Reiði guðs

Ég grun um að hérna sé reiði guðs á ferðinni, syndaflóðið er komið og það eina sem Selfyssingar geta gert til að bjarga sér er að hringja í einum grænum í Sjálfstæðiflokkinn og grátbiðja um að koma aftur.

Mér skilst að jarðskjálftinn 17. júní 2000 sé svo þeim að kenna sem neituði Jörmundi að ganga um borð í víkiningaskipið Íslending, en skjálftinn reið af skömmu síðar.
mbl.is Enn eitthvað í að vatn flæði inn í hús á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svansson á leið upp vinsældarlistann

Tók eftir því að Svansson var kominn með eitt vinsælasta bloggið á blog.is, nú er Svansson eðalbloggari og skúbbari par excelance þannig að hann á þetta skilið.

Ég tala nú ekki um ef hann fer að taka þessu af einhveri alvöru og skúbba alvöru skúbbum. Tja já og minnkar aðeins hrokann.

Magnús Þór á Útvarpi Sögu

Það vekur athygli að það skuli vera búið að taka Margréti Sverisdóttur úr loftinu á Útvarpi Sögu, þar sem hún auglýsti flokkinn. Þetta var blásaklaus auglýsing þar sem fólk var hvatt til þess að ganga til liðs við flokkinn.

Í stað Margrétar er Magnús Þór farinn að auglýsa flokkinn, auk þess sem hann keyrir eigin auglýsingar þar sem hann óskar fólki gleðilegra jóla.

Það vekur athygli að fyrst Margrét var tekin úr loftinu afhverju varaformaður les þessar auglýsingar en ekki formaður. Óttast þeir félagar meira um stöðu Magnúsar, enda sé hann umdeildari heldur enn formaðurinn og menn óttist að Margrét muni byrja á að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur.

Líffærafræði Grey

Greys hefur amk. slegið verulega í gegn hjá kvennþjóðinni.

Ekki það að ég hafi svo sem ekki séð flesta þættina...


mbl.is Leikarar Grey´s Anatomy skemmtikraftar ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

blogleit.is

Símaskrá.is (eða öllu heldur já) hefur skráð lénið blogleit.is, nú er bara að bíða og sjá hvort við fáum ekki einhverskonar blogleitartól frá þeim félögum.

Raunvörulegir og ímyndaðir leiksskólafélagar

Ekki það að ég ætli að vera algjör sækó, hins vegar man ég eftir því að hafa leikið við Ómar á leiksskóla þegar við vorum litlir.  Ég man meira að segja eftr að hafa leikið mér heima hjá honum í bökkunum

Hins vegar hef ég hvorki fyrr né síðar hitt Ómar eftir að leiksskóla dvöl okkar lauk á Arnarbakka. 

Máli mínu á ég mynd af okkur saman síðan við vorum í bekk. 

Það var nú ýmislegt brallað á Arnarborg.   

.....

 Nema ég sé búinn að missa það og sé farinn að ímynda mér gamla leikskóla félaga...

Af öðrum félögum má nefna að Helgi Áss skákmaður var með okkur.  Sjálfsagt hafa fleiri verið þarna líka, en ég man nú ekki nöfnin á öllum sem voru með mér á Arnarborg, þó svo ég sé viss um að ég mynd þekka ýmsa í útliti.


ASÍ komið í Bónus

Hvenær byrjaði Bónus að  hleypa ASÍ mönnum aftur inn?  Ætli ASÍ hafi orðið að uppfylla einhver skilyrði eins og einhverjir bloggarar voru að leggja til.

Líklega kemur tvennt mest á óvart, annars vegar er það hversu hærri Krónan er heldur en Bónus (að meðal tali 10,3%) og Bónus er ekki verst þegar (miðað við þessa könnun) þegar kemur að því að vörurnar eru ekki til.  Sú sem er verst er 10/11, svo koma Kaskó og Samkaup strax.

Eins og vanalega þegar þessar kannanir koma fram þá er ekki fjallað um aðra þætti sem geta skipt máli,  eins og hvort í boði sé kjötborð, hversu margar vörur eru í boði og svo framvegis.  Fólk sem verslar í Bónus þarf t.d. undantekningalaust að fara í aðra búð ef það eru ákveðnar vörur sem verið er að leita að. 


mbl.is Bónus oftast með lægsta verð en 11-11 það hæsta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afgreiddi í bónus í gær

Gott ef hún afgreiddi mig bara ekki í Bónus í gær, ég hef nokkuð oft séð þessa konu.

Ástæðan fyrir að ég hef oftast fari á kassa hjá henni er að núna eru komnir svo margir Pólverjar á kassa í Bónus, ég hef verið nokkuð viss um að skilja það sem hún hefur að segja á meðan sumir sem hafa afgreitt mann hafa varla talað ensku.
mbl.is Átti barn án þess að vita að hún væri barnshafandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að búa til eftirspurn eftir sjálfum sér

Hjálmar Árnason hefur ákveðið að fara á móti Guðna Ágústssyni, eftir að 2000 manns mættu (óvænt) á tröppur hans og kvöttu hann áfram. Helstu ástæður þess að Hjálmar fékk þessa óvæntu kvattningu er að hópurinn taldi skort á þingmönnum fyrir Suðurnes.

Það er nokkuð áhugavert ef Guðni verður fórnalamb þess að aðrir flokkar hafi ekki komið með nógu margir frambjóðendur frá Suðunesjum. Hvert prófkjörið á fætur öðru hefur fram og Suðurnesjamenn greinilega ekki staðið að baki sínum mönnum og núna virðist Guðni vera svo óheppinn að Framsókn eru síðastir.

Þetta er auðvitað snilldar flétta hjá Hjálmari og algjört kjaftæði, það getur vel verið að frambjóðendur hinna flokkana séu hlutfallslega færri í samanburði við önnur svæði Suðurlands. Hins vegar er Hjálmar að reyna að búa til eftirspurn eftir sjálfum sér.

Hjálmar staðfestir að þetta er fyrst og fremst ótti við fylgisleysi við flokkinn með því að ýja að því að hann muni ekki þyggja 2. sætið lendi hann í því. Betra að hætta með reisn en að falla með flokknum og vera varaþingmaður Guðna.

Hver trúir því svo að einhverir áhugamenn um stöðu Suðurnesja hafi farið af stað og safnað þessum undirskriftum! Hjálmar er að plotta. Ég gæti best trúað að Hjálmar hafi sjálfur prentað undirsskriftarblöðin.

Hjálmar fær punkta fyrir að búa til eftirspurn eftir sjálfum sér. Hingað til hef ég nú ekki haft neitt sérstakt ályt á Hjálmari, en það gæti vaxið með þessu.

Varaðndi Guðna, er hann svo mikið maður gærdagsins. Held að flestum sé hætt að finna Guðni fyndinn.

Uppgötvun aldarinnar

Þetta hlýtur að vera uppgötvun aldarinnar! Nýtt brönugras.

Að mannkynið hafi komist af án þess að hafa haft þetta gras undir sínum höndum, er hreint ótrúlegt :)
mbl.is Ný tegund af brönugrasi uppgötvuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband