Færsluflokkur: Vefurinn
15.6.2007 | 10:36
Ekki hægt að ákveða fjölda á forsíðu
hversu margar færslur birtast á forsíðunni hjá manni hérna á
moggablogginu. Veit einhver hvernig á að gera þetta eða er þetta
bara ákvörðun stjórnenda moggabloggsins?
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.6.2007 | 11:58
Hakkaðir bananar
Heimasíða ávaxtarisans Banana hefur verið hökkuð. Það vekur athygli að þeir virðista ekkert hafa gert til að lagfæra þetta en þessi síða stendur enn svona ég sá þetta fyrst snemma í morgun. Síðan er hýst hjá vodafone, þannig að það ætti að vera einfalt verk að setja amk. upp eitthvað annað en þessa tilkynningar.
Þeir sem hökkuðu síðuna hefðu sjálfsagt getað valið sér vinsælli íslenska síðu til að hakka. Ætli síðan sé svo lítið lesinn að þeir lesa hana ekki einu sinni sjálfir?
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 12:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.4.2007 | 11:50
Netgreinar
Ekki minkaði hrifningin við þetta, þegar vinir mínir á blog.is myndu ekki bara taka eftir mér einhvern dag og setja mig á lista hinna viljugu og útvöldu, heldur væru þeir farnir að handvelja áhugaverðar færslur og birta þarna niðri. Hið besta mál og hvatning fyrir mig og fleiri virka bloggara til að skrifa inn langar og vandaðar færslur.
Nú er ég búinn að lesa þetta í nokkra daga, og tek eftir því að alltaf eru þetta fyrstu og einu færslurnar sem hafa birst hjá viðkomandi. Þetta virðist því ekki vera eins og ég hélt, einhverskonar handval, heldur heldur eru aðsendu greinarnar sem fá ekki birtingu í blaðinu skellt þarna, að því er virðist.
Það er spurning hvort þetta sé eitthvað trikk að fjölga notendum á blog.is?
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.4.2007 | 22:19
Topp 10 felumyndirnar
Ég fatta reyndar ekki felumyndina hans
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.4.2007 | 01:11
Þunnur þrettándi
Það eru ekki einu sinni upplýsingar um það hvernig á að hafa samaband við þau eða hverjir það eru sem eru í stjórn þessa ágæta frumvarps.
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.3.2007 | 09:26
Munu öll börn í Hafnarfirði deyja?
Staðreyndin er að allt í kringum okkur er CO2, í andrúmsloftinu eru eitthvað í kringum 0,03% og við öndum frá okkur um 4,5% CO2 (ef ég mann rétt úr menntaskóla). Hvert og eitt okkar skaffar um 1 kg af CO2 til andrúmsloftsins á sólarhring. Allt í kringum okkur eru CO2 gjafar, án þess að það sé að hafa sérstaklega slæm áhrif á okkur eða börnin okkar. Að sjálfsögðu er þetta í úrblæstri bíla, rotnun og svo framvegis. Þegar við öndum, þegar við brennum kerti, í hveravatni og eldgos svo einhver vel þekkt dæmi séu nefnd.
Það efast enginn um að þessar tölur eru réttar með útblásturinn álversins í samanburði við bílaflotann. Það er hins vegar framsetningin sem eru verulega gagnrýniverð. Losun þessa CO2, hefur ekki meiri áhrif á börn Hafnarfjarðar frekar en losun á sama magni á Húsvík. Skildi Sól í Straumi hafa heyrt um hugtakið "Global Warming"? Það hentar þeim því miður ekki að segja frá hinum raunverulegu áhrifum CO2, það væri ekki eins dramatískt fyrir húsmæður í Hafnarfirði.
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 09:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.3.2007 | 08:06
Áhugaverðir bloggarar
Björn bendir líka á fullt af nýjum bloggurum, ég hef fæsta séð áður en það er hægt að þakka Birni fyrir þetta. Margir mjög áhugaverðir bloggarar og jafnvel mjög persónulegir.
Það er alltaf mjög gaman af persónulegum bloggurum, en á sama tíma finnst mér ótrúlegt þegar fólk opnar sig á þennan hátt án þess að vita nokkuð hver les eða hvar þetta dúkkar uppi.
Maður veit svo sem ekki heldur hvað er satt og hvað er logið.
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.3.2007 | 09:23
Eigum við möguleika á að ritskoða netið?
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.3.2007 | 17:26
Fært í stílinn
Hvað um það, þá þykir mér þetta góð nýjung og hver sem er eigandi hennar fagna ég því að þetta sé nú komið til sögunnar, ég verð að viðurkenna að ég saknaði mikið nagportal, en ég veit ekki um neitt annað sambærilegt tól. Nú getur maður aftur séð hver hefur uppfært bloggið sitt, en þarf ekki að smella sér inn á bloggið í von og óvon.
Mæli aftur með:
http://blogg.gattin.net.
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.3.2007 | 12:00
Afríkubréfin komin í póstinn
Auðvitað þarf að vara við þessu eins og tölvupóstinum, þetta er ekki síður skaðlegt.
Vonandi vita menn orðið af þessu nægjanlega vel til að falla ekki í þessa gildru.
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)