ASÍ komið í Bónus

Hvenær byrjaði Bónus að  hleypa ASÍ mönnum aftur inn?  Ætli ASÍ hafi orðið að uppfylla einhver skilyrði eins og einhverjir bloggarar voru að leggja til.

Líklega kemur tvennt mest á óvart, annars vegar er það hversu hærri Krónan er heldur en Bónus (að meðal tali 10,3%) og Bónus er ekki verst þegar (miðað við þessa könnun) þegar kemur að því að vörurnar eru ekki til.  Sú sem er verst er 10/11, svo koma Kaskó og Samkaup strax.

Eins og vanalega þegar þessar kannanir koma fram þá er ekki fjallað um aðra þætti sem geta skipt máli,  eins og hvort í boði sé kjötborð, hversu margar vörur eru í boði og svo framvegis.  Fólk sem verslar í Bónus þarf t.d. undantekningalaust að fara í aðra búð ef það eru ákveðnar vörur sem verið er að leita að. 


mbl.is Bónus oftast með lægsta verð en 11-11 það hæsta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband