20.3.2007 | 11:48
Er maðurinn að tapa sér?
Nú ræðst talsmaður Neytenda að rót alls ills, að það sé verðmunur á milli hárklippinga kvenna og karla.
Hvernig vill Gísli að verði rukkað fyrir þetta, á að gera þetta á tímakaupi? Þannig að maður skellir sér í stóllinn, steinheldur kjafti svo maður trufli örugglega ekkert málglöðu klippikonuna? Það eru ástæður fyrir þessu, en klipping kvenna tekur yfirleitt lengri tíma.
Hvað er svo með barnaklippingu? Er ekki verið að mismuna börnum og fullorðnum? Hvað er þá með barnamiða í Sundlaugarnar? Er minni kostnaður af því að börn fari í laugarnar eða gamalmenni en ég?
Það er spurning hvort það þurfi að kalla þessu öðrum nöfnum svo að talsmaður neytenda verði ángæður, t.d. að kalla þetta að fara til rakarans. Það er bara spurning um mismunandi klippingu, konum væri að sjálfsögðu ekki bannað að fara til rakarans, en það þýðir bara að hún komi út með karlaklippingu.
Talsmaður Neytenda hefur greinilega verið að skoða sænska miðla en Svíar tóku á þessu "vandamáli" fyrir nokkrum árum. Flestir sænsku klippararnir lýstu því yfir á þeim tíma að þeir ætluðu að halda sínu stryki, karla fengu afslátt, færu á sérstofur svo einhver dæmi séu nefnd úr þeiri umræðu sem var í Svíþjóð þegar þessu var breytt.
Miðað við smákönnun á netinu virðast karlaklippingar sem eru ódýrari vera í boði víða í Evrópu, t.d. virðist það reglan hjá hársnyrtistofum í Bretlandi.

![]() |
Neytendum mismunað eftir kyni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég er nú ekki sátt við það að ég þurfi að borga 3500kr meira en maðurinn minn og ég er með styttra hár en hann.
fer í klippingu núna þar sem ég fæ að borga karlagjald og er mjög sátt. Finnst að það ætti frekar að borga eftir því hvað er gert en kyni.
Ásdís (IP-tala skráð) 20.3.2007 kl. 12:00
:) Þetta var nú ekkert endilega kynjamál, ég er alveg sammála þér Guðrún. Var nú ekki meint á þann veg. Hins vegar væri gaman að sjá klippingu á tímakaupi... Svona haltu nú áfram að klippa,við höfum ekki allan dag. Í mínu tilfelli færi ég sjálfsagt hálfklipptur út eða snoðaður. Færi að biðju um konu sem væri snögg að klippa í staðinn fyrir það að vera með gæðin á hreinu.
Þetta gæti gefið nokkra skemmtilega möguleika.
TómasHa, 20.3.2007 kl. 12:25
Ásdís, það nú málið þú ferð þangað sem verðið er að þínu skapi. Það er enginn að skilda viðkomandi að veita þér þessa þjónustu, þetta er eitthvað sem skrifstofan ákveður út frá eigin forsendum. Í mínum huga er það mun eðlilegra en að þeim verði gert skilt að selja klippinguna á sama verði.
TómasHa, 20.3.2007 kl. 12:27
Lítið mál að laga þetta. Bara að rukka klippingar samkvæmt fjölda klippa. Þannig að klipping sem er 1-500 “klipp” kostar ákveðið, 501-1000 “klipp” meira og svo framvegis. Jafnvel má verðleggja stakt “klipp” – svona ef maður vill bara láta fjarlægja nasahár. Svo er bara að hafa löggilta klippateljara á skærunum og venja hárskera að þessum notalegu “snipp snipp” út í loftið. Eins með laugarnar. Innheimta samkvæmt flatarmáli. Augljóst að maður sem er 185 á hæð og 130 kíló tekur meira flatarmál en sex ára krakki. Meira flatarmál er meira pláss í lauginni, meiri sápa og allt það. Nei takk – Ég held að þegar talsmaður Neytenda hefur virkilega tíma aflögu til að hugleiða svona dellu þá fyrst veit maður að hlutirnir eru í góðu lagi hér á Fróni.
GT (IP-tala skráð) 20.3.2007 kl. 12:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.