13.10.2007 | 18:30
Tekinn á ljósmyndasýningu
Eins og hver annar sjálfumglaður einstaklingur ætla ég að sýna hér mynd af sjálfum mér. Hún var tekin af mér í gær þegar ég var á opnum Airwaves ljósmyndasýningunni í Norrænahúsinu. Mjög skemmtileg og flott sýning.
Ég var þarna í boði Árna Torfasonar, sem er þarna með mér á myndinni. Ásamt vini mínum honum Lofti.
Eftir opnun ljósmyndasýningarinnar skellti ég mér á afmæli JCI Reykjavíkur. Ég skemmti mér konungalega með félögum mínum úr JCI Esju.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.10.2007 | 17:29
Góðar myndir












12.10.2007 | 17:09
Talsmaður Davíðsarmsins
Ég held að DV sé farið að gefa útlagaganum í Ameríku heldur mikið vægi, ef það að hann hafi kallað Villa spilltan sé einhverjar vísbendingar um það sem "Davíðsarmurinn" er að plotta. Það skildi þó ekki hafa frést að Friðjón hafi mætt á Holtið með þeim félögum? Er blogg Friðjóns orðið einhver málsvari Davíðsarmsins?
Bent er á að náinn samstarfsmaður Björns Bjarnasonar, Friðjón Friðjónsson, hafi sagt Vilhjálm borgarstjóra spilltan og Davíðsarmurinn viljað taka stefnu á samstarf við VG.
Annars stofnaði Friðjón líka hóp á Facebook, sem heitir: Nýjan borgarstjóra takk! Ég hafði lítinn áhuga á að taka þátt í þeim hópi, en í kjölfar nýrra tíðinda er ég nú orðinn félagi.
Menn geta líka velt fyrir sér hvort allt þetta fólk sem hér er upptalið viti yfir höfuð að það sé í einhverjum sérstökum "armi".
DV segir að fyrir Davíðsarminum fari Björn Bjarnason, Gísli Marteinn Baldursson, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Styrmir Gunnarsson og Kjartan Gunnarsson. Fyrir hópi Geirs Haarde fer Guðlaugur Þór Þórðarson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Kjartan Magnússon, Jórunn Frímannsdóttir, Bolli Thoroddsen og Marta Guðjónsdóttir að sögn DV.
Enn og aftur verða menn að selja blaðið. hvað virkar betur en víg innvígðra og múraðra.
12.10.2007 | 16:07
Til í allt - án Villa
Ég trúi þessu reyndar ekki, en spindoktorar hafa verið duglegir undanfarið að búa til sögur. Maður trúir því ekki að einhver myndi skilja svona "spor" eftir, hjá einhverjum sem er virkilega líklegur til þess að nota það gegn mann síðar. Sérstaklega þegar það að þetta komi fram sé líklegt til að valda viðkomandi virkilegum pólitískum skaða.
Viðkomandi borgarfulltrúi á örugglega eftir að leiðrétta þessa sögu, ég hef ekki trú á öðru.
12.10.2007 | 10:38
Hverju svara þeir?
![]() |
Ung vinstri-græn segja að Björn Ingi og Dagur skuldi skýringar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.10.2007 | 22:50
Hvað verður þá um REI?
Bingi sleit út af REI, vegna þess prinsipps að hann ætlar að selja REI, þegar það hefur grætt mikla peninga. Sjallarnir hafa verið gagnrýndir fyrir að vilja selja of snemma.
Bæði Bingi og Dagur vilja selja, bara ekki núna.
Hvorki Margrét né Svandís vilja yfir höfuð selja.
Hvernig á eftir að fara með prinsipin hjá Binga?
Það er ekki úr vegi að fara að rifja upp eitthvað af kosningaloforðum Binga. Hvernig var þetta með flugvöllinn? Hvernig var þetta með Sundagöngin? Voru þetta ekki prinsipmál hjá Binga, en samt voru þetta aðalatriði í kosningabaráttu framsóknar?
11.10.2007 | 19:16
Margrét hress
Það æðislegt að heyra í Margréti Sverissdóttur í dag. Hún var í framboði fyrir Íslandshreyfinguna, en er starfar í borginni sem óháð.
Það er með hreinum ólíkindum að hlusta á hana. Menn hafa undanfarið rifjað upp skrif hennar þegar Gunnar Örlyggsson hætti í Frjálslyndaflokknum.
Nú reynir hún að hanga á því hálmstraí að hún sé óháður! Hún bauð sig nú ekki fram sem óháður á sínum tíma.
Það sjá allir hvers konar brandari þetta er hjá henni.
11.10.2007 | 11:28
Í hvaða prófkjörum?
Það væri mjög fróðlegt að vita hvaða prófkjörum þetta kerfi hafi verið notað. Orðalagið er líka nokkuð sérstakt hjá Alcan, þegar þeir tala um að þeim hafi verið talin trú um þetta.
Bera þessir menn enga ábyrgð? Var þetta bara einhver vondur tölvumaður sem seldi þeim meingallaða lausn? Vissu þeir ekkert hvað þeir voru að gera eða fara út í?
![]() |
Persónuvernd til skammar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.10.2007 | 10:16
Tengslanet - ókeypis námskeið
Undanfarið hef ég mikið rætt um tengslanet og bent mönnum á að skoða Facebook. Ástæðan er sú að ég hef verið að undirbúa námskeið sem ég ætla að halda á vegum JCI Esju í tengslanetum og hvernig þau virka. Þetta er ekki námskeið þar sem menn sitja á skólabekk og hlusta, en hins vegar taka menn þátt í umræðum um þetta.
Námskeiðið verður haldið í sjálfstæðissalnum í Grafarvogi, en hann er í Hverafold 5. Við ætlum að byrja klukkan 20.
Ef þú hefur áhuga á þessu, vilt velta þessu fyrir þér með okkur eða vilt spá í hvernig þú getur bætt eigið net, komndu þá með okkur í kvöld.

10.10.2007 | 10:04
Guðmundur á eftir að fjúka
Ég spái því að Guðmundur eigi eftir að fjúka fljótlega, amk. áður en fyrirtækið verður selt. Ég efast um að menn sætti sig við það sem hann hefur verið að segja undanfarna daga, sérstaklega þau viðhorf sem hann hefur sýnt gangvart kjörnum fulltrúum og þeim sem hann á að svara til. Hann virðist líta á sig sem ósnertanlegan.
Það má sjálfsagt deila um þennan þátt Guðmundar, en miðað við umræðuna sem hefur verið undanfarið væri ég ekkert hissa á því að þetta yrði raunin.