Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
12.1.2011 | 14:53
Hvaða rök
Það vekur athygli að þau í Kópavogi hafi ekki verið tibúin að samþykkja þetta, það hljóta að vera hagsmunir sveitafélaga í kringum Reykjavík þar sem þetta er skattur á íbúa þeirra.
Það væri sannarlega fróðlegt að sjá sambærilega ályktun í Reykjavík og að í borgarstjórn væri barist fyrir hagsmunum Reykjavíkinga.
Ég get ekki gert af því að finnast að í borgarstjórn Reykjavíkur séu ýmsir sem vilji helst að maður éti gras og rúlli sér svo upp og niður Hverfisgötu á hjólinu sínu.
Tillögu um að mótmæla vegtollum vísað frá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.8.2010 | 17:41
Kjaftæði
Ekkert má nú orðið. Prinsessan er þarna að fara í ferð á vegum náins fjölskylduvinar og það sagt sérstakt hneyskli. Miðað við þær tekjur sem prinsessan er með gæti hún allt eins hafa greitt þetta úr eigin vasa, auk þess er vandséð hvernig spillingin getur náð til hennar. Það sérstaklega í ljósi þess að hún hefur engin bein völd.
Ætli þessum mönnum væri ekki nær að eyða tíma sínum í aðra og skynsamlegri hluti.
Viktoría krónprinsessa sökuð um mútuþægni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.4.2010 | 18:02
Skemmtilegur brandari
Var að rifja upp brandara fyrir ræðunámskeið sem ég var að halda um daginn, ég fann hérna nokkuð marga góða brandara, greinilega gott safn og fínt að leita af bröndurum.Fann meðal annars þennan brandara:
Eldri hjón komu nýlega inn á McDonalds og pöntuðu BigMac með gosi á tilboði. Þau skiptu öllu í tvennt, fengu aukaglas og skiptu gosinu á milli sín. Maðurinn byrjaði að borða en konan sat og horfði á. Stúlka sem var að þrífa stóðst þetta ekki og spurði hvort hún mætti ekki gefa þeim annan skammt svo þau þyrftu ekki að skipta þessu á milli sín.Gamli maðurinn svaraði: Við erum búin að vera gift í 50 ár og við höfum alltaf deilt öllu á milli okkar. Við breytumst ekki úr þessu. Stúlkan spurði konuna næst hvers vegna hún borði ekki og gamla konan svaraði: Hann er að nota tennurnar, það kemur að mér þegar hann er búinn."
Einn af þessum gömlu góðu.
31.1.2010 | 23:13
En ekkert heyrst frá Samfylkingunni í Reykjavík
Um leið og það tók nokkra klukkustundir hjá Sjálfstæðisflokknum í Hafnarfirði að leysa úr þessu hefur ekkert heyrst frá Samfylkingunni í Reykjavík. Ekki múkk! Það er bara eins og það sé sjálfsagt mál að oddviti flokksins fái 112 fleiri atkvæði en eru talin og það þurfi ekkert að ræða það neitt frekar.
Ef þetta hefðu verið einföld mismæli eða misritun á seðilinn hefði verið löngu búið að leiðrétta þetta. Það er því ekki hægt annað en að gera ráð fyrir að það hafi verið eitthvað meiri háttar að hjá þeim.
Ætla menn virkilega ekkert að svara fyrir um það hvort atkvæðum var bætt við oddvitann til að láta hann líta betur út?
Niðurstaðan var staðfest | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.12.2009 | 11:13
Varmadælur
Undanfarið hefur orðið gríðarleg vakning þeirra sem búa utan hitaveitusvæða á að nýta varmadælur í staðin fyrir hefðbundna rafmangskyndingu. Það er hið besta mál og ótrúlegt hversu seinir við íslendingar höfum verið að bregaðst við í þessum efnum.
Varmadælur nýta sér varmamismun oftast í lofti til þess að kynda upp. Þannig að ef útilofthiti er -5°C, kælir varmadælan loftið sem fer í gegnum kerfið enn frekar niður en nýtir varma mismuninn til þess að hita inni. Þetta er grunnurinn að varmadælunni sem þýðir þó að varmadælan er að skila meiri orku en sem nemur því rafmagni sem kostar að knýja hana.
Flestar varmadælur á Íslandi nýta sér lofthita og skila hita til baka með hitablásara. Erlendis hafa í auknum mæli verið að nýta sér dælur sem kynda vatna og setja inn á hitakerfi og dælur sem nýta sér jarðvarma til að fá þann hitamismun sem er nauðsynlegur.
Hérna eru nokkrir þættir sem menn ættu að kynna sér um leið og menn kaupa sér varmadælu.
Nýtnistuðull
Nýtnistuðull varmadælunnar skiptir höfuð máli þegar menn eru að velta fyrir sér kaupum á varmadælum. Varmadælur með lélega nýtnistuðul eru oftast ódýrari í innkaupum en þegar til lengri tíma er litið eru þær oftast dýrari sé tekið tillit til þess að dælan eyðir meira af rafmagni til þess að ná fram sömu kyndingu. Í dag er hægt að fá dælur sem skila allt að 1/6. Það er 1 kw af rafmagni gefur 6 kw í hita, algengara er þó að dælurnar séu 1/4.
Kuldaþol
Einn af þeim þáttum sem stóru framleiðendurnir á varmadælum hafa verið að keppa á er hversu neðarlega dælurnar virka. Margar ódýrari dælur hætta að virka við 0 til 5°C, sem þýðir að þegar varmadælan þarf virkilega að vera að nýtast mönnum er hún óvirk. Betri framleiðendur hafa náð fá þolanlega nýtni alveg niður í -15 til -20°C.
Viðhald
Töluverðu máli skiptir fyrir þá sem eru með varmadælur sem fyrsta hitagjafa að um viðhalds litlar dælur sé að ræða. Ódýrari dælur eru oft með hærri bilanatíðni og það getur verið kostnaðarsamt að gera við dælurnar, sparnaður í innkaupum getur því verið fljótur að hverfa með kaupum á ódýrari dælu.
Það er merkilegt að í dag er á milli 10-15% vörugjöld af varmadælum, sem skiptir oft verulegu máli þegar menn eru að velja á milli kosta. Um leið og margir sem ættu að vera að keyra varmadælur eru að nota aðra óhagstæðari kyndingarmáta er ríkisstjórnin ekki beint að hvetja menn til að skipta með því að leggja auka vörugjöld á þessa vöru. Þrátt fyrir að flestir eru að kynda með innlendu rafmagni þá þekkist enn að menn séu að nota innflutta miðla, gas og olíu til kyndingar.
Að lokum þá er hér að finna áhugaverða grein um varmadælur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.11.2009 | 23:00
Frambjóðandi framsóknar í sambandi við borgarfulltrúa annars flokks?
Óskar Bergson segir að framboðið hafi komið á óvart. Kannski gerði það en Óskar er ekki beint maður nýrra tíma hjá Framsókn. Hvort sem ádeilur á Óskar hafa verið sanngjarnar eða ekki, þá ber hann spillingartimpilinn.
Framboð Einars kemur kannski á óvart út af einu. Það er örugglega einsdæmi að maki eins borgarfulltrúa bjóði sig fram í oddvitasæti í öðru framboði. DV er ekki og hefur ekki verið áreiðanlegasti miðillinn en samkvæmt DV eru Oddný Sturludóttir borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og Einar par.
Það getur ekki verið til þess fallið að hjálpa Einari í framboðinu eða hvað?
Framboðið kom á óvart | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.9.2009 | 22:53
Frábært framtak
Var svo heppin að fá að keyra ræðunámskeið, fyrir þessa krakka hluta úr deginum í dag. Það var haft samband við mig í gær og ég beðinn um að taka þátt í þessu verkefni. Mér fannst þetta mjög spennandi og í gær setti ég niður á blað nokkrar punkta um ræðumennsku sem ég vildi miðla til krakkanna.
Þetta er í fyrsta skipti sem ég kenni krökkum á þessum aldri. Það var þó gaman að sjá hversu yngri krakkarnir voru mun viljugri til þess að taka á móti móti leiðbeiningum en þau eldri.
Skemmtilegast við þetta var hversu frábærar hugmyndirnar voru. Fyrirfram hafði ég búist við einhverjum barnalegum hugmyndum, en þetta voru eiginlega bara frábærar hugmyndir. Sjálfur var ég hrifinn af viðbót við Ipod. Hugmynd sem er svona hugmynd sem þegar maður hefur heyrt, finnst manni augljóst að eigi að vera til. Aðrar hugmyndir eins og framlenging á ísstað fundust mér alveg frábærar.
Við höfum þegar rætt um að taka þátt í þessu verkefni að ári. Ég verð að segja að það er eiginlega bara tilhlökkun að sjá hvað krakkarnir koma upp með.
Fartölvuvörn, mjólkurtankur og vekjaraklukka í vinnusmiðju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.8.2009 | 23:41
Ritskoðun, moggabloggið og wikileaks
Margir bloggarar hafa lent í stóru ritstjórnarlöggunni á Moggabloggins og margir hafa kvartað mikið undan því. Það er eiginlega ótrúlegt að ætla að fá að skrifa hvaða rugl sem er hérna og fá að komast upp með það án ábyrgðar.
Reyndar virðast menn komast upp með það ef menn eru þjóðþekktir rugludallar. Þótt pistill Stormskers sé skemmtilegur aflestrar, get ég ekki séð hvernig er hægt að líða slík sóða skrif um forsetann á sama tíma að loka bloggum einhverja sem eru að hýja í áttina að forsetanum.
Annars er Moggabloggið ekki eina bloggsamfélagið sem hefur verið að "ritskoða" menn. Wordpress kerfið ku reka menn í burtu ef þeir vísa á ólöglegt efni (veit ekki til þess að moggin geri það - það kemur í ljós). Piratebay hefur verið að promotera blogkerfi hinna frjálsu. Ég hef reyndar aldrei skilið af hverju menn sem hafa áhuga á að drulla yfir mann og annan fá sér ekki bara eigið lén og eigin vefhýsingu. Það kostar nokkra dollara á mánuði og bloggkerfið er tilbúið með nokkrum smellum. Það er skemmtilegt að þessir gaurar verja málfrelsið og villja að menn styðji wikileaks. Síða sem fáir Íslendingar höfðu heyr af þegar einhver ákvað að leka þessu á wikileaks.
Meira að segja Google hefur nú verið neyddir til þess að upplýsa um bloggara sem drullaði yfir módel í New York. Þetta á að vera gert með ip-töluni, vonandi fyrir viðkomandi var ekki rétt ip-tala notuð. Hafi rétta IP-talan verið notað er það vonandi lærdómur fyrir þá sem ætla að drulla yfir fræga vini að gera það með því að hylja IP töluna.Annars er Moggabloggið ekki einir um að reka fólk sem er fylgir ekki stefnum.
19.8.2009 | 18:09
Pipl, ég og Bingi
21.2.2009 | 16:56
En restin?
Illugi nýtur mests stuðnings í 1. sæti í Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |