Fyndið

Það verður gaman að sjá hinar í hópnum sanna að þær hafi gert samning við þá sem fékk vininnginn.  Það er líka skemmtilegt að eiga 120 milljónir í vasanum og tíma ekki að gefa hinum smá pening.

Þarna sannast það sem hefur svo oft verið sagt, að margur verður af aurum api.

 

 

Vísir, 17. okt. 2007 16:52

Minn bingó vinningur....nei minn

mynd
Ekki náðust sættir um hver ætti bingó vinninginn.

Óli Tynes skrifar:

Breskur dómari hefur stöðvað greiðslu á 120 milljóna króna bingó vinningi eftir heiftarlegar fjölskyldudeilur um hver ætti hvað. Enginn dregur í efa að hin 69 ára gamla Jean McCullagh átti miðan sem vinningurinn kom á, síðastliðið föstudagskvöld.

Með henni í bingó salnum voru hinsvegar systir hennar og tvær mágkonur. Þær halda því fram að það hafi verið fyrirfram ákveðið að ef einhver þeirra fengi vinning skyldu þær skipta honum jafnt. Því neitaði Jean eftir að hún hafði fengið vinninginn.

Systirin og mágkonurnar fóru því beint úr bingósalnum til næsta lögfræðings. Auk þess að stöðva greiðslu vinningsins frysti dómarinn bankareikning Jean, þartil hann hefði fengið tækifæri til þess að skoða málið betur.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband