Færsluflokkur: Bloggar

Skeiðklukkan á Nokia E50

Merkilegt nokk finn ég ekki skeiðklukkuna á símanum mínum Nokia E50, ég leitaði að þessu á netinu og fann bara að það ætti að vera skeiðklukkan en finn ekki hvar hana er að finna.

Einhver?

Þurfum við enn eitt fjármögnunarfyrirtækið?

Ég er búinn að horfa reglulega á auglsýingar frá einhverju sem heitir Avant. Ekki veit ég hverjir standa að baki þessu, en ég get greinilega fengið seðil hjá þeim og keypt mér bíl fyrir svona mattador peninga.

Ég fatta samt ekki hugmyndina að baki þessu eða þörfina. Ég stóð í þeiri meiningu að það væri lítið mál að fá fá bílalán í dag. Nóg af aðilum sem væru tilbúnir að lána manni þetta. Þar að auki þarf ég ekkert að hafa fyrir því að sækja einhvern mattador pening, fer bara inn á bílasölu og skrifa undir. Mér skilst að þetta sé meira að segja svo auðvelt að í fyrra voru fréttir af aðilum sem höfðu keypt sér bíl í nafni einhvers annars. Bílasalarnir gengu frá þessu bara og engan seðil þurfti.

Það getur vel verið að ég sé að misskilja þetta allt og þessi seðlabuisness sé stórsniðugur, það er hins vegar bara ekki að skila sér.

Hvar ætli maður sæki svona seðil?

Meira að segja spilin á móti Samfylkingunni

Ekki það að ég hafi mikla trú á kukli, en datt í hug að benda á þetta.

Ekkert náttúrlögmál að fleiri konur kjósi til vinstri

Það er gaman af greiningu hjá Einari Mar, þar sem hann linkar á viðtal við sig á Rúv. Hann kennir Kvennalistanum um að konur kjósi fleiri til vinstriflokkana í dag, amk. hafi kosningamynstrið breyst eftir tilkomu kvennalistans, en áður hafi fleiri konur koisð hægri flokkana.

Fjör hjá Hirti

Hjörtur Guðmundsson stendur í stórræðum þessa daga í ræðu við sína gömlu félaga. Hjörtur þekki þetta frá fyrstu hendi enda fyrverandi félagi í Frjálslyndaflokknum. Hann fær svo laglegar kveðjur frá varaformanni Frjálslyndaflokksins:

"Það má vel vera að ég hafi breytt afstöðu minni til innflytjendamáli í ljósi breyttra aðstæðna, en ég hef þó aldrei gerst flokkaflækingur eins og þú."
Magnús virðist einstaklega laginn við að koma með fljótfærnisleg skot og án þess að hugsa málið til enda. Hjörtur var fljótur að svara og bendir á alla þá félaga sem eru í kringum Magnús og eru sjálfir flokkaflakkarar.

Hver er fréttin?

Mér finnast það nú ekki fréttir að sænskur túristi hafi fengið ferðina sína endurgreidda vegna óánægju. Hvað ætli þetta gerist oft hérna heima að mönnum séu greiddar bætur eftir að hafa verið óánægðir með eitthvað?

Hins vegar efast ég um að við höfum eitthvað sambærilegt kerfi til þess að kæra til, eins og Svíarnir. Líklega hefðum við orðið að höfða mál með öllum þeim kostnaði sem fylgir því og varla hefði það borgað sig fyrir 19 þúsund krónur.
mbl.is Fór til Íslands og fékk endurgreitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ókeypis fyrir alla

Það er marg mjög flott í þessum tillögum hjá Sjálfstæðismönnum, ég hefði haldið að það væri hentugra að gefa bara Strætó gjaldfrjálsan. Væntanlega er um helmingur notenda hvort sem er nemendur, þannig að eftir vantar kvata fyrir venjulegt fólk til þess að sleppa við að nota bílinn og taka strætó. Það væri gaman að prófa þetta amk. sem tímabundið verkefni og sjá hvort fólk sleppi ekki við einkabílinn.
mbl.is Ókeypis í bílastæði fyrir vistvæna bíla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjöldi bloggvina

Mundi gerði úttekt á fjölda blogvina og kemur í ljós að StebbiFr er vinaflesti bloggarinn. Sjálfur hef ég kannski ekki ræktað mína bloggvini nægjanlega til að standast samaburð Stebba, hef þó sankað að mér nokkuð stórum vina hópi, mér til mikillar gleði og ánægju.

En íslensku auðmennirnir

Ég bíð bara eftir því að einhver íslenskur auðmaður láti drauminn rætast og verði fyrstur að fara út í geim. Ég meina það kostar varla mikið meira en ein góð fimmtugsafmælisveisa.
mbl.is Bill Gates sagður íhuga geimferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spennandi helgi

Það stefnir allt í mjög spennandi helgi fyrir áhugamenn um pólitík. Það sýnir auðvitað glundroðan sem er í gangi hjá Samfylkingunni að þeir hafi ekki getað skipulagt flokksþing sitt á öðrum tíma. Það hefur legið fyrir í mjög langan tíma hvenær landsþing Sjálfstæðisflokksins yrði haldið.
mbl.is Landsfundir tveggja flokka framundan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband