25.2.2007 | 16:17
Óli frændi orðinn klerkur
Nota tækifærið og óska Óla frænda til hamingju með daginn.
Yngsti klerkur landsins
Það verður stór stund í lífi Ólafs Jóhanns Borgþórssonar þegar hann verður vígður til prests. Auk þess markar vígsl-an önnur tímamót, því Ólafur Jóhann er aðeins á 26. aldursári og verður því yngsti prestur landsins. Ekki þó frá upphafi," áréttar hann. En þetta er sannarlega skemmtilegt þótt það sé auðvitað aukaatriði í sjálfu sér."
Ólafur er Eyjapeyi og ákvað það fyrir margt löngu að gerast prestur. Ég ákvað það þegar ég var í 8. bekk og hef haldið nokkuð fast í það síðan. Það verður því ekki síst skemmtilegt að fá brauðið í ljósi þess að ég hef stefnt að þessu lengi." Þótt Ólafur Jóhann hafi lengi haft áhuga á trúmálum er hann ekki kominn af mikilli prestaætt. Ég á einn fjarskyldan ættingja sem er prestur. Áhugi minn á starfinu kviknaði þegar ég var ungur og starfaði mikið í æskulýðsstarfi kirkjunnar í Vestmannaeyjum.
Þar fylgdist maður með starfi prestanna og því sem fylgdi, þar á meðal að taka þátt í stærstu stundum í lífi fólks. Prestar vinna að góðum hlutum og auðvitað á trúin ríkan þátt í þessu; að boða hinn æðsta boðskap er skemmtilegt og krefjandi verkefni sem mig langar að taka þátt í."
Ólafur Jóhann verður vígður til Seljakirkju og stígur því sín fyrstu skref í prestsskap í Reykjavík og líkar það vel.
Ég er mikill landsbyggðarmaður í hjarta mér og vissulega væri spennandi að fara út á land, en hér í borginni er líka nóg af fólki. Ég hef starfað í Seljakirkju í hartnær tvö ár, sinnt æskulýðsstarfi og fleiru, og kann vel við mig í þessari sókn."
Ólafur býst við að halda upp á daginn með fjölskyldu sinni. Við eigum sjálfsagt eftir að gera eitthvað skemmtilegt saman. Ég hlakka mikið til, þetta verður ábyggilega góður dagur og það er mikið og spennandi starf fram undan."
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.2.2007 | 17:05
Bloggar í ritarann
Til hamingju Sóley, þú ert væntanlega einu skrefi nær að bjarga heiminum :)
![]() |
Steingrímur endurkjörinn formaður og Katrín varaformaður VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.2.2007 | 19:45
Nýjir staðlar
![]() |
Einkaleyfisdeila gæti haft víðtæk áhrif á fyrirtæki sem nýta sér MP3-tæknina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.2.2007 | 18:48
Tvískynjungsháttur
Nú eru þeir að íhuga að hætta sýningu á "ljósbláum" myndum. Skemmtilegt orðalag! Þeir eru ekki að bjóða upp á klám heldur "ljósblátt".
Svo afsaka þeir sig með eftirfarandi orðum:
"Þessar kvikmyndir séu frá viðurkenndum söluaðilum og framleiddar með löglegum hætti."
Ha! Hvað eru þeir að meina, er ekki klám bannað á Íslandi? Þessir aðilar sem þeir hentu út fyrr í dag, framleiða einmitt "löglegt klám". Hvernig verða menn svo viðurkenndir söluaðilar á klámi?
Þetta er auðvitað tvískynjungsháttur af verstu sort.
![]() |
Eigendur Hótel Sögu vilja hætta að sýna ljósbláar myndir gegn gjaldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.2.2007 | 18:39
Átak hjá vindlinga framleiðendum?
Ætli við eigum von á auglýsingum í gegnum netið?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2007 | 17:09
Eðlilegt
![]() |
Klámframleiðendur ætla að leita lögfræðiaðstoðar vegna fjárhagslegs tjóns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2007 | 16:33
Bændur til bjargar
Við þessu er svo sem ekkert að segja, eigendum hótelsins er frjáls að úthýsa þessum mönnum eins og öðrum gestum.
Það er þó eftirsjá eftir 150 gestum, sem voru hver og einn tilbúinir að greiða um 100 þúsund krónur í skráninguna, fyrir utan annað sem þeir hefðu eytt hér á landi.
Þó svo að nú sé fagnað víða, veit ég svo sem ekki hverju er verið að fagna. Er verið að fagna því að þetta fólk ætlaði að koma hingað og skemmta sér? Er verið að fagna minna klámi? Er verið að fagna því að þetta fólk fái ekki að skemmta sér?
Það er svo sannarlega ekkert minna klám Íslandi, áfram er hægt að nálgast það á næstu bensínstöð eða fara á súlustaði.
Miðað við umræðu undanfarinna daga er ljóst að maður tekur með efa upplýsingar um þessi málefni. Það hafa verið ótrúlegir öfgar í gangi um tilganginn og hvað þetta fólk sé að gera.
![]() |
Hætt við klámráðstefnu hér á landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.2.2007 | 13:17
Ný auglýsing fyrir Dominos
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2007 | 12:41
Ekki í liði með foreldrunum
Það skildi svo ekki vera að þetta sé allt hluti af PR leik. Justin og Britney bara í kósýheitum að skálda í eyðurnar og dæla í fjölmiðla.
Þetta er allavegna orðin veruleg sápa.
![]() |
Timberlake hrifinn af snoðklippingu Spears |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2007 | 12:32
Ekki í áskrift!
Ég vona að þeir ákveði ekki að fara í gamla farið, það á auðvitað eftir að koma í ljós. Við vitum að sorpið selur.
![]() |
DV dagblað að nýju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)