Heilaskemmdir alkar

Nú fagna alkarnir.  

 Þetta er örugglega ein versta mögulega fréttin fyrir forvarnarstarf.  Þar með er seinasta afsökunin farin og menn geta hafið áfengisdrykku.  Þetta reddast :)

Næst þarf bara að koma að reykingar séu góðar, sé bara reykt í hófi.


mbl.is Heilaskemmdir af völdum áfengisneyslu geta gengið til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svansson tekur frá svansson.blog.is

Rak upp stór augu þegar ég sá nafn Svansson á lista yfir þá sem eru að blogg á blog.is.  Ég skildi ekki afhverju hann lét mig ekki vita af þessu fyrst hann kvartaði sáran undan því í gær að ég skildi ekki hafa látið hann vita. 

Annars sakaði hann mig um að vera að byrja og hætta alltaf stöðugt. Ég velti fyrir mér á móti, hvort hann hafi einmitt ekki gerst sekur um þetta sama, með því að byrja á blog.is og tilkynna sama dag að hann væri hættur að blogga þar? 

http://svansson.blog.is/blog/svansson/


Ellismellir

Alltaf gaman að lesa svona sögur af elliheimilinu. 

 Já, krakkar mínir einu sinni var þetta fólk frægt.


mbl.is Sharon Stone farin að slá sér upp með Christian Slater
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Súla hjálpar

Kate Hudson hlýtur að fá yfir sig bylgju óánægju radda frá femínistum eftir þetta.   


mbl.is Kate Hudson segir súludans styrkja sjálfsmat kvenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aldrei ríkur

Það er fyrir löngu ljóst að ég verð aldrei ríkur en samkvæmt vísi þá er ástæðan sú að ég er ekki nógu útsjónasmaur.  Þeir birtu amk. þessa skemmtilegu sögu á vefnum sínum áðan:

Eitt svarið er að þeir eru útsjónarsamir. Eins og bandaríski verðbréfamiðlarinn John Huntington, sem var að fara í hálfsmánaðar ferð til Evrópu. Hann ók á Rolls Royce bifreið sinni að banka í Manhattan, og bað um fimmþúsund dollara lán.

Bankamaðurinn spurði um tryggingu og John lét hann fá lyklana að Rollsinum. Bankamaðurinn lét John hafa lánið og lét keyra Rollsinn niður í bílageymslu bankans. Tveim vikum síðar kom John aftur, og vildi borga upp lánið. Það voru fimmþúsund dollarar og 15,40 dollarar í vexti. John skrifaði ávísun, fékk lyklana að bílnum sínum og kvaddi.

Bankamaðurinn var dálítið hissa á þessu ferli öllu, og sagði við John; "Ég veit að þú ert vellauðugur, til hvers í ósköpunum varstu að taka fimmþúsund dollara bankalán ?"

John brosti; "Hvar annarsstaðar gæti ég geymt Rolls Royce á Manhattan fyrir fimmtán dollara og fjörutíu sent, í tvær vikur ?"


Skynsamleg ákvörðun

Það hlaut að koma að skynsamri ákvörðun. 

Það má vel vera að það sé hægt að afsaka þessar tímabundnu ráðningar en fólk sér samt almennt í gegnum þetta. 

Sá orðrómur hefur verið að Óskar ætli sér að fremja pólitísk harikiri, brussast áfram og ná sér eins mikinn pening og mögulegt er.  Taka þátt í öllum leiðinlegu ákvörðunum á vegum borgarinnar. Svo muni bíða hans góð staða einhversstaðar.  

Vantar ekki alltaf góða húsamsiðju á skipulagssvið? 


mbl.is Óskar biður um að samningi hans við Faxaflóahafnir verði rift
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Töff

Það er nokkuð töff að vera útlendingur svo kokhraustir að afþakka
aðstoð í brjáluðu veðri.  Þeir voru meira að segja sendir
sérstaklega eftir þeim og svo bara neee... við reddum okkur sjálfir.
mbl.is Erlendir ferðamenn á sumardekkjum afþökkuðu aðstoð björgunarsveitarmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löngu tímabært

Ég held að margir fagni þessari ákvörðun hjá Sturlu, það er löngu kominn tími til þess  að fá varanlegt varasamband við umheiminn.

Þetta er auðvitað bara  búið að vera fyndið varðand þetta netsamband hérna heima. 


mbl.is Nýr sæstrengur verði lagður fyrir árið 2008
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki gott við svefni

Fyrst þetta er svona örvandi og fínt er væntanlega ekki þessi virði að lesa rétt fyrir svefninn? 

 Annars er það örugglega rétt, það er ekki bara Shakespeare heldur allt sem örvara heilann. Sukado er sjálfsagt ekkert síðar tól til þess að örva heilann.  Xboxið er sjálfsagt fín líka. 

Það er helst uppáhaldsiðja landans sem er skaðlega eða sjónvarpsglápið. 


mbl.is Shakespeare örvar heilann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áhugavert sjónvarpsefni

Ég held að framboð íslensku Skjákaupa sé í lélegasta lagi.  Það liggur við að maður sakni gamla sjóvarpsmarkaðarins, sem var sýndur á RÚV og var með búð í kringlunni.  Þar var amk. margt sniðugt í boði.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband