DHL hefur leiðrétt þetta

Rétt í þessu var haft samband við mig frá DHL, þar sem málið var leiðrétt en þeir höfðu lesið færsluna mína.  Það er sem sagt búið að fella niður skuldina mína án þess að ég þurfi að hafa meira fyrir þessu.  Ég fékk líka afsökunarbeiðni vegna fyrra málsins.

Ég á reyndar ekki enn DHL bolla, bol eða penna.  En afsökunarbeiðni og leiðrétting á skuldfærslunni var meira en nóg.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Daði Einarsson

Er þetta það sem þarf til að þeir taki rétt á málum, þ.e. að kvarta opinberlega?

Daði Einarsson, 21.8.2007 kl. 14:41

2 Smámynd: Haukur Nikulásson

Stundum forherðast menn í vitleysunni. Ímyndarsérfræðingurinn hefði að sjálfsögðu átt að koma að þessu fyrr!

Skyldum við Daði biðja um viðskipti við þá að fyrra bragði eftir þessa sögu?

Haukur Nikulásson, 21.8.2007 kl. 14:52

3 Smámynd: Snorri Bergz

Í mínum huga er þetta "SAS", en með því flugfélagi mun ég aldrei ferðast aftur, nema í algjörri neyð. Ömurlegasta þjónusta ever, jafnvel verri en hjá Iceland Express.

Snorri Bergz, 21.8.2007 kl. 15:34

4 identicon

Mér segir svo hugur að þú sérst nokkuð vinsæll á moggablogginu.  Það skiptir nokkru máli í þessu tilfelli, því maður getur vart annað en leitt hugann að þeim sem kvarta opinberlega, líkt og Daði stingur réttilega upp á, en öllum er sama.

Þ.e. lítt heimsóttum bloggurum sem verða bara að borga sínar lögfræðiskuldir, sama þó bull séu frá A-Ö. 

Ég fyllist ótta og mun vara mig á fyrirtækinu - a.m.k. íslenska arminum

Baldur McQueen (IP-tala skráð) 21.8.2007 kl. 23:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband