Góður brandari

Fyndin brandari í boði brandarar.net:

 

Tveir menn eru að sumbli á bar, þegar annar segir við hinn: “Ég veðja við þig um 10 þúsund kall að ég geti bitið mig í augað”. Hinum fannst þetta hálf fyndið og tók tilboðinu. Hinn tekur þá úr sér gler auga og bítur í það. Hinn verður því að borga, en segir að hann bjóði honum tvöfalt eða ekkert ef hann geti bitið í hitt augað á sér, enda geti hann ekki verið með bæði augun úr gleri enda ekki blindur. Hinn tekur því, skellur úr sér fölsku tönnunum og bítur í hitt augað með þeim.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég man eftir annarri og öflugri útgáfu af þessum úr æsku minni. Hún er svona:

 Tveir menn á bara að drekka bjór. Annar segir við hinn: "Ertu til í að borga fyrir mig drykk ef ég get bitið í annað augað á mér." Hinn jánkar og sá fyrri tekur úr sér glerauga og bítur í það. Hinn verður fúll en pantar drykk. Aftur spyr sá fyrri, eftir að hafa drukkið bjórinn, hvort hinn muni blæða öðrum ef hann geti bitið í hitt augað á sér. Hinn espast upp, því varla er maðurinn blindur og samþykkir. Þá tekur sá fyrri úr sér tennurnar og bítur í hitt augað.

 Nú er sá plataði orðinn drullufúll, en tekur upp veskið og borgar nýjan drykk. Þegar þeim drykk er lokið spyr sá fyrri: "Ertu til í að borga einn enn, ef ég get pissað í vasann á buxunum þínum án þess að þú blotnir?" Sá seinni verður mjög forvitinn og samþykkir. Sá hinn fyrri vippar út á sér limnum og pissar í vasann. Eftir tvær sekúndur öskrar hinn: "Hvað er að þér maður, ég gegnblotna!" Og þá segir sá fyrri: "Hva, hélstu að ég ætlaði að sníkja af þér í allt kvöld?"

Manni fannst þetta rosa fyndið þegar maður var 11.

Birgir Baldursson (IP-tala skráð) 10.7.2008 kl. 02:55

2 Smámynd: TómasHa

Hann hefur alveg farið fram hjá mér þessi. :)

TómasHa, 10.7.2008 kl. 09:41

3 Smámynd: Emil Örn Kristjánsson

Svo er til enn einn endir: Sá hinn fyrri vippar út á sér limnum og pissar í vasann. Eftir tvær sekúndur öskrar hinn: "Hvað er að þér maður, ég gegnblotna!" Og þá segir sá fyrri: "Auðvitað maður, en ég var búinn að veðja 50þúsund kall við barþjóninn að þú myndir leyfa mér að pissa í buxnavasann þinn".

Emil Örn Kristjánsson, 10.7.2008 kl. 16:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband