10.6.2007 | 11:49
Primopdf
Ég þarf stundum að gera PDF skjö, en vill reyna að vera með ekki of mikið af ólöglegum hugbúnaði. Ég fann ansi góðan ókeypishugbúnað til að búa til PDF skjöl, sem ég mæli hiklaust með. Forrtið heitir Primo pdf. Þetta er heldur ekki mjög stórt forrit eða fullt af auglýsingum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.6.2007 | 12:20
Nýtt netrit
Sá það í mogganum í morgun að bloggararnir Arna Scram, Pétur Gunnarsson og Andrés eru að velta fyrir sér að búa til netrit. Netritin hafa mörg lent í vandræðum, ekki síst vegna samekppni við bloggara.
Ég bíð spenntur og sé hvað kemur. Það verður í öllufalli minni fjárhagslega áhætta en hjá Króníkunni á sínum tíma.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.6.2007 | 01:08
Stebbi hittir naglann á höfuðið - Sigurjón í biðleik
Stebbifr bendir á nokkuð merkilega staðreynd. Sigurjón hefur verið harður gangrýnandi á kerfið og misnotkun þess. Nú virðist hann standa sjálfur í biðleik þar sem hann ætlar að þyggja biðlaun og fara svo í fasta vinnu eftir að þeim líkur hjá Frjálslyndaflokknum.
Mér finnst þetta mjög merkilegt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.6.2007 | 00:45
Orðið á uppleið
Það er nokkuð gaman af því að orðið er komið á topp 5 eftir nokkra daga og nokkur góð skúbb. Andrés hélt úti annari síðu í nafni fyrirtækisins síns sem náði aldrei nokkrun viinsældum, nú er orðið komið aftur og með nokkrum ágætisskúbbum er hann kominn á toppinn.
Merkilegt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.6.2007 | 00:37
Merkileg málamiðlun
Er ekki málið bara að biðja um nógu hátt, þá hljómar loka talan alltaf jafn lítil... miðað við upphaflegu töluna.
Samningatækni.
![]() |
Launahækkun seðlabankastjóra var málamiðlun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2007 | 17:07
Mun ekki blogga næstu mínúturnar
Hef því miður ekki tíma til að blogga næstu mínúturnar þar sem ég ætla að horfa live á lögguna mæta heim til Parísa á vísi.is
Er þetta ekki komið út í rugl?
![]() |
Lögregla sækir Hilton til að færa hana fyrir dómara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.6.2007 | 13:48
Stjörnurnar hafa talað
Stjörnuspekingurinn Gunnlaugur Guðmundsson spáði því áðan að Framsóknaflokkurinn myndi ganga í Samfylkinguna á útvarpi sögu.
Það er ekki seinna vænna fyrir framsóknarmenn að fara að taka sama föggur sínar og skella sér undir sængina hjá Ingibjörgu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2007 | 13:28
Staksteinar taka á Guðna
Staksteinar fjölluðu í dag um DV og Guðna Ágústsson. Þetta er nákvæmlega það sem ég hef verið að segja hérna á blogginu hjá mér. Dv hafði ekkert með þetta að gera, og nákvæmlega eins og Staksteinar segja þá hefði þetta getað eflt Framsóknarmenn á lokametrunum. En þetta gerðist ekki miðað við Guðna.
Hitt sem fram kemur líka í þessar grein er einnig nokkuð merkilegt:
Guðni Ágústsson vildi tengja þessa útgáfu DV neikvæðum auglýsingum, sem beint var gegn Birni Bjarnasyni, dómsmálaráðherra, daginn fyrir kosningarnar.
Neikvæð auglýsingastarfsemi er þekkt fyrirbæri í Bandaríkjunum og þar hafa menn stundað hana með misjöfnum árangri. Reynslan hér á Íslandi er sú, að þeir, sem stunda neikvæða áróðursstarfsemi, m.a. með auglýsingum og blöð, sem aldrei sjá nokkuð jákvætt í umhverfi okkar, finna lítinn sem engan hljómgrunn meðal almennings.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2007 | 12:21
Hverjir eru þessir dauðu doktorar?
Skrítið hvað margir sem skrifuðu hvað mest um stjórnmál á Moggann fyrir nokkrum vikum eru skyndilega hættir netskrifum. Sá sem vissi ekki betur gæti haldið að þetta hafi þá alltsaman verið bara áróður.
Í stað þeirra sem hafa hætt hafa auðvitað komið fjölmargir nýir.
Hitt er svo annað mál að það er eðlilegt að margir áhugamenn um pólitík hafi tekið sér amk. tímabundið hlé. Það er ekki lengur þetta kapp eins og var fyrir nokkru þegar skotin gengu á milli manna í kringum kosnignar og rétt eftir þær.
Sjálfur var ég slappur að blogga eftir kosningar, botninn datt aðeins úr þessu. Sú bloggstífla varði hins vegar ekki í marga daga og nú bloggar maður sem aldrei fyrr.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2007 | 12:09
Stórmerkilegt!
Ekki veit ég hvað er fréttnæmt í þessu, þetta hefur bæði verið í hádegisfréttum og svo á vísi.is. Þetta hefur sjálfsagt verið þaulskipulagt plott geng alþjóðavæðingunni.
Ekkert Coca-Cola, bara Afri-Cola
Þó að Coca-Cola sé auglýst sem hið eina sanna" er það hvergi að finna á G8 fundinum í Heiligendam í Þýskalandi sem nú stendur yfir. Blaðamönnum sem sækja fundinn hefur hins vegar verið boðið upp á þýskan kóladrykk sem kallast Afri-Cola og er tappað á flöskur í nágrenni fundarstaðarins.Skipuleggjendur segja að engar and-amerískar áherslur liggi að baki því að ekki sé boðið upp á alvöru" kók á fundinum heldur hafi þeir aðeins viljað gera innlendum vörum hátt undir höfði.
Framleiðsla á Afri-Cola hófst í Þýskalandi árið 1931og hefur ávallt notið nokurra vinsælda þó salan hafi aldrei náð viðlíka hæðum og Coca-Cola. 12 milljón flöskur af Afri-Cola seljast í Þýskalandi ár hvert, á meðan Coca-Cola selur 3,4 milljarða flaskna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)