19.10.2007 | 20:30
Erfitt líf
Ég hef undanfarið horft á myndir, þar sem hundruð ljósmyndarar nánast umkringja bílinn hennar, Britneyjar.
Það kemur mér ekki minnst á óvart að einhver hafi orðið undir bílnum hennar, miðað við áganginn.
Ekki að þetta sé fullkomlega sambærilegt, en þá minnir þetta mig helst á hunda á sveitarbæjum hér á landi. Svo lengi sem hún keyrði ekki eins og asni þá ef keyrt er á hundana, er það þeirra eigin vandamál en ekki þitt.
Ég skil amk. ekki ef þetta verður á hennar kostnað! Maður vorkennir henni þegar hún er að reyna að komast í burtu á bílnum sínum með allan þennan haug handandi utan á bílnum.
Hún ætli kannski að hætta að sýna á sér píkuna á sér. Eina góða ráðið fyrir hana, þá hætta þeir kannski að liggja svona mikið á glerinu á bílnum hennar.
![]() |
Britney ók yfir fótinn á ljósmyndara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.10.2007 | 15:41
Valhallarfundurinn
Því miður komst ég ekki á Valhallarfundinn í gær, en hins vegar hef ég notað tækifærið og rætt við marga menn í kjölfarið á fundinum. Þeir eru flestir sammála um að þetta hafi verið góður fundur og menn hafi fengið gott tækifæri til þess að meta stöðuna.
Ég var samt ekki undrandi á að lesa svona bréf, það kemur ekkert á óvart að einhverjir skuli hafa verið óánægðir með þennan fund. Í svo stórum flokki eru aldrei allir ánægðir, en sá sem þetta ritar er hins vegar ekki maður til þess að koma undir nafni, sem bendir til áreiðanleika þessa bréfs.
Ég vildi að ég hefði haft heislu til þess að mæta og fá að sjá þetta, það hefur verið fróðlegt að sjá hvernig þetta hefur verið til þess að geta metið það frá fyrstu hendi hvernig fundurinn hefur fram. Eins og með svo marga fundi sem eru haldnir að baki luktum dyrum, eru það fyrst og fremst raddir þeirra sem voru óánægðir sem maður fær að heyra í fjölmiðlum.
18.10.2007 | 08:29
Þessu verður að breyta
Ég skil bara ekki þessa þrjósku, það er greinilegt að Árni Matt þarf að labba niður í Tollstjóra og leiðrétta það. Það er bara ekkert eðlilegt við að innheimta þennan skatt, fyrir utan allt það smygl sem er í gangi á þessum tækjum.
Þetta er alveg gjörsamlega út í hött! Ég trúi því bara ekki að menn ætla að halda þessu til streitu.
![]() |
iPod tollurinn er kominn til að vera |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.10.2007 | 22:29
Fyndið
Það verður gaman að sjá hinar í hópnum sanna að þær hafi gert samning við þá sem fékk vininnginn. Það er líka skemmtilegt að eiga 120 milljónir í vasanum og tíma ekki að gefa hinum smá pening.
Þarna sannast það sem hefur svo oft verið sagt, að margur verður af aurum api.
Minn bingó vinningur....nei minn
Breskur dómari hefur stöðvað greiðslu á 120 milljóna króna bingó vinningi eftir heiftarlegar fjölskyldudeilur um hver ætti hvað. Enginn dregur í efa að hin 69 ára gamla Jean McCullagh átti miðan sem vinningurinn kom á, síðastliðið föstudagskvöld.
Með henni í bingó salnum voru hinsvegar systir hennar og tvær mágkonur. Þær halda því fram að það hafi verið fyrirfram ákveðið að ef einhver þeirra fengi vinning skyldu þær skipta honum jafnt. Því neitaði Jean eftir að hún hafði fengið vinninginn.
Systirin og mágkonurnar fóru því beint úr bingósalnum til næsta lögfræðings. Auk þess að stöðva greiðslu vinningsins frysti dómarinn bankareikning Jean, þartil hann hefði fengið tækifæri til þess að skoða málið betur.
17.10.2007 | 19:20
Launakjör Útvarpsstjóra
Það er merkilegt hvernig launin hafa rokið upp hjá Páli, ég vildi að ég gæti sótt mér slík laun eins og hann. Hann hefur passað sig á að svara engu, ekki einu sinni þegar hann sótti sér þennan fína bíl úr vösum okkar skattgreiðanda.
Það er eiginlega nokkuð merkilegt að fulltrúi VG hafi mælt með þessu. Nú eru þingmenn flokksins alveg brjálaðir. En afhverju samþykkti þá fulltrúi VG þessi launakjör? Eru þingmennirnir ekki í neinum tengslum við fulltrúa sinn?
Orðið tekur á þessu en kemur svo með skrýtna setningu í lokin:
Baldvin er þrautreyndur félagsmálamaður sem býr að margra ára starfi innan ungliðahreyfingar Sjálfstæðisflokksins.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.10.2007 | 11:42
Veistu Leyndarmálið
Ég horfði á myndina Leyndarmálið fyrir nokkrum vikum og fékk svipaðan kjána Hroll og þegar ég horfði á Ásgeir Kolbeinsson í tekinn.
Mæli með lestri á greinninni
Leyndarmálið gert opinbert
af Deiglunni.
17.10.2007 | 11:09
Bull og vitleysa
Þetta er nú meira bullið. Hverjum dettur í hug að hafa síma í ábyrgð í 5 ár? Hvers konar framleiðslugalli er það sem á að koma í ljós eftir 5 ár?
Um leið og maður er hlyntur neytendavernd, þá er lítil neytendavernd í svona bulli. Eina sem svona bull gerir er að hækka verðið á símunum. Þegar verslanir eiga von á því að fá síma í hausinn eftir 4,5 ár, eftir að hafa verið í handtöskum, dottið í gólfið og guð má vita hvað þessir símar lenda í.
![]() |
Fimm ára kvörtunarregla gildi um GSM-síma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.10.2007 | 10:37
Kína komin á hreint
Þá er ferðin mín til Kína komin á hreint, ég fer sem sagt 31. október næstkomandi og verð í viku. Ég er mjög spenntur að fara í þessa ferð en þetta er síður en svo fyrsta ferðin mín til Kína en að þessu sinni er ég að fara inn á nýtt svæði sem ég hef aldrei komið inn á áður. Ég mun líka ferðast meira á eigin spýtur en ég hef áður lagt í.
Nú er bara að sjá hvernig þetta á eftir að ganga og hvort ég fái ekki góðan díl út úr þessu.
16.10.2007 | 23:13
is proud to be a Framsóknarmaður
Í kvöld bættust nokkrir skólafélagar úr MR á listann hjá mér á Facebook. Þegar ég smellti á listann yfir þeirra vini birtist þessi setning hjá einni undir status:
is proud to be a Framsóknarmaður.
16.10.2007 | 22:48
Satt og logið
Það virðist vera eitt helsta svar við spillingarumræðu Framsóknarmanna, að svara að kosningastjóri Vilhjálms og Guðlaugs Þórs hafi verið stjórnaformaður Rei.
Eitt er víst að kosningastjóri Villa og Gulla var ekki sami maðurinn, og því frekar skrýtið ef viðkomandi var í forsvari fyrir REI. Já, og stjórnarformaður REI var hvorki kosningastjóri Gulla né Villa.
Hann fékk ekki kauprétt og var farinn úr fyrirtækinu áður en það tók þær umbreytingar sem síður urðu.
Kosningastjóri Björns Inga kom hins vegar síðar inn og til stóð að hann fengi góðan bónus, betri en síðar var kynnt.
Það er gaman að heyra í þeim núna væla hátt framsóknarmönnum yfir óréttlætinu og hvernig er komið fram við þá. Hversu eðlilegt sem þessi framkoma er sem undanfarið hefur verið í gangi, eru þeir bara ekki hót betri.
Þeir eru jú í pólitík.