Gaman í Norrænu?

Undanfarið hafa verið keyrðar mjög sérstakar auglýsingar frá um Norrænu (Smyriline). Seint verður hægt að segja að það sé gaman að ferðast með Norrænu, en ég hef nokkrum sinnum farið með skipinu.

Þegar skipið var stækkað hélt ég að það væri komið kjörið tækifæri fyrir þá til að gera eitthvað skemmtilegt með skipið, en allt kom fyrir ekki. Enn er Viking Lounge, bara aðeins stærri, mötuneytið er eins bara nýrra. Eina nýjungin var nokkra metra löng sundlaug.

Svo má ekki gleyma klefunum góðu, seinast þegar ég fór var ég í 9 manna klefa, 3 kojur á hæðina, þannig að næsta koja var bara beint ofan í andlitið á þér. Kojur á 3 vegu, og í botninum var koja sem náði á milli veggja, viðkomandi hafði svona rúman metra til að komast í kojuna um miðja koju, því á báða kanta voru hinar kojurnar. Í þessu herbergi var engin rafmagnskló, þannig að ég fékk straum frammi af gangi til að hafa tölvuna mína í gangi.

Það þarf auðvitað ekki að taka fram fýluna í klefanum og hroturnar um nóttina.

Nú er ég ekki að segja að Norræna sé vonlaus ferðamáti, ég myndi alveg fara aftur með bátnum. Þetta er upplifun. Það er bara svo fjarri sanni að segja að þetta sé einhver skemmtun.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband