Seðlunum rakað inn!

Rosalega er seðlunum rakað inn þessa dagana. 422 manns!  Ætli þetta sé mesti fjöldi sem hefur náðst á einum degi?  Púff!   Það er greinilega kominn tími til þess að passa sig.  Nú er gríðarlegt átak í gangi, og greinilegt að þessi myndavél er betur falin en sú gamla þar sem þeir opnuðu skottið á bílnum og maður sá það greinilega.
mbl.is 422 ökumenn fá sekt fyrir að aka of hratt á Hringbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, þetta er eins myndavél og er í rauðljósayfirgatnamótamyndavélunum, nema þessi nemur hraða líka.....skil samt ekki af hverju var slökkt á umræddri vél....ekki lengur þarfasti þjónninn?

Magnús Geir Guðmundsson (IP-tala skráð) 24.8.2007 kl. 15:19

2 identicon

Sektirnar eru svo frá 10.000 kalli svo þetta verður alveg örugglega 5 milljón króna dagur! Já það er átak í gangi svo það er um að gera að slaka á :o/

Oddný (IP-tala skráð) 24.8.2007 kl. 16:23

3 identicon

Er ekki um að gera að aka bara alltaf á löghraða? Æ, hvað það væri þá mikið minna stress á götum Reykjavíkur.

Bragi Þór Valsson (IP-tala skráð) 26.8.2007 kl. 19:57

4 Smámynd: TómasHa

Kemur flass á þessari myndavél?  

TómasHa, 26.8.2007 kl. 21:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband