Óheppileg ummæli

Það er greinilegt að Friðrik Ómar kann hvorki að vinna eða tapa.  Þessi athugasemd var alveg út í hött í gær.  Honum tókst að sigra, og þurfti bara ekkert að vera að skjóta á aðra keppendur á meðan.   Það er greinilegt að það er búinn að vera mikil barátta bakvið tjöldin og sumir létu kynningar Mercedes hópsins fara í taugarnar á sér.   Hins vegar skilaði þetta sér ekki betur en svo að þeir urðu í öðru sæti.

Ég er hins vegar þeirrar skoðunnar að þetta lag eigi ekki eftir að ná langt.   Mér fannst þetta lag vera alltof gamaldags technólag. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óttarr Makuch

Hvaða hvaða þótt að þitt lið hafi tapað og þér dauðlangar í dansgallann...

Nei nei að öllu gríni slepptu þá hreinlega skil ég ekki kommentið hjá Friðrik í gær, það var algjör óþarfi enda voru líklega flest þau keppnislið sem áttu raunhæfa möguleika að vinna á bakvið tjöldin til þess að reyna tryggja sér sigurinn - ég hefði reyndar gjarnan viljað fá að vita hve miklu munaði í atkvæðamagni á milli þriggja efstu liðanna.

Óttarr Makuch, 24.2.2008 kl. 22:18

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Skýringin er einföld: Friðrik ómar í tómri tunnu.

Sigurður Þórðarson, 25.2.2008 kl. 00:25

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

  Skýringin er einföld:  Friðrik ómar í tómri tunnu.

Sigurður Þórðarson, 25.2.2008 kl. 00:26

4 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Spennufall Tómas ha?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 25.2.2008 kl. 13:10

5 Smámynd: TómasHa

Spennufall?  Ég fylgdist nú ekki mikið með þessu og horfði ekki á lokakvöldið nema undir lokin.  Ég var ekki beint að deyja úr speningi.

TómasHa, 25.2.2008 kl. 18:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband