening undir og vonast eftir vinning.
Ég er enginn sérstakur aðdáandi þessar pókermóta, en það verður eitt yfir alla að ganga.
![]() |
Pókermót stöðvað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.6.2007 | 09:19
Kæruleysi
Þetta er auðvitað algjört kæruleysi eða þekkingarleysi. Það hefur lengi verið eitt helsta ráðið að ef þú færð þér slíkt kort, þá notar þú það ekki í eigin heimalandi. Danskan löggan hefði ekkert getað gert við kort sem hefðu verið notuð í eitthvað af heitulöndunum.
Sem betur fer er svona í algjöru lágmarki hérna heima, með því ágæta skattkerfi sem við höfum við líði er ekki nokkur ástæða fyrir íslenska auðmenn að flytja peningana sína úr landi. Við sjáum greinilega á þessu dæmi hvernig þetta verður ef skattar verða hækkaðir.
Ég held að íslensku auðmennirnir eigi ekki eftir að klikka eins og þeir dönsku.
![]() |
Dönsk skattayfirvöld innheimta skatt af leynisjóðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.6.2007 | 21:36
Íslensk klámmyndaframleiðsla
Ég veit ekki hvort íslenska klámmyndaframleiðsla sé nokkuð nýtt. Það voru amk. alltaf sögur í gagni um eina slíka.
Nú hefur hins vegar ungur maður stigið fram og rætt fjálglega um þetta, um leið hafa allir fréttamiðlar griipið fréttina og fjallað um þetta. Ekki síst nýjan vef mannsins, sem á að dreifa klámefni. Ég las einhver lög um málið og spurnig hvernig lög ná yfir þennan vef, þar sem hann á ekki að birta eigið efni en hins vegar að vísa á aðra vefi sem gera það. Fyrir utan þá þessar væntanlegu myndir. Mikhael Torfason lenti í umræðunni fyrir nokkrum árum þegar hann sagði frá klámsíðu á strik.is.
Ég er nokkuð viss að það verði ekkert af þessi framleiðslu og aldrei hafi staðið til. Hins vegar má búast við spreningu í heimsóknum á þennan vef í kjölfarið.
Ég efast samt um að hann eigi eftir að hagnast mjög á þessum vef. Það er væntanlega fáir sem hafa áhuga á að auglýsa á þessum vef. Helst Geiri í Goldfinger, hann hefur meira að segja hagsmuna að gæta um þessar mundir að klámumræðan beinist eitthvað annað.