Af bílastæðasjóði

Hver hefur nú ekki lent í bílastæðasjóði. Í sumar lenti ég í því að stöðumælirinn var fullur, ég þurfti að skreppa frá í 5 mínútur og ákvað því bara að skreppa. Að sjálfsögðu var kom sekt þegar ég kom til baka, ég hringdi og kvartaði. Þá var spurður að því hvort ég hefði leitað að stöðumælaverði! Ég vildi meina að það væri þeirra að hafa græjurnar í lagi. Hins vegar var ekki um það að ræða heldur átti ég að fara í göngutúr um líklega staði, þar sem stöðumælaverði væri að finna. Mér var boðið að kæra, sem og ég gerði. Ég hef ekkert meira heyrt af þessu og vona að þessu máli hafi lokið. (Þangað til þeir koma og sækja bílinn minn).
Sek þar til hún getur sannað sakleysi sitt

- borgaðu sektina strax, ella hækkar hún um 100%
Það var fyrir nokkrum dögum að ung kona í Vestmannaeyjum fékk bréf frá Bílastæðasjóði.
Í bréfinu er henni tilkynnt að hún hafi verið sektuð um 3.750  krónur fyrir stöðvunarbrot  - hafa lagt bíl sínum rangt í Reykjavík, þann 19. nóvember síðastliðinn.

Nú vildi bara þannig til að umrædd kona var stödd i Vestmannaeyjum þennan umrædda dag og einnig hennar gamli bíll, þannig að sektin er greinilega byggð á röngum forsendum, sennilega hefur sá er skrifaði kæruna skrifað upp rangt bílnúmer eða eitthvað þess háttar. Konan var  því ekki sátt við að greiða þessa sekt til Bílastæðasjóðs. Hún hafði  samband við Bílastæðasjóð og sagði frá því að bæði hún og bíllinn hennar hefðu verið í Vestmannaeyjum þennan dag, en þar ætti hún heima. Sú er fyrir svörum varð hjá Bílastæðasjóði sagðist ekkert geta liðsinnt henni, sektina yrðu hún að greiða innan 14 daga, þvi eftir þann tíma hækkaði sektin um 100%. Ef  hún hinsvegar rengdi sektina með þeim rökum að hún hefði ekki verið Reykjavík 19. nóvember, yrði hún að geta sannað það. Bílastæðasjóður  skyldi hinsvegar senda henni umsóknareyðublað, þar gæti hún kvartað yfir sektinni og reynt að færa sönnur á fjarveru sína úr höfuðborginni þennan dag. Það yrði síðan úrskurðarnefndar að meta það hvort hún fengi sektina endurgreidda - eða ekki.

Einu sinni var sagt að allir væru saklausir nema sekt þeirra væri sönnuð. Hér er réttarkerfinu greinilega snúið á haus. -  Konan er sek nema geta hún geti sannað sakleysi sitt. Nú er konan því 3750 krónum fátækari, nema úrskurðarnefndin taki mark á orðum hennar og endurgreiði 3750 krónurnar - það á að skýrast þegar nefndin kemur saman á næsta ári.
Af suðurland.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband