Hvað dregur hann til baka?

Maður hafði aldrei boðið sig fram enda hafði hann ekki aflað nægilega margra undirskrifta. Það er því hæpið að segja að hann sé að draga framboð sitt til baka.

Maðurinn er óþekktur, að ætla að kenna fjölmiðlum um er vægast sagt sérstakt. Hann fékk ekki nægar undirskriftir, sem þýðir fyrst og fremst að hann hafði ekkert bakland. Það eru ekki fjölmiðlar sem búa til bakland, sem er tilbúið að vinna fyrir fólk til að afla undirskrifta, það er einstaklingurinns sjálfur.


mbl.is Jón dregur framboðið til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

4x4 bílaleiga

4x4 bílaleiga Nice Cars sem ég hef unnið að því að koma á laggirnar hefur gengið vel og framar væntingum, verð ég að segja. Ég vissi kannski ekki hversu mikil viðskipti væru í kringum jeppa bílaleigu, sérstaklega ekki eftir að maður sá að annar hver maður hefði stofnað bílaleigu. Niðurstaðan hefur hins vegar verið sú að það hefur verið mun meiri eftirspurn en það sem ég átti von á. Ég bjó til nýja vef, 4x4 car rental Iceland, sem er með meiri upplýsingar um jeppana sem við leigjum. Gaman, Gaman, það eru spennandi tímar framundan.

Viðtal í alþjóðlegu bílaleigublaði

Ég ásamt fleirum stofnuðum bílaleiguna Nice cars fyrir um ári síðan, þar sem við ákváðum að einblína á 4x4-bíla og sérstaklega breytta bíla. Svona sem "jeppaköllum" fannst okkur það vera áhugaverð hugmynd að bjóða erlendum ferðamönnum upp á að prufa að keyra slíka bíla. Það var aldrei hugmyndin að fara í samkeppni við stóru bílaleigurnar, en að vera frekar með fáa bíla og vanda til verka. Bjóða vel breytta bíla og bíla í góðu ástandi og þrátt fyrir að vera með notaða bíla, að fara ekki í þann flokk að vera druslubílaleiga. Við höfum verið mjög ánægðir með árangurinn og hann hefur verið samkvæmt okkar væntingum sem gengu út á hóflegan vöxt. Það voru mjög margar efasemda raddir í upphafi og nóg var af úrtölumönnum, enda eru orðið á annað hundrað bílaleigur á markaðnum. Það er því að verða bílaleiga í öðrum hverjum skúr á Íslandi. Það er reyndar kannski tilviljun að við fórum af stað á sama tíma og allir hinir, en við höfum í nokkuð langan tíma verið að velta þessu fyrir okkur. Hlutirnir æxluðust bara þannig að í fyrra var tækifæri og við ákváðum að grípa það. Á þessu ári höfum við lært ótrúlega mikið en eigum alveg örugglega margt ólært enn, sumarið á vonandi eftir að nýtast vel í það. Á dögunum var svo viðtal við mig í alþjóðlegu bílaleigublaði. Blaðamaðurinn hafði tekið eftir markaðssetningu okkar og fannst áhugavert að tala við okkur, enda var áherslan öðruvísi í markaðssetningunni og bílleigan er öðruvísi en flestar aðrar bílaleigur. Viðtalið birtist svo hérna í netútgáfu blaðsins og styttir útgáfa birtist svo í pappírsútgáfu blaðsins.

test

Comparison of Process Structures and Characteristics

 

Project

Job
Shop

Batch
Process

Assembly
Line

Continuous
Flow

Flow

 None  Continuous

Flexibility

  High  Low

No. of Products

  High  Low

Capital Investment

  Low  High

Variable Cost

  High  Low

Labor Content

  High  Low

Labor Skill

  High  Low

Volume

  Low  High




Ræðunámskeið Toastmasters

Ég hef verið að undirbúa ræðunámskeið Toastmasters. Þetta er búinn að vera skemmtilegur tími og mikil vinna enda þrátt fyrir að ég hafi kennt ræðunámskeið í áraraðir, þá er þetta samkvæmt stöðlum Toastmasters. Nú er allt komið á fullt og byrjað að auglýsa ræðunámskeiðið.

Bjargbrún

Þegar ég stofnaði mitt fyrsta fyrirtæki ákvað ég að kalla það Bjargbrún ehf.  Nafnið er tilkomið vegna þess að ég var ungur að aldri og hafði enga reynslu af rekstri.  Myndlíkinging var því af fugli sem stæði á bjargbrúninni og velti fyrir sér hvort taka ætti af skarið. Hann stæði þarna á bjargbrúnninni og velti fyrir sér hvort hann væri fleygur. Það væri þó bara ein leið fyrir hann til þess að komast að því og það væri að henda sér fram af. Þetta voru sömu spurningar og við stóðum frammi fyrir á leið í Þórsmörk árið 1992, þegar unginn velti fyrir sér hvort hann ætti að ráðast í fyrirtækja rekstur (þrátt fyrir ugan aldur).

Síðar varð þetta félag í eigu foreldra minna og er þar enn. Ég hef haft hönd í bagga öll þessi ár en í dag leigir félagið út húsnæði sem við höfum keypt frá árinu 1992 þegar félagið var stofnað (það var þó stofnað um innflutning). Við höfum lagt áherslu á lítil atvinnuhúsnæði.

Frá því það var stofnað hefur ýmislegt á daga fyrirtækja rekið, við höfum alltaf haldið í nafnið þótt í tísku væri að kalla félög ýmsum flottari nöfnum (group og útlenskum PR nöfnum). Því miður minnir nafnið í dag kannski of mikið á hrunið í dag. Við munum þó halda áfram í nafnið enda finnst mér (eins og mér fannst þá) þetta vera fallegt nafn sem minnir á íslenska nátturu. Varðandi upprunalegu spurninguna hvort fuglinn sé fleygur, þá skal það ósagt látið. Þau fyrirtæki sem ég hef stjórnað hafa þó ekki tekið þátt í ofurvexti, útrás eða hruni.

Hvaða rök

Það vekur athygli að þau í Kópavogi hafi ekki verið tibúin að samþykkja þetta, það hljóta að vera hagsmunir sveitafélaga í kringum Reykjavík þar sem þetta er skattur á íbúa þeirra.  

Það væri sannarlega fróðlegt að sjá sambærilega ályktun í Reykjavík og að í borgarstjórn væri barist fyrir hagsmunum Reykjavíkinga.  

Ég get ekki gert af því að finnast að í borgarstjórn Reykjavíkur séu ýmsir sem vilji helst að maður éti gras og rúlli sér svo upp og niður Hverfisgötu á hjólinu sínu. 


mbl.is Tillögu um að mótmæla vegtollum vísað frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjaftæði

Ekkert má nú orðið. Prinsessan er þarna að fara í ferð á vegum náins fjölskylduvinar og það sagt sérstakt hneyskli. Miðað við þær tekjur sem prinsessan er með gæti hún allt eins hafa greitt þetta úr eigin vasa, auk þess er vandséð hvernig spillingin getur náð til hennar. Það sérstaklega í ljósi þess að hún hefur engin bein völd.

Ætli þessum mönnum væri ekki nær að eyða tíma sínum í aðra og skynsamlegri hluti.


mbl.is Viktoría krónprinsessa sökuð um mútuþægni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtilegur brandari

Var að rifja upp brandara fyrir ræðunámskeið sem ég var að halda um daginn, ég fann hérna nokkuð marga góða brandara, greinilega gott safn og fínt að leita af bröndurum.Fann meðal annars þennan brandara:

Eldri hjón komu nýlega inn á McDonalds og pöntuðu BigMac með gosi á tilboði. Þau skiptu öllu í tvennt, fengu aukaglas og skiptu gosinu á milli sín. Maðurinn byrjaði að borða en konan sat og horfði á. Stúlka sem var að þrífa stóðst þetta ekki og spurði hvort hún mætti ekki gefa þeim annan skammt svo þau þyrftu ekki að skipta þessu á milli sín.Gamli maðurinn svaraði: „Við erum búin að vera gift í 50 ár og við höfum alltaf deilt öllu á milli okkar. Við breytumst ekki úr þessu.“ Stúlkan spurði konuna næst hvers vegna hún borði ekki og gamla konan svaraði: „Hann er að nota tennurnar, það kemur að mér þegar hann er búinn."

 

Einn af þessum gömlu góðu.


En ekkert heyrst frá Samfylkingunni í Reykjavík

Um leið og það tók nokkra klukkustundir hjá Sjálfstæðisflokknum í Hafnarfirði að leysa úr þessu hefur ekkert heyrst frá Samfylkingunni í Reykjavík.  Ekki múkk!  Það er bara eins og það sé sjálfsagt mál að oddviti flokksins fái 112 fleiri atkvæði en eru talin og það þurfi ekkert að ræða það neitt frekar.

Ef þetta hefðu verið einföld mismæli eða misritun á seðilinn hefði verið löngu búið að leiðrétta þetta. Það er því ekki hægt annað en að gera ráð fyrir að það hafi verið eitthvað meiri háttar að hjá þeim.

Ætla menn virkilega ekkert að svara fyrir um það hvort atkvæðum var bætt við oddvitann til að láta hann líta betur út?  


mbl.is Niðurstaðan var staðfest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband