Breytingar hjá Svíum

Það er greinilegt að hægrimenn eru við völd í Svíþjóð núna.  Jafnaðarmennirnir sem stjórnuðu fyrir nokkrum árum tóku þetta alls ekki í mál. Þegar Danir vildu selja SAS, sagði Göran Person að Svíar myndu kaupa allan hlutinn frekar en að selja sinn.

Held að þetta sé mjög jákvæð þróun hjá Svíjunum, hvað á sænska ríkið að vera að gera í að framleiða Vodka.  Þetta er einn þektasti vodka í heimi með gríðarlega markaðssetningu um allan heim. 


mbl.is Sænska ríkið selur sex stórfyrirtæki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rólegir hjá Banönum

Ég sagði frá þessu fyrir 2 vikum síðan, það virðist vera mikil rósemd hjá þessum fyrirtæki.  Kerfisstjórinn í fríi og enginn virðist geta gert nokkurn skapað hlut!  Það er auðvitað spurning hvort það þurfi ekki líka að ræða við kerfisstjóran um öryggismál fyrirtækisins.

Getuleysið virðist vera algjört í þessum málum hjá fyrirtækinu.  Ætli fyrirtækið hafi verið yfir höfuð starfhæft í þessar tvær vikur, svona á tölvuöld?    Þeir hefðu nú amk. getað haft samband við vodafone og beðið þá um að setja inn tóma index síðu.  Það hefði nú alveg verið lágmark, svo geta menn rætt um það hvað það eigi að gera í framhaldinu. 


mbl.is Hakkaðir bananar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert óeðlilegt

Það er í sjálfu sér ekki óeðlilegt við það, þegar fjölmiðlar eins og Metró eru að selja auglýsingar inn á þessa vefi að menn greiði eitthvað til þeirra sem skapa traffíkina og búi til efni.   Mogginn hefur ekki staðið í vegi fyrir því að bloggarar verði sér út um tekjur á eigin vegum, eins og það sem margir íslenskir bloggarar sem hafa selt auglýsingar inn á vefina sína fyrir um 50 þúsund á mánuði.  Á stærri markaði gætu menn sjálfsagt haft ágætis tekjur af þessu.

Mogginn hefur ekki auglýst beint inn á vef bloggaranna og hefur því ekki beinar tekjur af þeim, hins vegar er augljóst að margir fara inn á moggann til að lesa bloggarana, þannig að þeir njóta þess óbeint.

Mér sýnast vera einhverjar breytingar í vændum með þessi mál, ég sá í gær hjá Palla að Eyjan.is er búinn að til liðs við sig nokkra af helstu bloggurum moggabloggsins.  Það er spurning hvort mogginn muni bregðast eitthvað við því ef stór hópur vinsælla bloggara hverfur á braut.

Það kemur kannski alltaf maður í manns stað í þessum bloggheimum.  Það hefur nú verið raunin undanfarið. Hvað hafa verið margir toppbloggarar verið seinasta ár?  Þeir hafa horfið til annarra bloggsvæða eða ákveðið að gefa eftir.

Sjálfum lýst mér mjög vel á Eyjuna, ég gat ekki stillt mig um að fara eftir leiðbeinum Palla og kíkti á þetta hjá þeim. Þeir eiga örugglega eftir að verða mjög öflugir.  Ég held að tími svona fréttaveitna sé að koma aftur, menn eru ekki lengur í einhverjum skýjaborgum en reyna að gera svona á hagkvæman hátt í staðin fyrir að leigja heilu hæðirnar í húsum eins og það sem stóð fyrir dyrum þegar strik.is byrjaði. 


mbl.is Svíar greiða bloggurum laun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlegt

Manni finnst þetta alveg ótrúlegt.  Það er nú nokkuð langt þangað til að menn verða svo framsæknir hérna heima.  Menn mega nú ekki einu sinni útdeila meira en 1/3 af eigin eigum, hvað þá að geta sent SMS með skránni.

Ég efast um að lögræðingra á Íslandi væru tilbúnir að kvitta upp á þessa aðferð.  Vanalega þarf einhver vitni við, og svo er auðvitað spurning um andlegt ástand viðkomandi.  Menn gætu farið að úthluta sjálfum sér eignum annara með því að senda úr síma einhvers SMS skilaboð, án þess að viðkomandi viti af því.  Það hafa alltaf reglulega komið fram hér á landi (fá dæmi þó), þar sem umönnunarfólk hefur fengið gamalt og ruglað fólk til að gefa sér peninga.  Það gæti nú farið að senda sér peninga í gegnum SMS. 


mbl.is Senda smáskilaboð með hinstu óskinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hin týnda list

Var að hlusta á þátt á Rás 1 á þátt um harmonikkur, mjög hressandi þáttur.  Höfundur þáttannna sagði frá harmonikku mótum, en þar ku vera mikið fjör og jafnvel hafi verið stofnað til hjónabanda á þeim.

Gaman af þessu.

Er ekki harmonikkan nánast að vera orðin útdauð?  Maður sér einktaka ungmenni á myndum af svona mótum.  Það virðast flestir vera í fylgd með fullorðnum. 


Áhugavert

Það er nokkuð merkileg frétt í viðskiptablaðinu í dag, þar telja menn líklegt að Kristinn Björnsson mun fá Skeljung aftur í sínar hendur. 

Fyrir utan það hversu áhugavert það væri ef Kristinn væri aftur kominn í Olíubransann er ekki síður merkilegt, sú greiðsla sem Skeljungur væri, væri þá bara skiptimynt í sölu á FL Group.  Ekki nema 20%  upp í greiðsla fyrir hlutabréfin í FL Group. 


Eðlileg umræða

Það er mjög eðiliegt að það sé tekið til umræðu að nota svona naglabelti þegar sumir mótorhjólamenn haga sér eins og þeir hafa verið að gera.  Námskeið í afstungu, hvort sem það var nú grín eða ekki og svo þær tilraunir sem hafa verið til afstungna.  

Ég held að þessi naglabelti séu allt of hættuleg til að stöðva mótorhjól, en samt þess virði að ræða.  

Ég held að það endi með að menn fari spánarleiðina, og það verði einfaldlega tukthúsvist í einhvern tíma ef menn keyra svona ofboðslega hratt.  Sumt af þessum akstri er svo rosalegur að hann einn og sér er tilraun til manndráps. Ef ekki á öðrum þá á sjálfum mótorhjólamanninum.

Ef það er einhver fangelsis tími fyrir að keyra á 180, þá hugsa menn sig kannski tvisvar um áður en þeir fara út í þetta. 


mbl.is Varað við naglamottum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dæmigert fyrir færslu starfa út á land

Þetta er alveg dæmigert, allt vesenið að koma þessu til skila út á land og svo að geta ekki fengið skattkortið þegar menn fá vinnu og vilja afhenda nýjum vinnuveitanda kortið.

Mun eðilegra að hafa þetta í höfuðborginni á einum stað. 


mbl.is Skattkort geymd á Skagaströnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrýtin sameining

Ég skil ekki þessa sameiningu. Hver er tilgangurinn að sameina
fyrirtæki sem rekur símaskránna og svo fjölmiðlarekstur?  Hefði
haldið að menn gætu fundið einhverja betri sameiningarkosti en þennan.
mbl.is Skjárinn og Já í eitt félag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útprentun úr bókhaldi?

Ég velti fyrir mér hvort þetta sé ekki bara spurning um að gera útprentun í bókhaldinu?  Menn hljóta að hafa alla tíma sem standa að baki, og aðrar upplýsingar sem liggja að baki launum í launakerfinu.

Varla er verið að fara og labba á milli með blað? 


mbl.is Samþykkt í borgarstjórn að gera launakönnun meðal borgarstarfsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband