Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Skemmtileg Tímaskekkja

safna menn undirskriftum villt og galið gegn því að Bobby Fisher verði grafinn í þjóðarreitnum.  Í dag birtast svo linkar á 69.is þar sem þetta er auglýst.

Ætli þeir viti að það sé búið að jarða Bobby? 


Fötin góðu

Nú er komið nýtt útspil í þessum farsa.  Björn Ingi hefur viðurkennt að hafa keypt föt, en kannast ekki við að þau hafi verið fyrir milljón.  Miðað við listann var meðal annars leðurjakka og nokkur jakkaföt á listanum.

Vandamálið við þessa viðurkenningu hans í dag, er sú að hann er búinn að snúa út úr alla vikuna.  Af hverju sagði hann bara ekki frá þessu strax?  Það þurfti að sýna honum nóturnar með hans eigin undirskrift til þess að hann myndi viðurkenna þetta.

Það var fyndið að sjá hann reyna að snúa sér út úr þessu í viðtali áðan. Hann reyndi að koma með þá skýringu að þetta væri bara mjög eðlilegt, og greinilega búinn að undirbúa vörnina vel.  Það væri alþekkt að menn fengju fatapeninga.   Svo reyndi hann að vitna í einhverja fatapeninga, sem Ingibjörg Sólrún hafði fengið sem borgarstjóri.

Enginn framkvæmdastjóri flokkanna sagði að þetta væru venjuleg vinnubrögð.  

Það var eiginlega of fyndið.   Ekki síst þegar hann sagði að fötin væru nú orðin of lítil, því hann hafi fitnað! Þetta gerði hann þegar spurningarnar voru of óþægilegar.  Svo klikkaði hann út að hann hefði verið að máta föt með Guðjóni Ólafi.

Af hverju viðurkenndi hann þetta bara ekki strax? Af hverju var hann að reyna að setja upp leikrit og snúa út úr? Hvað varð af umræðunni um úrsögn?  Nú þegar hann er komin í minnihluta hefur ekkert heyrst um að hann sé að íhuga að fara á braut. Fyrr í dag þurfti hann að hugsa þetta mál, en seinnipartinn virtist þetta ekki plaga hann neitt.


mbl.is Keyptu föt fyrir tæpa milljón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað veit Dagur?

Fyndið hvernig Dagur reynir að snúa þessu upp á Sjálfstæðismenn.   Hvort sem það er einhver flugufótur fyrir þessu, er hallærislegt að reyna að koma þessu yfir á Sjálfstæðisflokkinn.  Það vita það allir sem hafa fylgst með starfi þessa nýja meirihluta, að þar er hver höndin upp á móti annari og samkomulag um fátt annað en að halda meirihluta.

Það er alveg ljóst að Dagur er jafnmikið í ljósinu með þetta eins og þegar Sjálfstæðismenn biðu eins og fífl í Höfða meðan Bingi samdi við hann sjálfan, eða þegar Ólafur F hélt að hann væri búinn að landa samningi um meirihluta við Sjálfstæðismenn en þeir sömdu svo við Framsókn.

Þannig er bara þessi pólitík.   

Það hjálpar nú ekki Degi að bæði Villi og Ólafur F láta ekki ná í sig.  Ef þetta er allt frá Sjöllunum komið getur hefði Ólafur verið búinn að blása á allar sögusagnir fyrir löngu.  


mbl.is Borgarstjóri: Enginn fótur fyrir meirihlutaviðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið um að vera

Ég var á fundi hjá félögum mínum í JCI í gær, þar sem lagt var upp með dagskrá vetrarins.  Þeir ætla að bjóða upp á um 20 námskeið næsta árið, allt frá því að bjóða kennslu í stofnun fyrirtækja og yfir í sykurbrjóstsykurgerð.  

Það er ekki hægt að kvarta undan þessu og þetta verður mjög spennandi.

Ég get ekki neitað því að það mjög gott að sjá félagið sitt dafna svona vel, ég hefði ekki trúað því þegar ég tók við sem forseti fyrir ári síðan að það ætti eftir að ná þessari stöðu á 1 ári.   

Frekari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu JCI Esju


Ekki hnífasett

Þessi mynd gengur nú á netinu, ég fékk hana senda frá nokkrum í morgun.

Það voru greinilega ekki hnífasett í bakinu á Guðjóni Ólafi heldur skylmingasverð. Bingi vs guðjón Ólafur

Engin þjóðhetja

Um leið og maður er ánægður með að kallinn hafi fengið skjól hér á landi, verður hann seint þjóðhetja.  Þeir hljóta að geta komið með betri hugmynd af stað er þingvelli.  Það eru fjölmargir fallegir grafreitir til á Íslandi.
mbl.is Ekki rætt um að fleiri verði jarðsettir á Þingvöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver bjó til Mike Huckabee


Laus sæti hjá Flugfélaginu

Svandís hefur það víst ágætt þótt þetta hafi örugglega verið skelfileg lífsreynsla.  Sem betur fer.

Hins vegar var auðvitað ekki lengi að bíða þess að brandarar færu af stað.

Það að Flugfélagið auglýsi laus sæti, fékk amk. nýja meiningu í þessu flugi. 


Leiðinleg umræða um skemmda vöru

Hver nennir að ræða um einhverja uppistandara.  Ein frétt um máið var fínt, en "come bakið", þar sem menn eru að rífast um hvort einhverjir eru skemmd vara eða óskemmd er alveg ótrúleg.

Ég horfði reyndar á einhverja þætti af þessu sem voru endursýndir, og fannst eiginlega ótrúlegt fyndið að þeir sem unnu voru þeir sem voru með mest fílflætin eftir að keppnin var. 

Þetta var eiginlega ótrúlega fíflalegt :)


Kemur ekki á óvart

Það kæmi bara ekkert óvart að oddvitinn hefði fengið sér föt á kostnað annara.   Honum hefur tekist að smeygja sér snilldarlega framhjá öllum á ádeilum sem á hann hafa komið, og hefur réttilega unnið sér inn teflon titilinn.  Nú kemur þetta fram frá gömlum samherja.

Hvað manninum gengur til, er mér alveg fyrir munað að skilja. Þessum framsóknarmenn ætla sér greinilega að drepa flokkinn með öllum ráðum sjálfir.  

Ekki mun hann græða sjálfur á þessu, því væntanlega munu flokksmenn ekki gleyma þessum leik glatt, og ef flokkurinn gleymir þessu ekki er þetta enn einn naglinn í líkistu flokksins í Reykjavík og á landsvísu.  

 


mbl.is Gagnrýnir fatapeninga framsóknarmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband